Hver er tilgangur menntunar? Hvað er góð menntun?
Lengi hefur verið litið svo á að markmið menntunar væri að víkka út hugann og að þroska nemendur til sjálfstæðis í hugsunum og athöfnum. En síðustu áratugi hefur þróunin víðs vegar í heiminum verið sú að meta menntun út frá mælikvörðum markaðslögmálanna. Litið er á skóla sem þjónustustofnanir og menntun sem verslunarvöru sem kemur meðal annars fram í samkeppni skóla um nemendur, fjölgun einkaskóla og áherslu á mælingar og árangur.
Fræðimaðurinn Gert Biesta er einn þeirra sem fjallað hefur mikið um tilgang menntunar og breytingar á viðhorfum til menntunar út frá spurningunni: Hvað er góð menntun? Hann segir að sýnin á menntastofnanir sem þjónustustofnanir og menntun sem verslunarvöru horfi alveg fram hjá því meginhlutverki menntastofnana, sem er að mennta, menntunarinnar sjálfrar vegna.
Breytt viðhorf til menntunar hefur mikil áhrif á stöðu kennarans og fagmennsku hans. Áherslan hefur færst frá því að nemendur læri til að menntast yfir í að nemendur læri eitthvað af einhverri ákveðinni ástæðu og að kenna eigi það sem nákvæmlega skipti máli og ekkert annað. Gallinn við að líta á menntun með þessum augum er að þá á sér engin dýpri umræða stað um menntun og lykilspurningar um inntak, tilgang og samhengi eru látnar liggja á milli hluta.
Til að svara spurningunni um tilgang menntunar og hvað er góð menntun þurfi að horfa á málið frá ýmsum hliðum. Fyrsti þátturinn er hæfnin sem menntunin veitir sem hefur að gera með það hvernig kunnátta er nýtt til að öðlast þekkingu og færni og sem gerir nemandanum kleift að takast á við hinar ýmsu áskoranir, bæði við að öðlast menntun og lifa flóknu nútímalífi.
En menntun felur meira í sér en hæfni. Með menntun fer líka fram félagsmótun og nemandinn lærir hefðir og venjur í samfélaginu. Félagsmótun er ekki skýrt markmið menntunar en hefur engu að síður mikil áhrif á nemandann sem einstakling og þekkingu og skoðanir hans á samfélaginu. Þriðji þáttur menntunar er að þroska einstaklinga til sjálfstæðis í hugsunum og athöfnum. Hver þáttur menntunar hefur áhrif á hina.
Biesta segir að starf kennarans og fagmennska felist í að halda jafnvægi milli þessara meginþátta menntunar og að taka ákvarðanir um kennslufræði, aðferðir og skipulag. Ástæðan er að leiðin til menntunar er ferli en ekki einhver ákveðinn lokapunktur eða afurð. Þetta mætti segja sem svo að nemendur læri ekki aðeins af því sem sagt er heldur líka út frá því sem gert er, og líka af því sem látið er ósagt og ógert. Þetta stangast gegn hugmyndinni um skilvirkni menntunar og að nemendur læri á sem skilvirkastan hátt til að ná ákveðnum niðurstöðum. Menntun sem snýst eingöngu um hæfniþáttinn er bara hálf menntun.
Kennarar þurfa að koma umræðunni um tilgang menntunar og hvað er góð menntun á dagskrá og hætta að láta aðra einoka umræðuna. Það er mikilvægt að almenningur og þeir sem láta sig menntun varða átti sig á því að núverandi þróun styður ekki við fagmennsku kennara eða bætir menntun og þroskandi starfshætti. Ekki er hægt að aftengja umræðu um menntun frá tilgangi hennar og þeirri spurningu þarf ævinlega að svara á gagnrýninn hátt.
Tilgangur menntunar er námið sjálft!