Hver á að skrúfa fyrir kranann?

Fréttir|23. október 2020
Pistill

Hugleiðingar Önnu Maríu Gunnarsdóttur, varaformanns KÍ, í tilefni þess að kvennafrídagurinn er á morgun.

„Þegar skrúfað var frá krananum í ógáti” heitir saga eftir Svövu Jakobsdóttur sem kom út í smásagnasafninu Veizlu undir grjótvegg fyrir rúmlega fimmtíu árum. Í sögunni er sjónarhornið hjá elsta barninu, stúlku sem lýsir því hvernig fjölskyldulífið fer ekki aðeins á flot heldur tekur á sig mynd náttúruhamfara þegar einhver fjölskyldumeðlima skrúfar frá krana í ógáti. Enginn skrúfar fyrir kranann en fjölskyldan flýr hærra og hærra til að drukkna ekki. Það gengur þó ekki og í sögulok eru flestir fjölskyldumeðlimir horfnir. En spurningin sem eftir situr er af hverju skrúfaði móðirin ekki fyrir kranann? Af hverju aðhylltist hún nútímalegar uppeldisaðferðir, fjölskylduráðstefnur og vildi að sá sem skrúfaði frá krananum skrúfaði fyrir hann?

Kannski er langsótt að tengja þessa sögu við yfirskrift dagsins en eigi að síðar hvarflaði hugurinn strax til hennar. Þegar móðirin brást ekki við og gekk undir fjölskyldu sinni var voðinn vís. Það sama á við störf kvenna. Konur lifa ekki á þakklætinu einu saman. Því miður er það svo að konur bera enn hitann og þungann af heimilishaldi, umönnun eldri ættingja og barnauppeldi auk þess að sinna þjóðfélagslega mikilvægum störfum.

Konur lifa ekki af þakklætinu einu saman og því þarf að meta þessi störf að verðleikum og til launa.

Í kjölfar COVID-19 hefur komið í ljós hversu mikilvægt er að fjárfest sé í grunnþjónustu og þjónustu við fólk. Það kom vel í ljós að þeir sem sinna samfélagslega mikilvægum störfum eins og heilbrigðisstarfsfólk, kennarar og stéttir sem starfa í þjónustu og umönnun hafa borið kerfið uppi. Þetta eru ekki stéttirnar sem hafa möguleika á fjarvinnu og sveigjanlegum vinnutíma. Þetta eru stéttirnar sem þurfa að mæta á staðinn og sinna sínu hvað sem tautar og raular. Og þetta eru stéttirnar sem búa við hvað verstar starfsaðstæður þannig að meiri líkur eru á að álagið verði óbærilegt og leiði af sér heilsufarsleg vandamál auk nagandi kvíða yfir því að geta séð sér farborða vegna lélegra launa. Konur lifa ekki af þakklætinu einu saman og því þarf að meta þessi störf að verðleikum og til launa. Er hægt að takast á við ábyrgðarmeiri störf en þau sem halda uppi grunnstoðum samfélagsins?

COVID-19 hefur leitt það berlega í ljós að vanmats gætir á störfum kvenna. Það er því skylda okkar nú að sjá til þess að heimurinn dragi lærdóm af heimsfaraldrinum. Til að það gerist verðum við að standa saman og krefjast þess að störf kvenna verði metin af verðleikum og laun tryggð. Nú eru 45 ár síðan konur um allt land lögðu niður störf til að sýna fram á mikilvægi vinnuframlags kvenna. Það má ekki gerast sem lýst var í sögunni hér að framan með táknrænum hætti að konur verði hamförum að bráð því enginn sá hættuna fyrir og skrúfaði fyrir kranann!