Hver hlekkur styrkir heildina

Örvar Rafn Hlíðdal kennari hefur farið fyrir framúrskarandi íþróttakennslu við Flóaskóla í Flóahreppi síðustu fjórtán ár. Í ár komu Íslensku menntaverðlaunin í hans hlut og hann tileinkaði þau nemendum sínum „því þau leggja auðvitað alla vinnuna á sig.“
Örvar Rafn er sérstaklega rómaður fyrir að geta náð til allra nemenda, sama hvað, og fyrir góðan árangur í starfi, en skólinn hefur til dæmis sigrað Skólahreysti í tvígang á síðustu árum, þrátt fyrir fámennan nemendahóp. Skólavarðan fékk að kíkja í tíma hjá Örvari þar sem gleðin var sannarlega í fyrirrúmi.
„Þetta er fyrst og fremst viðurkenning fyrir nemendurna, skólann og samfélagið okkar,“ segir Örvar Rafn um verðlaunin sem hann hlaut fyrir að vera framúrskarandi kennari ársins. „Þetta sýnir hvað hægt er að ná miklu fram þegar allir leggja sitt af mörkum og vinna saman af ástríðu og jákvæðni.“
„Ég held að það sem geri mína nálgun sérstaka sé hversu persónuleg og einlæg tengslin eru við nemendurna“, segir Örvar. „Ég hef kennt lengi í Flóaskóla og þekki börnin og fjölskyldur flestra vel. Mér þykir vænt um krakkana mína, og ég held að þessi hlýja og raunverulegi áhugi skíni í gegn og kannski skýrir að hluta þessa viðurkenningu,“ bætir hann við.
Gefandi að sjá áhugann kvikna
Örvar Rafn kennir öllum nemendum skólans íþróttir og sund. „Mitt hlutverk er fyrst og fremst að kveikja neista og hjálpa nemendum að finna sína styrkleika.“
„Íþrótta- og sundkennsla er grunnur að heilsu, vellíðan og félagsfærni barna. Það er ekki bara hreyfingin sjálf, þetta snýst líka um sjálfstraust, samvinnu og að læra að takast á við áskoranir. Þetta eru lífsleikniþættir sem nýtast út í lífið,“ segir Örvar Rafn.
„Mín kennslunálgun byggir á því að virkni, gleði og jákvæðni sé í fyrirrúmi,“ segir Örvar. „Ég legg áherslu á að kennslan sé einstaklingsmiðuð og að allir fái að ná árangri á sínum hraða, án þess að þurfa að bera sig saman við aðra. „Þegar nemendur koma í íþróttasalinn vil ég að þau finni fyrir öryggi, trausti og gleði og viti að þau séu á stað þar sem þeim líður vel. Mitt markmið er að þau finni öll að þau geti verið þau sjálf.“

Blak er alltaf hluti af upphituninni
„Hver nemandi þarf að fá að njóta sín á eigin forsendum, hvort sem hann hefur mikinn áhuga á íþróttum eða ekki. Sumir elska fótbolta, aðrir frjálsar íþróttir eða sund, en mér finnst mikilvægt að allir finni eitthvað sem hentar þeim.“ Það getur þó reynst krefjandi. „Það að halda öllum nemendum virkum og áhugasömum, sama hver áhugi þeirra er á mismunandi íþróttagreinum, er ein helsta áskorunin við starfið en um leið það sem gerir það svo skemmtilegt og fjölbreytt,“ segir Örvar Rafn.
„Stundum eru það einmitt þau sem hafa engan sérstakan áhuga sem blómstra mest þegar þau fá réttan stuðning og tækifæri. Við höfum til dæmis verið með nemendur sem hafa aldrei æft neinar íþróttir en ná frábærum árangri í Skólahreysti, komast jafnvel í úrslit og vinna til verðlauna. Það getur verið ótrúlega gefandi að sjá þegar áhuginn kviknar hjá krökkum sem komu inn með litla trú á eigin getu.“
Mikilvægt að hafa trú á verkefninu
Flóaskóli hefur undanfarin ár tekið þátt í Skólahreysti, árlegri krafta- og úthaldskeppni grunnskóla, undir leiðsögn Örvars og ekki hefur staðið á velgengninni. Keppnislið skólans hafa náð í úrslit ár eftir ár, tvisvar lent í þriðja sæti og tvisvar sigrað keppnina – og það þrátt fyrir að vera fámennur skóli, með um hundrað nemendur, og án aðgangs að íþróttahúsi. Örvar kennir úti að vori og hausti og svo í félagsheimilinu Þingborg yfir veturinn.
Þegar Skólavarðan kíkti í tíma hjá Örvari Rafni í nóvembermánuði var áfangastaðurinn þó annar, eða félagsheimilið Félagslundur við Stokkseyri, þar sem nemar Örvars hafa tímabundna aðstöðu á meðan unnið er að umbótum á Þingborg. „Maður þarf að bregðast við ýmsu í starfinu. Kennarastarfið er bara þannig. Ég kenni skólasund ýmist á Hellu eða í Laugalandi, íþróttir úti eða inni í félagsheimili. Þetta er svona alls konar, ég passa bara að vera alltaf tilbúinn með allt dótið í bílnum,“ segir hinn óstöðvandi kennari.
„Við höfum byggt upp nokkuð góða æfingaaðstöðu í félagsheimilinu okkar þar sem skólaíþróttir fara fram, og það hefur skipt miklu máli í undirbúningnum fyrir Skólahreysti. Og þrátt fyrir lítinn nemendafjölda höfum við nálgast verkefnið af jákvæðni og staðfestu. Með þessu umhverfi og krökkum sem eru tilbúin að leggja sig fram og taka þátt, hefur árangurinn smám saman komið,“ útskýrir Örvar.
Hann segir árangurinn í Skólahreysti þó fyrst og fremst snúast um samvinnu, þrautseigju og að hafa trú á verkefninu. „Þetta snýst ekki bara um þá sem keppa heldur allan hópinn. Við hugsum þetta eins og keðju þar sem hver hlekkur styrkir heildina. Allir hafa sitt hlutverk – sumir keppa, aðrir sjá um að hvetja, hjálpa eða undirbúa. Þannig finnur hver og einn að hann skiptir máli og það byggir upp samheldni, virðingu og stolta liðsheild,“ segir Örvar Rafn, sem leggur mikla áherslu á teymisvinnu og að horfa á hagsmuni heildarinnar.
„Markmiðasetning skiptir líka miklu máli, því hún gefur okkur stefnu og tilgang. Keppnisskap getur líka verið mjög jákvætt þegar það er nýtt á réttan hátt – það snýst ekki bara um að vinna, heldur að keppa við sjálfan sig, sýna þrautseigju og leggja sig fram.“

Brosið og gleðin eftir góða kennslustund eða íþróttatíma eru alveg ómetanleg
Læra það sem fyrir þeim er haft
Í tilnefningu til Íslensku menntaverðlaunanna er tekið fram að Örvar leggi sjálfur áherslu á hollustu og heilbrigða lífshætti og sé í þeim efnum góð og áhrifamikil fyrirmynd fyrir nemendur sína.
En skiptir það máli að kennarinn sé góð fyrirmynd? „Algjörlega. Kennarinn þarf að sýna það með eigin framkomu og viðhorfi hverju hann vill miðla. Að vera góð fyrirmynd snýst um virðingu, jákvæðni og ábyrgð. Nemendur læra oft meira af því sem þeir sjá en því sem þeim er sagt.“
Og það er ekki bara Örvar sem sýnir fordæmi heldur hvetur hann eldri nemendur til að gera slíkt hið sama. „Það styrkir bæði hópinn og einstaklingana þegar eldri nemendur eru fyrirmyndir fyrir þá yngri. Þegar eldri krakkarnir sýna fram á góð gildi, hvetja þá yngri og hjálpa þeim áfram, þá skapast menning þar sem samvinna, virðing og jákvæðni ríkir. Þetta byggir upp traust í hópnum og gerir skólann að samfélagi þar sem allir læra að taka ábyrgð og standa saman,“ útskýrir hann og bætir við að lokum: „Ég er þakklátur fyrir það traust og samstarf sem ríkir í skólanum og samfélaginu. Það er einstakt að vinna með svona frábærum nemendum, stjórnendum og samstarfsfólki, það er það sem gerir starfið svona skemmtilegt og gefandi.
Aðeins um Flóaskóla
Um hundrað nemendur í 1.-10. bekk stunda nám við Flóaskóla í Flóahreppi í Árnessýslu. Skólinn var stofnaður við sameiningu þriggja skóla; Gaulverjaskóla í Gaulverjabæjarhreppi, Villingaholtsskóla í Villingaholtshreppi og Þingborgarskóla í Hraungerðishreppi, og hóf störf haustið 2004, segir á vef skólans. Öll almenn bókleg kennsla fer fram í Flóaskóla, mötuneyti skólans er staðsett í næsta húsi í félagsheimilinu Þjórsárveri, og líkt og áður sagði fer íþróttakennsla fram í félagsheimilinu Þingborg. Þá hefur Tónlistarskóli Árnesinga aðstöðu í skólanum, sem þýðir að nemendur í tónlistarnámi geta fléttað tónlistarnámið saman við skóladaginn.
Í Flóaskóla er lögð áhersla á að skapa nemendum öruggt og hvetjandi námsumhverfi þar sem öllum líður vel og allir geta aflað sér þekkingar og færni til að geta á farsælan hátt tekist á við lífið í síbreytilegu samfélagi nútímans og lagt sitt af mörkum til að bæta það. Skólinn varð UNESCO skóli árið 2022 og lögð er áhersla á heimsmarkmiðin og alþjóðasamvinnu í skólastarfinu. „Sem hjarta samfélagsins“ þjónar skólinn þá íbúum þess, svo sem með því að efna til viðburða af ýmsu tagi, eiga í góðu samstarfi við íbúa og ýta undir framþróun í samfélaginu.
Allur hópurinn saman kominn og hress eftir góða æfingu