Hvatningarverðlaun á degi gegn einelti

Verðlaunin komu í hlut Guðríðar Aadnegard, námsráðgjafa og umsjónarkennara við Grunnskólann í Hveragerði.
Áttundi nóvember síðastliðinn var helgaður baráttunni gegn einelti. Við hátíðlega athöfn í Rimaskóla voru veitt hvatningarverðlaun til einstaklings sem þótt hefur leggja mikilvægt framlag til baráttunnar. Verðlaunin komu í hlut Guðríðar Aadnegard, námsráðgjafa og umsjónarkennara við Grunnskólann í Hveragerði.
Guðríður þykir einkar góð fyrirmynd sem lagt hefur mikið af mörkum til þess að skapa jákvæða menningu í skóla sínum. Þá hefur hún einnig unnið af kappi fyrir íþróttahreyfinguna og hafa störf hennar þar einkennst af sama metnaði, virðingu og hlýju fyrir börnum og öðru samferðafólki.
Aðstandendur verðlaunanna eru Heimili og skóli, landssamtök foreldra, Ekkert hatur, verkefni gegn hatursorðræðu, og SAFT, vakningarátak um örugga og jákvæða tölvu- og nýmiðlanotkun barna og unglinga á Íslandi.
Kennarasamband Íslands óskar Guðríði hjartanlega til hamingju með viðurkenninguna!