Hvatt til umræðu um námsgögn og námsefni

Fréttir|19. október 2016

Skólamálaráð KÍ hefur sent frá sér nýtt umræðuhefti þar sem fjallað er um námsefni og námsgögn með tilliti til hvítbókar. 

Umræðuhefti um menntamál – námsgögn og námsefni er komið út á vegum skólamálaráðs KÍ. Nú er sjónum beint að þeim atriðum er lúta að námsgögnum og námsefni í hvítbók menntamálaráðherra um umbætur í menntun. Tillögur verkefnahópa menntamálaráðuneytis í þessum efnum eru skoðaðar ofan í kjölinní heftinu sem er það sjöunda í röð umræðuheft er fjalla um stefnu, áherslur og tillögur að útfærslum eins og þær birtast í hvítbók menntamálaráðherra um umbætur í menntun, tillögum um aðgerðir og ákvörðunum um framkvæmd. 

Í þessu nýjasta Umræðuhefti er dregin upp staðan á innleiðingu menntastefnu í lögum og námskrám skólastiganna, fjallað er um tillögur hvítbókar um námsefni og námsgögn og þá er í viðauka að finna ýmsar tölulegar upplýsingar um þennan mikilvæga málaflokk. Skólamálaráð setur einnig fram spurningar til umræðu fyrir kennara, skólastjórnendur og skólafólk til að rýna í. 

 

Umræðuhefti skólamálaráðs um menntamál það sem af er árinu 2016: 

 

Skólamálaráð hvetur félagsfólk til að kynna sér umræðuheftið og stuðla að umfjöllun um það. Skólamálaráð fagnar öllum ábendingum og þönkum um efnið. Pistlar sem berast verða birtir í miðlum KÍ.