Hvetja ráðamenn til að horfa heildstætt á menntakerfið

Fréttir|9. október 2014

Félag tónlistarskólakennara sendi í dag öllum bæjar-, sveitarstjórnar- og borgarfulltrúum landsins ályktun svæðisþinga tónlistarskóla sem haldin voru í september síðastliðinn. Þingin voru sex talsins og haldin um allt land. Ályktunin er sem hér segir:

Svæðisþing tónlistarskóla haldin á Vestfjörðum, Austurlandi, Suðurlandi og Suðurnesjum, Vesturlandi, Norðurlandi og höfuðborgarsvæðinu hvetja ráðamenn til að horfa heildstætt á allar þær stofnanir sem mynda innviði menntakerfis þjóðarinnar.

Framsækin og metnaðarfull stefnumörkun í mennta- og menningarmálum á Íslandi krefst heildarframkvæmdar eigi markmið hennar að ná fram að ganga.

Í ávarpi sínu á lokahátíð Nótunnar 2014 lét Mennta- og menningarmálaráðherra, Illugi Gunnarsson, þau orð falla að uppbygging tónlistarskólakerfis um land allt hafi verið „ein af þeim ákvörðunum sem hefur reynst þjóðinni afskaplega góð og heilladrjúg ̶ [...] fyrir svo margra hluta sakir.“

Tónlistarskólakerfið á Íslandi vekur víða athygli hvort sem er vegna gæða, útbreiðslu þess eða víðtæks hlutverks á sviði lista, mennta-, menningar- og samfélagsmála.

Gerum ekki þau mistök að horfa fram hjá þeim auðlindum sem eru til staðar í samfélaginu, hér vísum við til tónlistarskólakerfis landsins, og geta gert Íslendingum kleift að skapa sér sérstöðu á sviði mennta- og menningarmála.

Við skorum á sveitarfélögin í landinu að mismuna ekki félagsmönnum Kennarasambands Íslands í launum eftir því í hvernig skólagerð þeir starfa.  Tónlistarskólakennarar og stjórnendur tónlistarskóla, sem telja um 5% félagsmanna Kennarasambands Íslands, hafa verið samningslausir í tæpa níu mánuði. Við hvetjum ráðamenn til að sýna samkvæmni og sanngirni og ganga nú þegar frá kjarasamningum við þann litla hóp félagsmanna KÍ sem enn hefur ekki verið samið við.
Við þurfum öll hvert á öðru að halda - jafnrétti í launasetningu er okkar krafa.

  • Tólfta svæðisþing tónlistarskóla á Vestfjörðum haldið í Hömrum í Tónlistarskóla Ísafjarðar föstudaginn 12. september 2014
  • Tólfta svæðisþing tónlistarskóla á Austurlandi haldið í Tónlistarskólanum á Egilsstöðum mánudaginn 15. september 2014
  • Tólfta svæðisþing tónlistarskóla á Suðurlandi og Suðurnesjum haldið í salnum Bergi í Hljómahöllinni í Reykjanesbæ þriðjudaginn 16. september 2014
  • Tólfta svæðisþing tónlistarskóla á Vesturlandi haldið í Tónlistarskólanum á Akranesi miðvikudaginn 17. september 2014
  • Tólfta svæðisþing tónlistarskóla á Norðurlandi haldið í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri fimmtudaginn 18. september 2014
  • Tólfta svæðisþing tónlistarskóla á höfuðborgarsvæðinu haldið í Nauthól, Nauthólsvegi 106, 101 Reykjavík föstudaginn 19. september 2014

 

Um leið sendi félagið sama hópi ályktun samstöðufundar sem haldinn var í húsnæði Ríkissáttasemjara síðastliðinn þriðjudag en hún hljóðar svo:

Tónlistarskólakennarar og stjórnendur tónlistarskóla eru um 5% félagsmanna Kennarasambands Íslands. Þann 2. desember 2013 var skrifað undir viðræðuáætlun samningsaðila en skemmst er frá því að segja að lítið sem ekkert hefur þokast í kjaraviðræðunum á þeim tíu mánuðum sem liðnir eru.

Jafnrétti í launasetningu er eitt af meginsamningsmarkmiðum Sambands íslenskra sveitarfélaga, að tryggja að sambærileg og jafnverðmæt störf séu launuð með sama hætti óháð kynferði, búsetu eða stéttarfélagsaðild. Hér er um að ræða lítinn hóp innan eins og hins sama stéttarfélags – Kennarasambands Íslands.

Kjarastefna Félags tónlistarskólakennara - og Kennarasambands Íslands - er skýr: Laun og önnur starfskjör tónlistarskólakennara og stjórnenda í tónlistarskólum skulu standast samanburð við kjör annarra sérfræðinga og stjórnenda.

Tónlistarskólakennarar og stjórnendur urðu af einni samningalotu sökum gildistíma kjarasamnings þeirra á árinu 2008, en samningar voru ekki lausir fyrr en eftir efnahagshrunið. Við krefjumst þess að launakjör okkar verði leiðrétt og færð aftur til samræmis við laun annarra kennara og stjórnenda.

Við skorum á sveitarfélögin í landinu að mismuna ekki félagsmönnum Kennarasambands Íslands í launum eftir því í hvernig skólagerð þeir starfa.

Tónlistarskólakennarar og stjórnendur tónlistarskóla geta með engu móti samþykkt að störf þeirra, menntun og reynsla sé ekki talin jafnverðmæt og störf annarra kennara og stjórnenda. 

Við þurfum öll hvert á öðru að halda - jafnrétti í launasetningu er okkar krafa!