Hvernig verður skólastarf eftir 4. maí

Á vef Stjórnarráðsins má leita svara við algengum spurningum er varða skólastarf og COVID-19 og fyrirhugaðar tilslakanir sóttvarnayfirvalda.
Skólahald breytist frá og með 4. maí næstkomandi og verður að miklu leyti fært í eðlilegt horf. Hefðbundið skólastarf hefst á þeim degi í leikskólum og grunnskólum og framhaldsskólar verða opnaðir með nýjum takmörkunum. Áfram verða í gildi sóttvarnarráðstafanir sem snúa meðal annars að hreinlæti og sótthreinsun og aðgengi fullorðinna að bygginu. Fjöldatakmarkanir fara almennt úr 20 í 50 og á það við starfsfólk og fullorðið fólk sem á erindi í skólana. Áfram skal halda 2 metra regluna í heiðri.
Fjölmargar spurningar vakna hjá kennurum og skólastjórnendum við þessar aðstæður. Hægt er að leita svara við spurningum á vef Stjórnarráðsins; svo sem um hversu mörg börn megi vera á úitsvæði, er í lagi að fara í vorferð, hvernig á að standa að starfsmannafundum, á að halda áfram aukaþrifum og sótthreinsun í skólabyggingum og svo mætti áfram telja. Í kaflanum um framhaldsskólann er til dæmis fjallað um starfsnám og námsframvindu, stuðningsþjónustu og hvernig námsmat fari fram í fjarnámi.
Spurt og svarað um skólahald í tengslum við COVID-19