Hvers vegna á ég að kjósa þig?

Fréttir|31. október 2021
Pistill

Magnús Þór Jónsson, skólastjóri og frambjóðandi til formanns Kennarasambands Íslands, skrifar.

Síðustu daga og vikur hefur mér gefist kostur á að hitta fjölda kennara. Það hefur verið einstaklega gefandi og lærdómsríkt að eiga samtöl um ólíka þætti kennarastarfsins. Fólk hefur verið hreinskiptið og opið og ekkert hikað við að krefja frambjóðandann svara. Þannig hafa margir komið með frábær innlegg í kosningaumræðuna.

Auðvitað er það þannig að formaður Kennarasambands Íslands leiðir breiðfylkingu kennara á ólíkum skólastigum og því hefur spurningin sem birtist í heiti pistilsins verið algeng þar sem ég hef komið á kaffistofur.

Hvers vegna ætti leikskólakennarinn, tónlistarskólakennarinn eða framhaldsskólakennarinn að kjósa mann með 27 ára starfsreynslu úr grunnskólanum og hvers vegna ætti að kjósa skólastjóra sem formann fyrir kennara?

Svarið er í grunninn alltaf það sama. Ég treysti því fullkomlega að kennarar velji sér þann okkar frambjóðendanna fjögurra sem þeir meta hæfastan til að gegna því starfi sem við keppumst nú um. Ég tel mig hæfastan til þess og mig langar til að rökstyðja það mat mitt aðeins byggt á þessum algengu spurningum.  

Ég hlakka mjög mikið til þess að fá dýpri skilning á hagsmunamálum kennara í leik-, grunn-, framhalds- og tónlistarskólum og bæta við þá þekkingu sem ég hef öðlast með samstarfi við þessi skólastig.

Kennarar aðildarfélaga KÍ, annarra en þeirra sem snúa að grunnskólanum, velta því eðlilega fyrir sér hvort þeirra raddir munu ná til formanns með grunnskólatengingu. Ég hef borið gæfu að vinna í skólum sem hafa verið í nánu samstarfi við leik- og tónlistarskóla í nærsamfélagi sínu og á sama hátt verið hluti leiðtogateymis minna skóla í miklu samstarfi við skólastigin. Á þeim árum er ég starfaði á Snæfellsnesi var mjög náið samstarf milli skólagerðanna og í Breiðholtinu hafa samskiptin verið farsæl. Auk þess sem ég hef sem fulltrúi í Skóla- og frístundaráði kynnst hagsmunamálum leikskólans í Reykjavík og stutt málflutning fulltrúa þeirra þar. Ég sat sem fulltrúi skólastjórnenda í skólanefnd framhaldsskóla um 6 ára skeið og bý við þá gæfu að vera giftur framhaldsskólakennara sem hefur veitt mér innsýn í starfið þar. Ég hlakka mjög mikið til þess að fá dýpri skilning á hagsmunamálum kennara í leik-, grunn-, framhalds- og tónlistarskólum og bæta við þá þekkingu sem ég hef öðlast með samstarfi við þessi skólastig.

Algengasta spurningin snýr þó að því hvort að fulltrúi stjórnenda í kennarahópi sé best til þess fallinn að leiða hópinn, er sá með snertingu við starf kennarans á gólfinu? Ég hef verið í stjórnendahlutverki í 22 ár innan skóla og þar af síðustu 18 ár í fullu starfi sem stjórnandi. Ég hef verið heppinn frá upphafi þegar kom að þeim skólum sem ég hef fengið að leiða.  Frábærir kennarar hafa unnið með mér að gæðastarfi í námi og það höfum við unnið í valdeflandi samskiptum og höfum sameinast um hagsmuni nemenda með hagsmuni þeirra að leiðarljósi. Hlutverk stjórnanda í skóla er fyrst og síðast það að styðja við kennara á þann hátt að starfsumhverfi hans tryggi að kennarinn geti leitt kjarnastarfið áfram. Nemandinn er í forgrunni og það eru kennarar sem stýra námi. Ég hef leyft mér að nota það orð um mína nálgun í störfum að færa hugtakið stjórnandi yfir í það að vera leiðtogi. Auðvitað kallar starfið mitt á heilmikla stjórnun og hluti þess er að sækja þær bjargir sem þarf til starfsins. Kjarninn er að leiða starf sem leiðir af sér gæði í námi og þar er kennarinn lykill að öllu. Mín gæfa hefur verið að vinna með frábærum kennurum sem hafa lagt mikið inn í heildarmynd skólastarfsins og verið óhræddir að þróa störf sín og taka á sig ábyrgð í samstarfi kennarans og leiðtogans. Samstarf sem byggir á einlægum áhuga á kjarnastarfsemi skólastarfs, gæði kennslu sem leiðir til farsældar í námi og þar með farsældar skóla.

Kjarninn er að leiða starf sem leiðir af sér gæði í námi. Þar er kennarinn lykill að öllu.

Ég hef töluverða reynslu af vinnu að hagsmunamálum kennarastéttarinnar, í gegnum trúnaðarstörf sem hafa veitt mér aukinn skilning á mismunandi verkefnum Kennarasambands Íslands. Ég þekki til skrifstofu sambandsins og þess frábæra fólks sem er þar í þjónustu við kennara. Ég er handviss um að þær leiðir sem ég hef unnið eftir í mínum störfum falla að því starfi sem þar er unnið.

Formaður KÍ er þjónn kennara, líkt og aðrir leiðtogar skólastarfs eru. Það er ótrúlegt tækifæri að fá að vera þjónandi leiðtogi kennara í leik-, grunn-, tónlistar- og framhaldsskólum. Ég hef á undanförnum árum lagt mig fram um að endurmennta mig á þann hátt að verða betri í því hlutverki að leiða hóp. 

Til þess að ná árangri þá þarf að búa yfir einlægum áhuga á málefnum stéttarinnar og hafa sjálfsþekkingu til að móta forystuhlutverk sem horfir til framtíðar. Sú reynsla sem ég bý yfir af starfi síðustu 27 ára, í bland við einlægan áhuga á hlutverki þjónandi leiðtoga íslenskra kennara og sýn á valdeflingu kennara, er það sem ég býð fram í kosningum til formanns KÍ 2. - 8. nóvember næstkomandi.

Þess vegna finnst mér að þú ættir að kjósa þennan skólastjóra úr grunnskóla og fimmtuga karl sem næsta formann (leiðtoga) íslenskra kennara.