Hvernig á skólinn að vera árið 2046?
Fréttir|23. febrúar 2022

Ingvi Hrannar Ómarsson fjallar um skóla framtíðarinnar.
Í þessu bráðskemmtilega erindi Ingva Hrannars Ómarssonar af Skólaþingi Sambands íslenskra sveitarfélaga fjallar hann um skóla framtíðarinnar og samhengi hans við skólastarf í dag. Í erindinu færir hann margvísleg rök fyrir því að forgangsröðunin í skólakerfinu sé röng með of lítilli áherslu á skapandi greinar og frjálsan leik.
Hann bendir á að líf barna sé í auknum mæli of skipulagt og þeim sé of mikið stýrt af fullorðnu fólki. Sá tími sem börn þurfi til að uppgötva heiminn og sig sjálf sé ekki virtur. Þá séu listgreinar kerfisbundið vanmetnar þrátt fyrir að þær stuðli oft að óvæntum árangri, meira að segja þar sem fæst hefðu búist við því.