Hvers vegna erum við kennarar?

Fréttir|14. mars 2025

Skólamálaráð KÍ kom saman á vorfundi í gær. Fagmennska og mikilvægi kennarastarfsins, ekki síst í tengslum við kjarabaráttu, var meðal umræðuefna á fundinum.

„Hvers vegna við viljum fagmennsku og stöðugleika í skólunum okkar? Hvers vegna störf okkar eru mikilvæg?," spurði Jónína Hauksdóttir, varaformaður KÍ og formaður framkvæmdastjórnar Skólamálaráðs KÍ, í opnunarávarpi sínu á stóra skólamáladeginum í gær. 

Á fundinum voru samankomnir um þrjátíu fulltrúar skólamálanefnda aðildarfélaganna og er þetta þriðja árið í röð sem fundurinn er haldinn á vorönn. 

Jónína gerði kjarabaráttu undangenginna mánaða að umræðuefni og sagði mikilvægt að skoða hvers vegna skólamál skipta máli í tengslum við baráttuna fyrir bættum kjörum.

„Kjarabarátta snýst í grunninn um að tryggja sanngjörn laun og góðar starfsaðstæður. Þetta er grundvallaratriði í að laða að og halda í hæfa, góða og áhugasama kennara.  Hæfir og sáttir kennarar eru forsenda þess að hægt sé að veita gæðamenntun. Kjarabarátta kennara er því ekki eingöngu barátta fyrir bættum kjörum kennara, heldur einnig barátta fyrir betri menntun barna og ungmenna og um leið að betra samfélagi," sagði Jónína meðal annars. 

Fyrirlesarar á fundinum voru Guðrún Ragnarsdóttir, prófessor við Menntavísindasvið HÍ, Elísabet Soffía Bender, stjórnarkona í Rökvís, fagfélagi nýliða í kennslu og Guðrún Guðbjarnardóttir, kennari í Brekkubæjarskóla á Akranesi. 

Að loknum erindum fóru umræður og hópastarf fram. Afrakstur fundarins mun nýtast framkvæmdastjórn Skólamálaráðs sem grunnur að öflugu faglegu starfi á hausti komanda.

 

Svipmyndir frá fundinum