Hver dagur fullur af ævintýraþyrstum krökkum

„Útinám er ekki aðeins kennsluaðferð, það er leið til að styrkja nemendur á öllum sviðum náms og lífs,“ segir Hrafnhildur Sigurðardóttir, kennari við Sjálandsskóla og framúrskarandi kennari ársins 2024.
Að vinna við það sem maður hefur ástríðu fyrir er ómetanlegt. Ég finn stöðuga hvöt til að þróa, bæta og skapa nýjar leiðir í útinámi, sem er bæði forréttindi og einstök tilfinning,“ segir Hrafnhildur Sigurðardóttir, kennari við Sjálandsskóla í Garðabæ. Hrafnhildur hlaut Menntaverðlaunin í fyrra fyrir þróun fjölbreyttrar og hugmyndaríkrar útikennslu, fjölbreyttar valgreinar og leiðsögn um útivist og umhverfismennt.
Hrafnhildur segir að henni hafi snemma orðið ljóst að starf með börnum væri fyrir hana. „Þegar ég var unglingur fékk ég tækifæri til að vera tvö sumur í sumarbúðum að passa. Þau sumur áttaði ég mig á því hvað starf í kringum börn var margþætt og skemmtilegt. Svo þegar ég var 18 ára fékk ég tækifæri til að leiðbeina börnum og ungmennum í skátastarfi og vann á smíðavelli og sá um leikjanámskeið. Ég elskaði þá vinnu. Hlakkaði til á hverjum degi að mæta og taka á móti ævintýraþyrstum krökkum. Það var þá sem ég áttaði mig á því að það myndi henta mér vel að vinna á gólfinu og vinna með börnum.“
Framúrstefnulegir kennsluhættir í fyrirrúmi
Hrafnhildur hóf svo kennaraferilinn árið 2005 við Sjálandsskóla, sem þá var nýstofnaður. „Frá upphafi heillaði starf Sjálandsskóla mig, sérstaklega áherslan á teymiskennslu, opin kennslurými, þemavinnu og útinám. Það var bæði spennandi og krefjandi að vera hluti af skóla með svo framúrstefnulega kennsluhætti,“ segir Hrafnhildur sem starfaði sem umsjónarkennari í sextán ár. Fyrir fjórum árum tók hún við stöðu verkefnastjóra fyrir 1.–4. bekk, auk þess að stýra útikennslu skólans.
„Valgreinarnar hafa þróast mikið með tímanum. Í fyrstu fóru þær fram á skólalóðinni, með áherslu á greinar eins og útieldun en nú fer kennslan í auknum mæli fram utan skólalóðar, t.d. að skoða hella og fara í fjallgöngur.“
Útivist bæði umbun og úrræði
„Ég er sífellt að prófa nýjar aðferðir í kennslu og lít á það sem spennandi áskorun. Það er ekki nauðsynlegt að fylgja hefðbundnum leiðum – það má prófa sig áfram og læra af ferlinu. Verkefni þurfa ekki að vera fullkomin eða frábær til að skila árangri,“ segir Hrafnhildur.
„Mér finnst mikilvægt að nemendum líði vel og legg áherslu á að skapa umhverfi þar sem þeir fá nægan tíma til að vinna verkefni á sínum hraða. Með árunum hef ég lært að minna getur oft verið meira – að gefa nemendum rými til að skapa afslappaða og jákvæða stemningu í kennslustundum hefur reynst mér árangursríkt.“
Hún nýtir útivist bæði sem umbun og úrræði. „Úti er meira rými fyrir erfiðar tilfinningar, þar er hægt að losa um orku, safna jákvæðri orku og byggja upp traust milli nemenda og kennara. Útinám veitir tækifæri til að takast á við áskoranir og styrkja sjálfsmynd nemenda, auk þess sem það getur hjálpað þeim nemendum sem eiga erfitt innan hefðbundins skóla-kerfis að finna styrkleika sína og upplifa að náttúran sé þeirra leikvöllur.“
Mikilvægt að námið sé víðtækt
„Mitt helsta leiðarljós í kennslu er að skapa jákvætt og hvetjandi námsumhverfi þar sem nemendur finna fyrir öryggi, virðingu og tilheyra hópnum. Ég vil að þeir upplifi sig sem virka þátttakendur í eigin námi og fái tækifæri til að þroskast bæði námslega og persónulega,“ segir Hrafnhildur. „Ég legg áherslu á að gera námið áhugavert, fjölbreytt og tengt raunveruleikanum. Með því að nýta útinám, verkefnamiðaða kennslu og skapandi nálgun verður námið lifandi og merk-ingarbært fyrir nemendur.“
„Fyrir mér snýst kennsla ekki aðeins um bóklega færni heldur einnig um að efla sjálfstraust, þrautseigju og félagslega hæfni nemenda. Ég vil hjálpa þeim að þróa sjálfstæði, lausnamiðaða hugsun og trú á eigin getu, svo þeir verði forvitnir, hugrakkir og tilbúnir til að takast á við nýjar áskoranir í framtíðinni,“ segir hún. „Mér er einnig mikilvægt að þeir tileinki sér jákvæð samskipti, ábyrgð og virðingu – bæði gagnvart sjálfum sér, öðrum og umhverfinu. Ég vil að þeir þrói með sér seiglu til að yfirstíga hindranir og forvitni til að leita nýrrar þekkingar og lausna.“
„Ef nemendur útskrifast með þessa eiginleika tel ég þá vel undirbúna fyrir framtíðina, hvort sem það er í námi, starfi eða persónulegum vexti. Að lokum vona ég að þeir kunni að meta og njóta útiveru og náttúrunnar, þar sem hún getur verið ómetanlegur stuðningur fyrir bæði líkama og sál.“
Framúrskarandi kennari ársins
Hrafnhildur hlaut Íslensku menntaverðlaunin 2024 fyrir að stuðla að menntaumbótum sem þykja skara fram úr, þróun fjölbreyttrar og hugmyndaríkrar útikennslu, fjölbreyttar valgreinar og leiðsögn við kennara og kennaraefni um útivist og umhverfismennt.
„Það er mikill heiður að hljóta þessa viðurkenningu, og ég er bæði þakklát og stolt af henni. Það er dýrmætt að sjá að metnaður og vinna sem lögð er í kennsluna sé metin að verðleikum. Við kennarar vinnum af heilindum á hverjum degi, einbeitt í því að efla menntun barnanna og auðga líf þeirra, án þess að búast við sérstakri athygli eða viðurkenningu fyrir það. Þess vegna eru þessi verðlaun ekki aðeins persónuleg viðurkenning fyrir mig heldur einnig staðfesting á mikilvægi útikennslu og hennar hlutverki í skólastarfi,“ segir Hrafnhildur.
Útinám öflug leið til að ná til nemenda
Sérstaklega er minnst á það í umsögn um verðlaunin að Hrafnhildur hafi einstakt lag á því að nálgast nemendur, styrkja þá félagslega og bæta líðan. „Ég legg mikla áherslu á að nemendum líði vel í skólanum, því vellíðan er forsenda þess að þeir geti nýtt hæfileika sína og náð árangri. Skólinn á ekki að vera skemmtigarður, en hann á að vera öruggt og styðjandi umhverfi þar sem nemendur upplifa jákvæða skólagöngu sem hvetur þá til að gera sitt besta.“
„Það er þó staðreynd að ekki öllum nemendum líður vel í skólanum. Sumir eiga erfitt með að falla inn í hefðbundinn ramma skólakerfisins, og því þarf að nálgast þá á annan hátt. Ég hef fundið að útinám er öflug leið til að ná til þeirra,“ segir hún.
„Með útinámi get ég skapað aðstæður þar sem nemendur finna öryggi, fá útrás og byggja upp sjálfstraust. Í stað þess að krefja þá um að sitja kyrrir í kennslustofu vinnum við saman að fjölbreyttum verkefnum sem kalla á hreyfingu, sköpun og samvinnu.“

Við kennarar vinnum af heilindum á hverjum degi, einbeitt í því að efla menntun barnanna og auðga líf þeirra
„Ég nota útinám einnig sem verkfæri til að efla félagsleg tengsl og bæta vellíðan nemenda. Stundum er nauðsynlegt að stíga út fyrir hefðbundna kennslu og verja tíma saman í verkefn-um sem byggja upp traust, samvinnu og sameiginlega ábyrgð. Þessi verkefni geta verið fjölbreytt, allt frá því að veiða skordýr, labba í fjöru, vaða, búa til skýli, saga eldivið, negla nagla í drumba, veiða síli og moka snjó yfir í að sópa skólalóðina. Við höfum einnig farið út að hjóla og lagfært báta skólans,“ útskýrir Hrafnhildur.
„Slík verkefni gefa nemendum tækifæri til að tengjast öðrum á nýjan hátt, styrkja félagslega færni sína og öðlast trú á eigin getu. Þeir læra að treysta á sjálf sig, finna tilgang og finna sína styrkleika og upplifa ánægjuna sem fylgir því að takast á við nýjar áskoranir.“
Meira svigrúm í útináminu
„Útinám veitir líka mikilvægt svigrúm fyrir nemendur sem eiga erfitt með að sitja kyrr eða tjá sig í hefðbundinni kennslustofu. Í náttúrunni fá þeir tækifæri til að losa um orku, byggja upp jákvæðari sýn á skólann og takast á við áskoranir í umhverfi sem veitir þeim frelsi. Hvort sem það er skógarferð, útivinna eða ferð í hraunið, þá skapar útinám aðstæður þar sem nemendur geta vaxið, bæði námslega og persónulega,“ segir hún.
„Með því að nýta útinám sem hluta af kennslunni get ég fundið nýjar leiðir til að nálgast nemendur, mæta þeim þar sem þeir eru og skapa rými fyrir þroska og vellíðan. Það er ekki alltaf hægt að setja nemendur í sama mót – stundum þarf að breyta um umhverfi, nálgun og aðferðir til að tryggja að þeir fái tækifæri til að blómstra.“
„Til að ná til nemenda er lykilatriði að verja tíma með þeim, eiga persónuleg samskipti og deila eða búa til sameiginlega reynslu. Þegar nemanda líður ekki vel dugar oft ekki að fylgja hefðbundnum aðferðum – það þarf að horfa upp úr bókunum, hlusta af einlægni og sýna í verki að manni sé umhugað um viðkomandi. Traust byggist ekki bara á orðum heldur á tengslum og þeirri tilfinningu að einhver sé raunverulega til staðar,“ segir hún.
„Ég hef oft upplifað hversu áhrifarík þessi nálgun er í útinámi, hvort sem það er í gönguferð, hjólaferð eða á kajak. Á leiðinni út ríkir oft þögn, en á heimleiðinni opnast dyrnar – þá byrja nemendur að tala, deila hugsunum sínum og leyfa mér að skyggnast inn í þeirra heim. Það er ekki spurning um að ýta á nemandann til að tala, heldur að skapa aðstæður þar sem nemandinn finnur sig öruggan. Það er samveran, tíminn og jafningjastaðan sem þessi upplifun skapar sem gerir það að verkum að nemendur opna sig og tengingin styrkist.“
Útinám ætti að vera órjúfanlegur hluti náms
Í umsögninni er einnig sérstaklega minnst á leiðsagnarhlutverk Hrafnhildar og aðkomu hennar að gerð námsefnis og kennaraefnis um útivist og umhverfismennt. „Ég hef verið að taka á móti hópum úr háskólanum, kennaranemum og erlendum kennurum sem hafa áhuga á útinámi. Í mínum skóla er ég að leiðbeina í útinámi og aðstoða kennara við að finna verkefni við hæfi. Ég hef sjálf verið að útbúa efni sem hentar við hæfniviðmiðin sem við erum að fást við hverju sinni og í gegnum tíðina hafa verkefnin safnast saman hjá mér.“
Að vinna við það sem maður hefur ástríðu fyrir er ómetanlegt. Ég finn stöðuga hvöt til að þróa, bæta og skapa nýjar leiðir í útinámi, sem er bæði forréttindi og einstök tilfinning.
„Áhugi minn á útinámi hefur kallað á það að ég tek að mér kennaranema,“ segir Hrafnhildur. „Það að fá að leiðsegja kennaranemum er gaman og mikilvægt að mínu mati. Ég vil sjá sem flesta sinna útinámi í kennslu í framtíðinni því útinám hefur víðtæk jákvæð áhrif á nemendur og líf þeirra til framtíðar. Það bætir ekki aðeins námsárangur heldur einnig líðan, félagsfærni og umhverfis- og náttúruvitund nemenda.“
„Með því að færa námið út fyrir hefðbundnar kennslustofur fá nemendur dýpri skilning, aukna færni og sterkari tengsl við náttúruna. Það er því ljóst í mínum huga að útinám ætti að vera órjúfanlegur hluti af námi allra nemenda í framtíðinni og því mikilvægt að það sé hluti af námi verðandi kennara.“
Engum leiðist úti
„Ég tel að útivera sé færni sem við þurfum að tileinka okkur og æfa. Við erum ekki sjálfkrafa vön því að vera úti, en ef það er hluti af menningunni okkar verður það eðlilegt og sjálfsagt. Þess vegna þurfum við bæði að þjálfa okkur í að kenna úti og gefa nemendum tækifæri til að læra í náttúrulegu umhverfi,“ segir Hrafnhildur.
„Þegar við erum komin út, vel klædd og undirbúin, leiðist engum. Nemendur finna fljótt leiðir til að virkja sig og nýta umhverfið í leik og nám. Hins vegar, líkt og í kennslustofunni, þarf að skapa rými fyrir nám og virkni í útinámi. Ég legg áherslu á að nemendur fái tækifæri til að þróa og skapa sinn eigin leik í ómanngerðu umhverfi.“
„Ef umhverfið er of skipulagt, eins og á leikvelli eða körfuboltavelli, er oft fyrir fram ákveðið hvernig á að leika sér og hvaða reglur gilda. Í náttúrulegu um-hverfi fá nemendur hins vegar frelsi til að uppgötva, finna sínar eigin lausnir og þróa skapandi hugsun, sem eykur bæði nám og sjálfstæði þeirra,“ segir hún.
Einlægni nemenda drífandi
Að lokum, hvað er það besta við kennarastarfið? „Það besta við kennslustarfið er að vera með nemendum, valdefla þá og fræða. Það er dásamlegt að sjá nemendur virka í eigin námi og við þekkingarleit. Það er einlægni nem-enda sem drífur mann áfram, stundum er hún jákvæð, uppbyggjandi og góð en stundum er hún erfið og drifkraftur þess að gera betur sjálfur eða fyrir viðkomandi nemanda.“
„Helsta áskorun kennara í dag er hegðun einstaka nemenda og úrræðaleysi samfélagsins. Við erum að gera rosalega góða hluti í menntakerfinu öllu en það vantar að heilbrigðis- og velferðarkerfið vinni meira með okkur í þágu barna. Farsældarlögin eru skref í rétta átt en næst þurfum við úrræðin til þess að geta mætt þeim börnum sem eiga við þennan vanda að stríða og til þess að geta sinnt þeim börnum sem eftir eru. Við þurfum að snúa þessu við og hugsa um hver sé réttur þeirra. Það er stór hluti barna sem er til í að mæta í skólann, koma vel fram, vill læra og taka þátt í skólastarfi. Hver er réttur þeirra? Við þurfum líka að hugsa um þau,“ segir Hrafnhildur að lokum.
Helsti ávinningur útikennslu
Útinám hefur fjölbreytt og djúpstæð áhrif á nemendur, bæði í námi og persónulegri þróun, útskýrir Hrafnhildur. Hér eru helstu kostir þess:
1. Bætt líkamleg og andleg heilsa
Útinám stuðlar að aukinni hreyfingu, sem eflir líkamlega heilsu, styrkir úthald og samhæfingu. Að dvelja utandyra dregur úr streitu, eykur vellíðan og getur haft jákvæð áhrif á einbeitingu nemenda.
2. Dýpri skilningur og betri námsárangur
Útinám breytir námsumhverfinu og gerir námsefnið áþreifanlegra og raunverulegra. Náttúrulegt umhverfi auðveldar nemendum að tengja við, skilja og muna námsefnið betur. Verkleg nálgun ýtir undir skapandi hugsun, lausnaleit og sjálfstæði í námi. Rannsóknir hafa sýnt að útinám getur stuðlað að betri árangri í fögum eins og náttúrufræði, stærðfræði og tungumálum.
3. Betri félagsfærni og samvinna
Útinám eflir samskiptafærni þar sem nemendur læra að vinna saman, taka ábyrgð og styðja hver annan í fjölbreyttum aðstæðum. Það styrkir félagsleg tengsl, dregur úr einangrun og bætir samskiptahæfni. Auk þess stuðlar útinám að aukinni sam-kennd og virðingu fyrir bæði jafningjum og umhverfinu.
4. Aukinn sveigjanleiki og hæfni til að leysa vandamál
Útinám kynnir nemendur fyrir óvæntum aðstæðum sem krefjast þess að þeir hugsi á annan hátt, finni lausnir
og taki sjálfstæðar ákvarðanir. Að takast á við náttúru-legar áskoranir eflir útsjónarsemi, aðlögunarhæfni og þrautseigju.
5. Sterkari tengsl við náttúruna og aukin umhverfisvitund
Með því að læra í náttúrulegu umhverfi fá nemendur betri skilning á vistfræði, náttúruvísindum og sjálfbærni. Útinám hjálpar þeim að þróa jákvæð viðhorf til útivistar, sem getur haft langtímaáhrif á lífsstíl þeirra og um-hverfisvitund.
6. Sköpunargleði og hugmyndaauðgi
Leikir og verkefni í útinámi hvetja til sköpunar og sjálfstæðrar hugsunar. Nemendur fá tækifæri til að kanna umhverfið, finna upp á nýjum leiðum til að leysa verkefni og skapa eigin leiki og lausnir.
7. Jákvæð áhrif á hegðun og einbeitingu
Útinám getur dregið úr hegðunarvandamálum og hjálpað nemendum að einbeita sér betur í skólastarfi. Nemendur sem eiga erfitt með kyrrsetu og hefðbundið nám njóta sérstaklega góðs af því að læra í opnu umhverfi þar sem hreyfing og sveigjanleiki er hluti af kennslunni. Þeir fá einnig fleiri tækifæri til að nýta styrkleika sína og sýna frumkvæði.
8. Lífsleikni og sjálfstraust
Útinám gefur nemendum tækifæri til að prófa sig áfram, takast á við nýjar áskoranir og byggja upp sjálfstraust. Að takast á við raunveruleg verkefni í náttúrunni eflir trú á eigin getu og eykur sjálfstæði. Að upplifa árangur í útinámi styrkir jákvæða sjálfsmynd og hvetur nemendur til að takast á við ný verkefni með opnum huga og jákvæðni.