Hvernig efla list- og verkgreinar menntun á Íslandi?
Kennarasamband Íslands efnir til málþings um hvernig list- og verkgreinar efla menntun á Íslandi. Þingið, sem ber yfirskriftina Erfiðustu spurningarnar koma ekki á prófi! - horfum til þeirrar hæfni sem framtíðin þarfnast, verður haldið á Grand Hótel Reykjavík mánudaginn 17. febrúar næstkomandi. Framkvæmdastjórn skólamálaráðs KÍ sér um skipulagningu málþingsins og koma öll skólastig/skólagerðir þar að, þ.e. leikskólinn, grunnskólinn, framhaldsskólinn og tónlistarskólinn.
Þetta verður öðruvísi málþing en fólk á að venjast vegna þess að sköpun í víðum skilningi verður áberandi í dagskránni í bland við fyrirlestra og samræður og verða allir málþingsgestir virkjaðir á einhvern máta. Þetta verður ógleymanlegur dagur og um að gera að storma á Grand Hótel og sækja sér verkfæri í kistuna – verkfæri til að gera skólastarfið litríkara, meira skapandi og árangursríkara.
Aðalfyrirlesari á málþinginu verður Dr. Linda Nathan stofnandi og fyrrverandi skólastjóri Boston Arts Academy. Linda starfar aðallega sem fræðimaður og ferðast vítt og breitt um heiminn með fyrirlestrahald. Hún nefnir fyrirlestur sinn „Why Arts Matters". Að hennar erindi loknu verða þrír sérfræðingar með stutt innlegg. Í framhaldi af því verða pallborðsumræður. Þar gefst málþingsgestum tækifæri til að spyrja framsögumenn spjörunum úr.
Málþingsstjóri verður Sigrún Grendal, formaður Félags tónlistarskólakennara. Málþingið verður tekið upp á myndband og birt á vefnum síðar.
Málþingið, verður sem fyrr segir 17. febrúar næstkomandi og stendur frá 12.15 til 17.
Málþingið er opið öllum áhugasömum, þátttökugjald er 5.000 krónur.
Hér er dagskráin og tengill á skráningu og greiðslugátt.