Hver dagur hefur sitt líf í kennslu

Sigurbjörn Örn Hreiðarsson, íþróttakennari í Tækniskólanum, er félaginn í Skólavörðunni. Hann svarar þremur laufléttum spurningum.
Ég er kennari vegna þess að
Ég hef gaman af að vera í kringum fólk og miðla af minni reynslu til nemenda. Hver dagur hefur sitt líf í kennslu sem er mjög gefandi og spennandi. Það er alltaf eitthvað nýtt sem kemur upp og gefur þessu starfi mikinn sjarma. Heilsa, hreyfing og íþróttir yfir höfuð eru stór þáttur af mínum lífsstíl og því er mjög gaman að fá að vinna við það. Svo tel ég að efling heilsuvitundar nemenda sé eitt það mikilvægasta sem hægt er og á að kenna nemendum í öllum skólum landsins. Það er mín hugsjón.
Besta stund vikunnar
Besta stundin er þegar maður finnur að maður hafi hreyft við nemendum á jákvæðan hátt, að eitthvað hafi gengið mjög vel. Einnig vinn ég á frábærum vinnustað og það er gaman að hitta vinnufélagana, hvort sem það er í kaffi, mat, hinum margrómuðu og metnaðarfullu getraunafundum eða bara á göngunum.
Þessu myndi ég vilja breyta
Ég myndi vilja auka áherslu á hreyfingu í kennslu á öllum skólastigum og leggja meiri áherslu á að bæta heilsuvitund nemenda því það skilar sér margfalt út í samfélagið á jákvæðan og fyrirbyggjandi hátt.