Hvers vegna breytingar á lífeyriskerfinu?

Fréttir|22. september 2016

Ágæti félagsmaður

Vinna að samkomulagi bandalaga opinberra starfsmanna við ríki og sveitarfélög um breytingar á lífeyrissjóðsmálum, sem ég undirritaði í byrjun vikunnar, hefur staðið yfir allar götur frá árinu 2009. Málin hafa verið rædd í þaula á þingum og ársfundum KÍ í gegnum tíðina, í stjórn KÍ og stjórnum og samninganefndum aðildarfélaga, út frá þeirri forsendu að réttindi félagsmanna væru ekki skert. Það er sá grunnur sem KÍ stendur á.

Þórður Á. Hjaltested, formaður Kennarasambands Íslands, skrifar. 

Það er mín skoðun að hagsmunum félagsmanna sé betur borgið með því að staðfesta samkomulagið, en að gera ekki neitt. Vandinn sem við höfum glímt við í langan tíma er að mikla fjármuni hefur vantað inn í opinbera lífeyriskerfið til að standa við áfallnar skuldbindingar. Ástæðan eru vanefndir stjórnvalda á inngreiðslum inn í sjóðina. Lengi hefur verið þrýst á stjórnvöld að hefja þessar nauðsynlegu greiðslur en þau hafa heykst á að taka á vandanum. Þess í stað hefur Alþingi á hverju ári sett lög til að komast hjá því að hækka iðgjald launagreiðenda til sjóðanna. Sú hætta hefur alltaf verið fyrir hendi að stjórnvöld settu lög um skerðingu lífeyrisréttinda opinberra starfsmanna.

Þegar stjórnvöld lýstu sig fús til að leggja tugi milljarða inn í opinberu sjóðina var það skylda okkar í forystu KÍ og aðildarfélaga að hlusta. Í löngum og flóknum samningaviðræðum náðist mikill árangur við að tryggja réttindi opinberra starfsmanna.

Það eru nokkur atriði sem mikilvægt er að hafa í huga varðandi samkomulagið:

  • Þeir sem þegar greiða í A-deildir lífeyrissjóða opinberra starfsmanna, LSR eða Brú, munu ekki finna fyrir neinni breytingu. Öll þeirra réttindi eru tryggð með samkomulaginu.
  • Þeir sem byrja að greiða í fyrsta skipti í sjóðina eftir 1. janúar munu ganga inn í nýtt lífeyriskerfi þar sem ávinnsla verður aldurstengd, eins og verið hefur á almenna markaðnum í um áratug.
  • Lífeyrisaldur opinberra starfsmanna hækkar úr 65 árum í 67. Þeir sem þegar greiða í sjóðina geta eftir sem áður hætt störfum 65 ára án þess að réttindin skerðist. Þeir geta líka valið að vinna til 67 ára aldurs og bæta með því lífeyrisréttindi sín, eins og alltaf hefur verið hægt að gera.
  • Nýtt aldurstengt kerfi er sjálfbært að mati tryggingastærðfræðinga og á að vera jafn verðmætt og það gamla.
  • Ríki og sveitarfélög hafa skuldbundið sig til að leiðrétta launamun á milli opinbera markaðarins og hins almenna. Sú vinna á að taka að hámarki 10 ár.

Frá upphafi hefur verið fjallað um málið á lýðræðislegan hátt innan KÍ og stjórn KÍ verið falið að halda viðræðum áfram á þeim grunni sem samþykktir þinga KÍ fela í sér. Stjórn KÍ, sem fer með æðsta vald milli þinga samkvæmt lögum sambandsins, hefur á löngum tíma rætt ítarlega um samningaviðræðurnar við ríki og sveitarfélög, sem og stjórnir og samninganefndir aðildarfélaga KÍ. Á fundi stjórnar KÍ og stjórna og samninganefnda aðildarfélaga KÍ var eftir ítarlega yfirferð samþykkt samhljóða að fela mér sem formanni KÍ að skrifa undir samkomulagið.
Vinnunni er ekki lokið þó samkomulagið hafi verið undirritað. KÍ mun fylgja þessari vinnu vel eftir og tryggja að stjórnvöld standi við að markmið þess, sérstaklega þau sem snúa að jöfnun launa milli markaða, nái fram að ganga.

Ég hvet félagsmenn til kynna sér samkomulagið, en upplýsingar um það, sem og samkomulagið í heild sinni má finna á vef KÍ

Með félagskveðju
Þórður Á Hjaltested
formaður Kennarasambands Íslands