Hvernig líta verkefni út sem nemendum finnst vert að vinna?

Fréttir|14. ágúst 2024
Rannsóknasjóður KÍ

Elísabet Eggertsdóttir og Sigrún Lilja Guðbjörnsdóttir, kennarar við Menntaskólann við Sund, könnuðu hvað eru verðug verkefni fyrir nemendur og hver getur metið það með styrk frá Rannsóknasjóði KÍ.

Elísabet Eggertsdóttir og Sigrún Lilja Guðbjörnsdóttir skrifa:

„Í upphafi skyldi endann skoða,“ stendur einhvers staðar, og á það hvergi betur við en í kennslu. Við kennarar eyðum miklum tíma af kennsluundirbúningi okkar í að búa til verkefni sem við leggjum svo fyrir nemendur okkar. En finnst nemendum okkar alltaf þess virði að vinna þessi verkefni? Skila verkefnin alltaf þeim árangri sem við höfðum væntingar um? Ef lokasvarið á að vera að nám hafi farið fram hjá nemendum, hvaða leiðir getum við valið í gerð verkefna?

Þetta voru spurningar sem brunnu á okkur og við vildum reyna að finna svör við í þessari rannsókn okkar.

Um rannsóknina

Vorið 2023 sóttu höfundar þessarar greinar um styrk í Rannsóknasjóð KÍ til að gera starfendarannsókn veturinn 2023-2024. Forsaga þeirrar styrkumsóknar var að vorið 2023 fór annar höfunda greinar á Erasmus+ námskeið til Berlínar sem hét „Teach with a twist!“ og fjallaði um hvaða leiðir mætti fara til að kenna nemendum færni sem kennd hefur verið við 21. öldina og þá sérstaklega þætti sem tengjast námsfærni. Þessir þættir eru: gagnrýnin hugsun, sköpun, samvinna og samskipti. Umsóknin var samþykkt og rannsóknin unnin síðasta vetur.

Þegar svara á stórum spurningum þarf að leita á náðir þeirra sem við teljum að viti meira. Við leituðum svara hjá hinum ýmsu fræðimönnum, svo sem Hattie, þá helst bækur hans Visible Learning for Mathematics (2016) og Visible Learning Feedback (Hattie og Clarke 2019). Bók Peters Liljedahl Building Thinking Classrooms var meðal annars notuð til að kynnast betur kennsluaðferðinni „Hugsandi skólastofa“. Bók Nönnu K. Christiansen Leiðsagnarnám - Hvers vegna, hvernig, hvað? (2021) nýttist einnig vel í þessari vinnu.

Margar vefsíður eru í boði fyrir kennara og væri það að æra óstöðugan að fara yfir allar þær sem við skoðuðum til að hjálpa okkur við vinnu okkar. Þó er vert að segja frá þeim félögum Pearce og Orr sem halda úti vefsíðunni Making Math Moments that Matter. Að mörgum síðum ólöstuðum vöktu þeir félagar áhuga okkar með nálgun sinni sem betur verður lýst hér á eftir. Þess má geta að Pearce og Orr standa einnig fyrir hlaðvarps þáttum þar sem þeir ræða við áhugaverða viðmælendur um stærðfræðikennslu. Þessir þættir eru aðgengilegir á vefsíðu þeirra, en líka á helstu hlaðvarpsveitum.

Að skapa eftirminnileg stærðfræðiaugnablik

Making Math Moments that Matter gengur út á að gera stærðfræði eftirminnilega og skapa stærðfræðitengd augnablik í kennslustofunni sem nemendur muna eftir. Hugmyndafræðin byggist á þremur þáttum; að vekja forvitni, að ýta undir skilning með nálgun kennarans og samantekt.

Til að vekja forvitni nemenda mæla Pearce og Orr með söguaðferð þar sem aðalatriðið er að byggja upp spennu, eftirvæntingu og forvitni. Hér viljum við að nemandi sitji eftir með spurningar og vangaveltur sem hann vill finna svar við.

Til að ýta undir skilning eru nemendur settir í litla vinnuhópa þar sem umræðan er stýrð af kennara. Þetta er hægt að gera með fyrirfram ákveðnum spurningum sem nemendur eiga að velta fyrir sér og ræða sín á milli. Samantektin sem gerð er í lok vinnunnar og er leidd af kennara er hér lykilatriði. Þar vinna kennarar og nemendur saman að því að draga saman aðalatriði og komast að niðurstöðu.

Á vefsíðunni er að finna fjöldann allan af myndböndum sem hægt er að nota í þessari nálgun og eru þau öllum opin (þó þarf að kaupa aðgang ef nota á annað efni síðunnar).

Hugsandi skólastofa

Hugsandi skólastofa Peters Liljedal var beitt sem kennsluaðferð í rannsókninni. Í þeirri nálgun eru þrír nemendur dregnir saman með spilum (handahófsval) og sá hópur vinnur saman á lóðréttum flötum, það geta verið veggtöflur, spjöld eða jafnvel gluggar. Aðalatriðið er að flöturinn sé lóðréttur þannig að hver hópmeðlimur sjái flötinn vel og hafi einnig möguleika á að sjá það sem aðrir hópar eru að gera. Hver hópur heldur svo áfram að útfæra og aðlaga sínar lausnir að því sem nemendur uppgötva og koma sér saman um.

Kenning Liljedahls er sú að um leið og við tökum nemendur út úr aðstæðum sem þau þekkja vel, þá neyðast þeir til að vinna á annan hátt. Aðferðin býður upp á marga eftirsóknarverða kosti, sér í lagi að auðvelt er fyrir kennara að hafa yfirsýn yfir hugsun nemenda, hvaða verkfæri þau nota og hver skilningur eða misskilningur þeirra er. Aðferðin gefur líka nemendum tækifæri til þess að útskýra lausnaleiðir sínar fyrir kennara og öllum hópnum. Þessi leið er sérlega hentug til að fá nemendur til að tala saman í hópavinnu. Á heimasíðu sinni hefur Peter safnað saman góðum verkefnum sem henta bæði grunnskóla og framhaldsskóla.

Leiðsagnarnám

Kenningar um leiðsagnarnám eru víðtækar. Í þessari rannsókn nýttum við helst þær leiðir sem Hattie hefur kynnt í bókum þeim sem áður var getið. Hér fléttuðum við inn endurgjöf til nemenda til að auka skilning á viðfangsefnum. Við reyndum líka að hafa lærdómsmarkmið, eins og Nanna skilgreinir þau, skýr þannig að nemendur vissu að hverju væri stefnt og af hverju.

Verkefnin

Þegar verkefni voru hönnuð var haft í huga:

  • Að vekja forvitni og áhuga nemenda
  • Að fá nemendur til að vinna saman
  • Að skapa umræðu
  • Að nemendur finni sjálfir leiðir til lausna
  • Að nemendur noti gagnrýna hugsun
  • Að verkefni reyni á sköpun
  • Að nemandi upplifi að nám hafi farið fram

Dæmi um verkefni sem unnin voru eru á heimasíðu Flatar, einnig er hægt að nálgast þau í samantekt rannsóknarinnar á vef Kennarasambandsins.

Aðferðarfræði

Yfirskrift verkefnis var „hvað eru verðug verkefni fyrir nemendur framhaldsskóla“ og þó að rannsóknin hafi vakið enn fleiri spurningar, var þetta sú sem við vildum fá svar við. Nánar tiltekið var það mikilvægt að vita hvað nemendur teldu verðug verkefni.
Við tókum því skipulögð viðtöl við nemendur þar sem úrtakshópar svöruðu spurningum í viðtali við kennara. Eftir valin verkefni voru útgöngupassar lagðir fyrir þann hóp sem vann verkefnið. Þessir útgöngupassar voru flestir á rafrænu formi og unnir af nemendum í lok kennslustunda. Þar fyrir utan var rætt við nemendur óformlega í kennslustundum til að kanna hug þeirra til verkefna.

Niðurstöður

Það reyndist auðvelt að vekja forvitni nemenda og skapa áhuga á viðfangsefnum. Nemendur eru almennt forvitnir um sögur og vilja fá svör, þó að þeir séu ekkert endilega til í að finna svörin sjálfir. Það reynir því talsvert á kennara þegar kemur að því að svara nemendum, það má ekki ræna þá tækifærinu á að finna svörin sjálfir. Hér var góður undirbúningur lykilatriði, að ná að undirbúa verkefni með spurningar nemenda í huga. Það er líka mikilvægt að taka eftir því hvenær og hvar nemendur stranda og hvernig best er að bregðast við þegar það gerist. Það var oft þrautin þyngri þar sem nemendum fannst þessi nálgun ekki „kennsla“ og þótti kennari ekki vera að standa sig, hann eigi jú að kenna þeim. Hugmyndir nemenda og kennara um nám fara því ekki alltaf saman.

Við komumst einnig að því hvað nemendahópar geta verið mismunandi. Í Menntaskólanum við Sund eru þrjár annir og við kenndum sömu fögin allar annirnar. Verkefni sem höfðu gengið vel á haustönn gerðu það ekkert endilega á vetrarönn. Það er því mikilvægt að aðlaga verkefni að þeim hópum sem verið er að kenna hverja stundina og lesa vel í hópinn. Stundum var gott að virkja áhuga eins eða tveggja hópa á viðfangsefni og láta þann áhuga smitast yfir á aðra hópa. Þegar samtalið fór á flug innan kennslustofunnar virtist forvitni annarra aukast.

Hugsandi kennslustofa er frábær kennsluaðferð, en það tók tíma að fá nemendur til að treysta aðferðinni. Þau áttu mörg hver erfitt með að sætta sig við að fá ekki að vinna með „vinum“ sínum. Ein uppáhalds umsögn rannsakenda frá nemenda voru að þessi aðferð væri óþolandi þar sem hún þýddi að hann þyrfti alltaf að vera að gera eitthvað.

Við vorum þvílíkt spenntar að komast að því hvaða verkefni nemendum fyndust áhugaverðust, lærdómsríkust og jafnvel skemmtilegust (orð sem við notuðum í stað orðsins „verðug“). Það kom þó í ljós að nemendur greindu ekki þann mun á verkefnum sem við þóttumst sjá. Fyrir þeim voru þetta allt bara verkefni.

Það er erfitt að synda á móti straumnum. Það krefst elju, úthalds, mikillar vinnu og sterkra beina. Við erum samt fullvissar um að það sé þess virði. Lokaniðurstaðan er sú að nemendur fengu meira út úr námi sínu á þennan hátt.

Við sem unnum saman að þessu verkefni getum staðfest að svona náið samstarf um verkefni ber árangur. Þetta var lærdómssamfélag bandamanna. Við gátum krufið verkefnin og rýnt þau til þess að skoða hvers vegna við teldum þau verðug. Við vildum ekki síður prófa á eigin skinni það sem við vildum kenna nemendum, nefnilega að skapa umræðu um námsefni.