Hvatt til umræðu um stefnu í menntamálum
Skólamálaráð hefur sent frá sér umræðuhefti til íhugunar um menntun og velferð barna og ungmenna.
Umræðuhefti um menntamál hefur verið sent til félaga KÍ. Í ritinu er að finna samantekt Skólamálaráðs KÍ á stefnu í menntamálum eins og hún birtist í hvítbók menntamálaráðherra sem kom út í júní 2014, aðgerðaáætlunum og ákvörðunum um framkvæmd.
Hvernig getur íslenskt menntakerfi veitt börnum og ungu fólki sem besta menntun og velferð fyrir lífið? Í hvaða átt þarf íslenskt menntakerfi að þróast og hvernig? Hvert er hlutverk skólafólks og kennarasamtakanna í þeirri þróun og hvernig? Á hvaða vegferð erum við í menntamálum? Hvaða útlínur má greina? Eru þær til framdráttar menntun, velferð og skólastarfi?
Félagsfólk er hvatt til að kynna sér efnið, íhuga og ræða kosti og galla í samhengi við skólastarf, kennslu og velferð barna og ungmenna, og senda frá sér ábendingar, pistla og þanka. Pistlar sem berast verða birtir í miðlum KÍ.