Hvar eru allar konurnar?

Fréttir|4. maí 2016

Húsfyllir var á fundi jafnréttisnefndar KÍ á veitingahúsinu Nauthóli sem fram fór miðvikudaginn 27. apríl síðastliðinn. Yfirskrift fundarins var Konur tökum þátt! – valdefling, stéttarvitund, sjálfstyrking. 

Til fundarins var blásið af hálfu jafnréttisnefndar KÍ en þátttaka kvenna í störfum stéttarfélaga og hlutfall kvenna og karla í trúnaðarstörfum fyrir kennarasamtökin hefur víða verið ofarlega á baugi. Þar hallar á konur. Í Alþjóðasamtökum kennara, Education International (EI), eru til dæmis konur 75 prósent félaga en á sama tíma eru karlar 75 prósent þeirra sem stýra þessum stórum samtökum.

Sú stefna er almenn í stéttarfélögum kennara í Evrópu að hlutfall kvenna í stjórnunarstörfum sé í samræmi við hlutfall þeirra í sambandinu sjálfu. Hlutfall kvenna er að meðaltali 71 prósent í evrópskum kennarafélögum á móti körlum sem eru 29 prósent. Það er fjarri lagi að kennarafélögin í Evrópu nái stefnumarkmiðum sínum því heilt yfir eru konur um fjórðungur þeirra sem gegn stjórnunarstöðum. Það má líka geta þess að þrátt fyrir að félagsmenn yngri en 40 ára sé enn frekar konur þá eru stjórnendur í þessum hópi mun oftar karlar.

Hvers vegna taka ekki fleiri konur þátt í störfum stéttarfélaga?

Þessi mál voru til umræðu á ráðstefnunni „Konur í stéttarfélögum og menntun; frá orðum til athafna“, sem haldin var á vegum EI í Dublin fyrir tveimur árum. Tarja Halonen, fyrrverandi forseti Finnlands, ávarpaði ráðstefnuna og sagði stéttarfélög gegna mikilvægu hlutverki í að auka jafnrétti. Hún minnti á að kynhlutverk og staðalmyndir eru mannanna verk og þess vegna er hægt að breyta þeim. Stéttarfélögin verða að taka þátt í því.
Það er einmitt þetta sem vakti fyrir jafnréttisnefnd KÍ þegar blásið var til fundarins í Nauthóli. Hvernig getum við virkjað fleiri konur til þátttöku í störfum KÍ? Félagsmenn KÍ eru rúmlega tíu þúsund; 8.311 konur og 2.047 karlar. Konur eru því 81% stéttarinnar og karlar 19%. Kynjahlutföll í forystu KÍ endurspegla ekki þetta hlutfall. Jafnréttisnefnd KÍ telur mikilvægt að ræða þessa spurningu og velta upp áhugaverðum vinklum eins og hugmyndum um völd, stéttarvitund, kynhlutverk og sjálfstraust.

Af aðferðum drottnunar
Frummælendur á fundi jafnréttisnefndar í Nauthóli voru Drífa Snædal, framkvæmdastjóri Starfgreinasambandsins, Guðríður Arnardóttir, formaður Félags framhaldsskólakennara, og Hanna Björg Vilhjálmsdóttir framhaldsskólakennari. Fundarstjóri var Guðrún Jóhannsdóttir, formaður jafnréttisnefndar KÍ og grunnskólastjóri.

Drífa Snædal hóf ræðu sína á að segja frá því hvernig valdamisvægi hefði birst sér í störfum sínum innan verkalýðshreyfingarinnar. Hún sagði kynjafræðina hafa verið sér mikla stoð en að sínu mati væri sama valdamisvægi á milli stétta og á milli kynja. Hún sagði vissulega vera mun á körlum og konum. Munurinn kristallaðist meðal annars í mismunandi viðhorfum kynjanna þegar spurt væri í hverju fjárhagslegt sjálfstæði fælist. Konur svöruðu því til að fjárhagslegt sjálfstæði væri að geta séð sér og börnum sínum farborða. Karlar svöruðu hins vegar með þeim orðum að fjárhagslegt sjálfstæði fæli í sér að vera óháður vinnuveitanda sínum; að reka sitt eigið fyrirtæki.
Drífa vék einnig máli sínu að kenningum Berit Ås, sem var áberandi í norskum stjórnmálum á fyrri tíð en hún setti fram skilgreiningu á því sem hún kallaði „drottnunaraðferðirnar“. Það eru aðferðir sem viðhalda valdaójafnvægi í samskiptum og samstarfi.

Eitt af því sem Berit Äs nefnir er að gera fólk ósýnilegt. Drífa segir að þar eigi hún við þegar horft er framhjá framlagi kvenna í umræðum, hvort sem er á opinberum vettvangi eða í persónulegum samtölum. Framkoman sé til þess fallin að konum finnist framlag þeirra og skoðanir léttvægar og skipti ekki máli. Önnur aðferð af svipuðum meiði er að gera fólk hlægilegt.

Þá sagði Drífa konur oft standa höllum fæti vegna þess að upplýsingum væri leynt; konur hefðu ekki sama aðgang að upplýsingum og karlar. Þetta ætti sér stað á vinnustöðum, í stjórnmálum og félagslífi. Hægt er kynna sér Berit Ås hér.

Drífa sagði að það sem hefði gagnast henni best við að takast á við valdaójafnvægið væri að vera sýnileg og þora að hafa frumkvæði. Það væri mikilvægt að þekkja birtingarmyndir valdtöku og þekkja eigið vald. Oft gæti reynst vel að taka sig persónulega út úr jöfnunni og koma fram sem talsmaður málstaðsins. Einnig sé mikilvægt að muna að fjölbreytni skapar valddreifingu og því mikilvægt að vinna að og tryggja aðkomu allra að borðinu, fólki af ólíku kyni, aldri, stöðu og þjóðerni.

Líkamsstaðan skiptir máli
Guðríður Arnardóttir, formaður Félags framhaldsskólakennara, sagði frá reynslu sinni af pólitísku starfi í átta ár og svo síðustu tveimur árum í stéttabaráttu. Hún fjallaði um kynjaskiptingu innan kennarasamtakanna og sagði áhyggjuefni að körlum færi fækkandi í kennarastétt. Það væri staða sem ekki væri hægt að sætta sig við; aldrei væri gott að annað kynið væri allsráðandi í stétt á borð við kennara. Slagsíða í embættum og nefndum á vegum FF varð Guðríði að umræðuefni og hún sagði að af 78 félagsmönnum FF, sem gegna formennsku í félagsdeild eða trúnaðarmennsku, væru 33 konur, eða 42 prósent. Á sama tíma væri hlutfall kvenna í FF 58 prósent og því væri ekki hægt að sætta sig við konur væru í minnihluta í trúnaðarstörfum. Guðríður spurði: „hvar eru allar konurnar?“ og sagði frá ýmsu sem hefði haft áhrif á hana sjálfa hvað þátttöku varðar og hvað hún hefur lært af reynslunni. Guðríður lauk ræðu sinni á að hvetja konur til að bjóða fram krafta sína í þágu kennarasamtakanna.

Hanna Björg Vilhjálmsdóttir framhaldsskólakennari var síðustu á mælendaskrá. Hún hóf mál sitt á að tala um almennt um vald og hvernig fólk, oftast konur, settu sig í valdalausa stöðu. Hanna sagði frá Amy Cuddy sem hefur rannsakað áhrif líkamsstöðu í samskiptum. Hún sagði niðurstöðu Cuddy benda til að líkamsstaða fólks í kringum okkur hefði áhrif á hvaða augum við lítum viðkomandi persónu. Það sé ekki fyrst og síðast það sem fólk segir sem hefur áhrif á hvað okkur finnst heldur hvernig fólk talar og hver líkamsstaðan er. „Við horfum og skynjum frekar en að hlusta,“ sagði Hanna Björg. Það sé því mikilvægt að læra og þekkja líkamsstöður valds og valdaleysis og æfa sig í valdastöðum.
Hanna Björg lauk erindi sínu með því að fá fundargesti til að standa upp og lyfta höndum upp. Tveggja mínútna æfing af þessu tagi virkar sem valdefling og viðkomandi fær aukið sjálfstraust.

Fyrirlestur Amy Cuddy á Ted.com.

Myndir frá fundinum á Facebook.