Hvernig tökum við best á móti erlendum nemendum?

Fréttir|28. september 2023

Málefni nemenda af erlendum uppruna verður aðalefni árlegs Skólamálaþings KÍ sem venju samkvæmt er haldið í tengslum við Alþjóðadag kennara. Kennarasambandið hvetur félagsfólk til að fjölmenna á þingið. Þau sem eiga ekki heimangengt geta fylgst með í streymi.

Kennarar sinna fjölbreyttum hópi nemenda á degi hverjum, þar á meðal ört vaxandi fjölda barna og ungmenna af erlendum uppruna. Hvernig tökum við sem best á móti þessum krökkum? Hvað er vel gert í skólakerfinu? Hvað má gera betur svo þessir nemendur njóti sín í námi og daglegu lífi?

Þetta er meðal þess sem verður rætt á Skólamálaþingi KÍ sem fer fram 4. október næstkomandi. Yfirskrift Skólamálaþings er: Með opnum örmum; hvernig tökum við sem best á móti nemendum af erlendum uppruna?

Skólamálaþing KÍ er haldið í tengslum við Alþjóðadag kennara, sem er fagnað um allan heim 5. október. Þingið hefur fyrir löngu unnið sér sess í umræðu um menntamál og sem fyrr hvetur Kennarasambandið félagsfólk til að gefa þinginu gaum, koma í Borgartúnið eða fylgjast með útsendingu á netinu. 

Fyrirlesarar koma úr öllum áttum, og af ýmsum skólastigum. Aðalfyrirlesari er Eva Harðardóttir, aðjunkt og doktorsnemi, og mun hún flytja erindið Að finna sig heima í hnattvæddum heimi: Borgaravitund og inngilding í tengslum við menningarlegan margbreytileika á íslenskum menntavettvangi. Þá er vert að geta gestafyrirlesarans Alejöndru Díaz, stjórnmálafræðing og verkefnastjóra hjá HÍ, en hún mun flytja erindi sem hún kallar Reynslusaga frá Ísafirði. Þá munu fulltrúar skólastiganna deila reynslu sinni. 

Skólamálaþingið verður haldið í höfuðstöðvum Kennarasambandsins, við Borgartún 30, og er það í fyrsta sinn sem það er gert. Boðið verður upp á léttar veitingar að þingi loknu. 

Bein útsending á netinu

Slóð á streymi


Dagskrá Skólamálaþings 2023

15:30

Skólamálaþing sett

  • Jónína Hauksdóttir, varaformaður KÍ

15:35

Að finna sig heima í hnattvæddum heimi: Borgaravitund og inngilding í tengslum við menningarlegan margbreytileika á íslenskum menntavettvangi

  • Eva Harðardóttir, aðjúnkt og doktorsnemi

16:05

Leikgleði í gegnum sögur og söng – samstarfsverkefni allra leikskóla Reykjanesbæjar og bókasafnsins

  • María Petrína Berg skólastjóri og Sigurbjört Kristánsdóttir deildarstjóri í leikskólanum Holti í Reykjanesbæ

16:15

ÍSAT nemendur í grunnskólum Akureyrar

Sigrún Helga Snæbjörnsdóttir, verkefnastjóri ÍSAT, Síðuskóla

16:25

Er pláss fyrir mig í skólanum?

  • Jóna Dís Bragadóttir, skólastjóri Tæknimenntaskólans

16:35

Reynslusaga frá Ísafirði

  • Isabel Alejandra Díaz, stjórnmálafræðingur, verkefnisstjóri hjá HÍ og ungmennafulltrúi Íslands hjá Sameinuðu þjóðunum

17:00

Samantekt og þingslit. Léttar veitingar