Hvernig er með laun og leyfi í sóttkví?

Fjármálaráðuneytið og Samband íslenskra sveitarfélaga hafa hvort um sig gefið út upplýsingar til launagreiðenda fari svo að einstaklingur sé settur í sóttkví eða veikist af COVID 19 veirunni.
Leiðbeiningar til stjórnenda vegna COVID-19 kórónaveirunnar hafa verið gefnar út, annars vegar af hálfu fjármálaráðuneytisins og hins vegar af hálfu Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Í leiðbeiningunum er að finna tilmæli um hvernig beri að meta fjarvistadaga þeirra sem þurfa að sæta sóttkví eða smitast af COVID-19 veirunni.
Í stórum dráttum er staðan þannig að þeir sem sæta sóttkví samkvæmt fyrirmælum heilbrigðisyfirvalda hérlendis sem erlendis eða samkvæmt fyrirmælum vinnuveitanda fá greidd meðaltalslaun og fjarvist telst ekki til veikinda sé viðkomandi ekki veikur. Vinnuveitandi getur óskað eftir því að starfsmaður vinni í fjarvinnu.
Sé viðkomandi veikur í sóttkví telst fjarvist til veikinda.
Viðbrögð við veirunni
Fólk er hvatt til að kynna sér síðu Landlæknis en þar eru upplýsingar um COVID-19 kórónaveiruna uppfærðar jöfnum höndum. Farið er yfir hvernig veiran breiðist út, hver helstu einkennin eru og síðast en ekki síst hvernig draga megi úr sýkingarhættu.
Þar segir að almennt hreinlæti skipti miklu máli; handþvottur og almennt hreinlæti í kringum augu, nef og munn og það að forðast að heilsa með handabandi hefur lykilþýðingu við að forðast smit og fækka smitleiðum.
Vakni grunur um smit er fólk beðið að hafa samband við heilsugæsluna eða hringja í síma 1700.