Hvar liggja mörkin?

Að virkja viðbragðsáætlun og bæta sálrænt öryggi.
Á vef Kennarasambandsins má finna sniðmát fyrir atvikaskráningu, áhættumat og viðbragðsáætlun vegna ofbeldis í skólum bæði fyrir skólastjórnendur og starfsfólk í skólum. Enn fremur má finna gagnlegar upplýsingar um efnið á sama stað, sem og upplýsingar um fyrirbyggjandi aðgerðir vegna endurtekins ofbeldis. Sniðmát vegna ofbeldismála er frá 2020 og hefur mælst vel fyrir. Sniðmátið er í stöðugri endurskoðun og kom ný útgáfa á vef KÍ núna í febrúar.
Stjórnendur, trúnaðarmenn og allt starfsfólk skóla er hvatt til að kynna sér efnið. Mikilvægt er að skólar nýti sér verkfærin, vinni áhættumatið og virki viðbragðsáætlun.
Sniðmát fyrir stjórnendur er eins og gefur að skilja aðeins yfirgripsmeira en sniðmát fyrir starfsfólk en sömu efnisþætti er að finna í þeim báðum. Í sniðmáti fyrir starfsfólk skóla eru fjórir efnisþættir en sex í sniðmáti fyrir stjórnendur.
Þeir eru:
1. Atvikaskráningarblöð
2. Undirbúningur áhættumats
3. Þarfagreining fyrir áhættumat
4. Leiðbeiningar um sálræna skyndihjálp
5. Leiðbeiningar fyrir starfsmannafund
6. Sniðmát að viðbragðsáætlun
Atvikaskráning
Atvikaskráning hefur aldrei verið mikilvægari, bæði vegna réttinda starfsfólks og í sögulegu tilliti. Skráning atvika, stórra sem smárra, þarf að vera vani innan allra skóla. Atvikaskráning er á ábyrgð stjórnanda sem getur falið öðrum utanumhald. Lögð er áhersla á að atvikaskráning sé nákvæm svo læra megi sem mest af atviki og viðbrögðum. Meta þarf í hvert sinn hve nákvæm skráning er viðhöfð og hvort allt skjalið sé notað. Réttindi starfsfólks ber að virða. Ef ekki er til skráning vegna atviks þar sem áverkar koma fram síðar getur starfsmaður tapað rétti til bóta þar sem atvikaskráning hefur sönnunargildi.
Áhættumat
Samkvæmt vinnuverndarlögum ber atvinnurekandi ábyrgð á að gerð sé skrifleg áætlun um öryggi og heilbrigði á vinnustað sem byggð er á áhættumati. Stuðla þarf að öryggi allra sem í skólanum starfa. Ofbeldi og/eða hótun er áhættuþáttur í vinnuumhverfi starfsfólks skóla sem ekki má vanmeta. Gæta þarf að mörkum hvers og eins og ræða hvar mörkin liggja. Óformleg könnun vinnuumhverfisnefndar KÍ 2019 leiddi í ljós að meira en helmingur grunnskólakennara taldi sig hafa lent í ofbeldisatviki á starfsævinni. Fjöldinn er sláandi en sýnir líka mikilvægi þess að ræða hvar þessi mörk liggja. Hvað er ofbeldi og hvað eru pústrar, hvenær er munnsöfnuður orðinn að andlegu ofbeldi eða hótun? Hvenær er ráðlegt að ganga á milli og aðskilja nemendur í slag? Það gerir starfsfólk skóla umhugsunarlaust og sem betur fer, en getur hlotið skaða af. Um þetta allt þarf að myndast sameiginlegur skilningur sem gera þarf opinberan innan skólasamfélagsins alls, að foreldrum meðtöldum. Áhættumat útlistar hvar hættan er falin, gefur okkur tækifæri til að ræða áhættuþætti og undirbúa okkur bæði andlega og líkamlega til að takast á við þá með réttum hætti.
Í sniðmátinu má bæði finna mat á hótunum og ofbeldi (2) og þarfagreiningu fyrir áhættumat (3). Starfsfólk tekur þátt í vinnslu matsins enda er starfsfólk beðið um að ræða sín á milli fjóra þætti sem snúa að atvikum. Umræður geta farið fram innan deilda eða á starfsmannafundum svo fá megi fram niðurstöður. Eftir hópavinnuna verður einhver að vera ábyrgur fyrir því að vinna úr niðurstöðunum svo nýta megi þær í frekari vinnu við áhættumatið. Þarfagreining fyrir áhættumat er eins konar gátlisti sem stjórnandi getur nýtt til að sjá hvert vinnan stefni og hverju sé lokið. Þetta eyðublað má draga fram reglulega í ferlinu og eftir það svo sjá megi hvað er á döfinni.
Sálræn skyndihjálp
Sálræn skyndihjálp hefur ekki farið hátt. Við höfum auðvitað stutt við þá sem lenda í árekstrum og hjálpað en höfum við gert það markvisst? Sálræn skyndihjálp nær til þess að vera vakandi fyrir breyttri hegðun, lesa hegðun þess hóps sem saman er kominn og aðstoða eftir þörfum. Við þurfum að vera tilbúin að koma einstaklingum út úr aðstæðum sem skapast og vita hvert á að fara.
Þegar farið er í gegnum skref sálrænnar skyndihjálpar er heppilegt að skrá niður málavexti sem nýta má í atvikaskráningu. Mikilvægt er að stjórnandi sé upplýstur frá upphafi og viðbragðsáætlanir og verkferlar virkjaðir.
Forvarnir
Um leið og farið er að ræða þá áhættuþætti sem finnast innan skóla eru forvarnir hafnar. Meðvitundin ein skilar okkur áleiðis en ekki á leiðarenda. Mikilvægt er að allt starfsfólk skólans taki þátt í undirbúningi áhættumatsins og að unnið sé markvisst að því að bæta sálrænt öryggi starfsfólks og nemenda. Oft er talað um forvarnaátak en forvarnir verða að vera stöðugar.
Átak getur jú leitt til bóta en hvað gerist þegar því er lokið? Þegar hætt er að ræða það sem bæta þarf? Meðvitund skiptir hér öllu. Á meðan allir eru vakandi fyrir þeim áhættuþáttum sem finnast og þeir eru ræddir reglulega (hér dugar kannski að setja málið á dagskrá eins til tveggja funda á ári eftir að viðbragðsáætlunin er virkjuð) þá er markmiðinu náð. Í sniðmátinu má finna leiðarvísi og tillögu að upphafi starfsmannafundar. Oft er betra að stjórnandi finni þá leið sem hentar starfsfólkinu og ekki er mælt með því að textinn sé lesinn blindandi af blaðinu (5) þar sem laga þarf hann að aðstæðum innan hvers skóla. Spurningarnar eru til viðmiðunar en markmiðið er alltaf að fá starfsfólk til að ræða áhættuþáttinn ofbeldi og hótanir.
Hver skóli þarf að hafa skýrar línur um hvar mörk ofbeldis og hótana liggja. Mikilvægt er að allir, bæði starfsfólk og nemendur, taki þátt í því að smíða ramma utan um hugtökin hótun og ofbeldi svo meðvitund vakni meðal allra. Þegar allir vita hvað er ofbeldi og hvenær hótun er alvarleg verða mörkin skýrari. Það hjálpar öllum þegar mörkin eru ljós, sérstaklega börnum. Rannsóknir á Norðurlöndunum sýna að um leið og umræða um hótanir og ofbeldi gegn kennurum fer af stað og mörk ofbeldis eru skilgreind innan skóla, fækkar atvikum og öryggi allra eykst.
Viðbragðsáætlun
Viðbragðsáætlunina þarf að virkja. Það er í valdi hvers skóla að meta áhættuþáttinn ofbeldi og hótanir og kynna æskileg viðbrögð, hver gerir hvað og hvernig. Um leið og allir vita hvernig ber að bregðast við og hvenær, líður öllum betur og sálrænt öryggi eykst. Að virkja viðbragðsáætlun merkir að fela einhverjum umsjón með henni og kynna hana meðal starfsfólks. Einnig merkir það að allir vita að til er viðbragðsáætlun og hvernig ber að bregðast við atvikum af þessu tagi. Fumlaus og skjót viðbrögð geta einmitt afstýrt þungum árekstrum. Viðbragðsáætlun þarf að endurskoða árlega enda þarf áhættumat að vera í stöðugri þróun. Drög eða sniðmát að viðbragðsáætlun má finna aftast í pakkanum (6). Mikilvægt er að vinna þetta skjal vandlega og kynna það fyrir starfsfólki.
Sálrænt öryggi
Um leið og starfsfólk veit hvernig ber að bregðast við þeim áhættuþáttum sem fyrirfinnast í skólanum líður því betur og streita minnkar. Sálrænt öryggi er hugtak sem hefur verið notað í mannauðsstjórnun. Rannsóknir hafa sýnt að í þeim teymum þar sem ríkir sálrænt öryggi verður til meiri þekking meðal starfsfólks, það deilir frekar reynslu og hugmyndum og lærir þar með frekar hvert af öðru. Talað hefur verið um að þekkingarmiðlun sé mest þar sem starfsfólk þori að ræða mistök sín og deila þeim þannig að allir innan hópsins geti lært af þeim.
Rannsóknir hafa sýnt að í þeim teymum þar sem ríkir sálrænt öryggi verður til meiri þekking meðal starfsfólks, það deilir frekar reynslu og hugmyndum og lærir þar með frekar hvert af öðru.
Oft er sálrænu öryggi ruglað saman við traust. Í trausti felst t.d. að treysta fagmennsku einhvers á vinnustað en sálrænt öryggi lýtur að því að starfsfólk segir frá hugmyndum sínum, áliti á úrlausnum verkefna og skoðunum þrátt fyrir hættuna á faglegum ágreiningi og veit að þeim er tekið af opnum huga og þær ræddar. Þetta má yfirfæra á vinnustaði.
Í stuttu máli eru einkenni vinnustaðar þar sem starfsfólk upplifir sálrænt öryggi þau að starfsfólk er upplýst. Til eru skýrar viðbragðsáætlanir og starfslýsingar, vinnustaðurinn telst heilbrigður og samskipti allra, bæði stjórnenda og starfsfólks, eru opin, einlæg og góð. Gagnkvæm virðing ríkir og jafnrétti er sýnilegt bæði í orði og verki. Rannsóknir sýna að starfsánægja er meiri á vinnustöðum þar sem ríkir sálrænt öryggi, frammistaða betri og fólk helgar sig frekar starfi og vinnustað. Hér er því til mikils að vinna.