Hver verður næsti formaður KÍ?

Fréttir|1. nóvember 2021

Formannskjör KÍ stendur yfir dagana 2. til 8. nóvember. Félagsmenn eru hvattir til að nýta atkvæðisréttinn.

Formannskjör KÍ hefst á hádegi á morgun, þriðjudaginn 2. nóvember, og stendur til klukkan 14 mánudaginn 8. nóvember.

Frambjóðendur eru fjórir; Anna María Gunnarsdóttir, varaformaður KÍ, Hanna Björg Vilhjálmsdóttir, kennari í Borgarholtsskóla, Heimir Eyvindsson, dönskukennari og deildarstjóri í Grunnskólanum í Hveragerði, og Magnús Þór Jónsson, skólastjóri í Seljaskóla. 

Atkvæðisrétt hafa allir félagsmenn Kennarasambands Íslands samkvæmt félagatali KÍ. Atkvæðagreiðslan er rafræn og fer fram á Mínum síðum KÍ. 

Frambjóðendur hafa kynnt áherslur sínar hér á vefnum og birt greinar. Þá komu frambjóðendur fram í Pallborði Vísis fyrr í dag. 

Félagsmenn eru hvattir til að kynna sér frambjóðendur og taka þátt í atkvæðagreiðslunni. 

Um atkvæðagreiðsluna

Atkvæðagreiðslan fer fram á Mínum síðum á www.ki.is  Kjósendur þurfa að skrá sig inn með Íslykli eða Rafrænum skilríkjum. Þegar komið er inn á Mínar síður birtist kosningin.

  • Smellið á tengilinn sem heitir Atkvæðagreiðsla um Formann KÍ 2021 og þá birtist atkvæðaseðillinn.
  • Merktu við þann frambjóðanda sem þú vilt kjósa sem formann KÍ.
  • Smellið að lokum á flipann Kjósa og þá birtist eftirfarandi texti til að staðfesta að atkvæði hafi verið greitt: Atkvæði þitt hefur verið móttekið.
  • Skiptir þú um skoðun, geturðu kosið aftur. Með því að kjósa aftur ógildist fyrri kosning. Hver kennitala skilar einungis síðasta greidda atkvæði.
  • Ef þú vilt fresta því að greiða atkvæði skaltu smella á: Hætta við kosningu.

Formannsskiptin

Nýr formaður KÍ tekur við á VIII þingi Kennarasambandsins sem fer fram í apríl 2022. Þá tekur nýr varaformaður sambandsins jafnframt við en framboðsnefnd hefur auglýst eftir framboðum í það embætti. Frestur til að bjóða sig fram til varaformanns er 17. nóvember næstkomandi.