Hvaða hafa stjórnmálaflokkarnir að segja um menntamál?

Fréttir|21. október 2016

Menntamál hafa ekki verið mikið til umræðu í yfirstandandi kosningabaráttu þrátt fyrir að margvísleg vandamál blasi við í skólum landsins. Kennarasamband Íslands hefur lagt nokkrar lykilspurningar fyrir stjórnmálaflokkana sem bjóða fram til þings og eru svör þeirra birt hér fyrir neðan. Með þessu vill Kennarasambandið leggja sitt af mörkum til að uppýsa kjósendur um helstu áherslur flokkanna í menntamálum.

{slider Alþýðufylkingin}

Þegar tölur um kynja- og aldurssamsetningu í kennarastéttinni eru skoðaðar blasir við brýn þörf fyrir nýliðun. Fjölmargir kennarar eru að hætta störfum vegna aldurs og nú þegar vantar 1.300 leikskóla-kennara til að uppfylla ákvæði laga um hlutfall stöðugilda leikskólakennara. Aðsókn í kennaranám helst engan veginn í hendur við nýliðunarþörfina. Kynjahlutfallið í stéttinni hefur breyst hratt og eru konur um 80% félagsmanna Kennarasambands Íslands.
1. Hvað vill þinn flokkur gera til að leysa brýna nýliðunarþörf í kennarastéttinni?
2. Hvaða leiðir vill þinn flokkur fara til að fjölga körlum í kennarastétt?

Úr stefnuskrá Alþýðufylkingarinnar: "Skólafólk þarf að geta nýtt hæfileika sína í starfi og fengið mannsæmandi laun fyrir það. Menntun skólafólks á öllum skólastigum þarf að meta drjúgt til að umbuna þeim sem sækja sér aukna þekkingu á uppeldis- og menntamálum.

Það þarf að fjölga leikskólakennurum — það er á könnu sveitarfélaganna, en það þarf að gerast. Það verður aðeins gert með því að auka fjárframlögin: hækka launin þannig að ófaglærðir leikskólastarfsmenn fái hvata til að mennta sig, og faglærðir leikskólakennarar halist í vinnu á leikskólum.

Þökk sé harðri baráttu framhaldsskólakennara hafa þeir náð verulegum kjarabótum fyrir sína stétt. Það er leiðin sem aðrar stéttir skólafólks geta þurft að vera tilbúnar fyrir: leið stéttabaráttu, til að rétta hlut sinn."

Laun kennara haldast engan veginn í hendur við sífellt meiri kröfur um aukna menntun. Við sjáum ekki að MS gráða sé almennt nauðsynleg til kennslu á lægri skólastigum og viljum falla frá henni. Þá ættu laun kennara að vera þau sömu eða amk mjög svipuð burtséð frá skólastigum.

Þessi barátta verður aldrei unnin innan veggja alþingis, heldur með stöðugri og vakandi kjarabaráttu kennara á öllum skólastigum. Í því sambandi verða kennarar að vera vel á verði gagnvart SALEK öflunum, sem stefna að því ljóst og leynt að skerða verkfalls- og samningsréttinn.

Í lögum og námskrám leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla er skóli fyrir alla í forgrunni, velferð barna og ungmenna og menntun án aðgreiningar. Þessi mikilvægu ákvæði hafa ekki komist til framkvæmda.
3. Hvernig vill þinn flokkur vinna að skóla fyrir alla?
4. Hvernig vill þinn flokkur vinna að aukinni velferð barna og ungmenna?
5. Hvernig vill þinn flokkur vinna að menntun án aðgreiningar?

Úr stefnuskrá Alþýðufylkingarinnar: „Aðalnámskrá grunnskóla og framhaldsskóla á ekki að vera samin af stjórnmálamönnum heldur skólamönnum. Menntun á að vera eftirsóknarverð bæði fyrir nemendur og skólafólk. Nemendur þurfa að hafa gaman af og sjá gagnsemina í því að læra hugsun, skilning, samskipti, virðingu, samvinnu, gagnrýni og margvíslega aðra kunnáttu. Námið á að snúast um getu og þroska nemandans, ekki að undirbúa hann fyrir að vinna eitthvert tiltekið starf, heldur til að spjara sig sem best, sama hvert leiðin liggur í lífinu.“

„Alþýðufylkingin vill gefa opinberum skólum á öllum stigum meira svigrúm til að bjóða upp á sérhæfingu, svo skólakerfið geti mætt þörfum og smekk fleiri nemenda (og kennara). Til dæmis skóla sem bjóða upp á sérlega mikil tækifæri til íþróttaiðkunar, tónlistariðkunar, sköpunar, umönnunar dýra, útiveru eða verklegra mennta, svo nokkuð sé nefnt.

Við viljum nýja og fjölbreyttari móðurmálskennslu þar sem meiri áhersla verði lögð á sköpun, tilfinningu fyrir málinu og ánægju af því.

Alþýðufylkingin vill að heimspeki sé gerð að skyldunámsgrein á öllum skólastigum. Við viljum líka að efsti bekkur grunnskóla byrji að búa nemendur undir bílpróf og kenni undirstöðuatriði þjóðfélagsins, þannig að hver 15-16 ára manneskja skilji aðalatriði í stjórnmálum, í efnahagsmálum, auk mannréttinda og umhverfismála.

Öll grunnskólabörn þurfa að fá heiðarlega kennslu um áhrif eiturlyfja, í stað einhliða áróðurs. Skilningur er betri forvörn heldur en ótti.

Öll grunnskólabörn þurfa að fá spennandi fræðslu um eðlilegt kynlíf áður en þau læra óeðlilega hluti af klámi. Það þarf að gerast snemma, því þau byrja að stelast fyrr en við höldum."

„Alþýðufylkingin beitir sér fyrir jöfnum aðgangi allra að skólakerfinu. Brottfall nemenda af erlendum uppruna úr framhaldsskólum er ískyggilega mikið. Til að stemma stigu við því er nauðsynlegt að börn innflytjenda fái sérstakan stuðning í skólakerfinu og nám í móðurmálinu sem dugar þeim til að halda því við svo að það verði þeim og samfélaginu styrkur en ekki veikleiki.

Enn fremur þarf að afnema lokun opinberra framhaldsskóla fyrir 25 ára og eldri."

Ofangreint verður aðeins gert með félagsvæðingu menntakerfisins. Það þýðir m.a. að skólagjöld (þmt námsgagnagjöld og fæðispeningar) verða lögð niður á öllum skólastigum og ríkið hættir að borga með einkaskólum, sem reknir eru með gróða að markmiði. Félagsvæðing innviða samfélagsins næst því aðeins að byrjað sé á fjármálakerfinu.

Í lögum og námskrám grunnskóla og framhaldsskóla er kveðið á um rétt nemenda til að njóta náms- og starfsráðgjafar af aðilum sem uppfylla skilyrði laga um náms- og starfsráðgjafa. Lengi hefur verið bent á mikilvægi náms- og starfsráðgjafar fyrir velferð nemenda og unnið hefur verið að stefnumótun en stjórnvöld hafa ekki fylgt henni eftir.
6. Hvað vill þinn flokkur gera til að uppfylla lagaskyldur við nemendur um rétt þeirra til náms- og starfsráðgjafar?

Það breytir engu hvað sett er í námsskrár eða lög ef ekki fylgir fjármagn. (Núverandi aðalnámsskrá framhaldsskóla er enn eitt dæmið um eitthvað, sem átti að gera list- og verknámi hærra undir höfði en gekk að sjálfsögðu ekki eftir þar sem fjármagnið vantaði). Svarið við þessu er félagsvæðing eins og í svo mörgum tilfellum.

Í lögum um framhaldsskóla kemur fram með skýrum hætti að mæta eigi kostnaði nemenda vegna námsgagna.
7. Hvað vill þinn flokkur gera til að uppfylla þessar lagaskyldur við nemendur?

Aukið fjármagn með félagsvæðingu. Það er nóg til af peningum í þjóðfélaginu, við þurfum að hindra að auðmenn hirði þá ekki að mestu leyti. Með því að félagsvæða fjármálakerfið og banna vaxtaokur má koma í veg fyrir það að miklu leyti en enn fremur þarf stórauknar gjaldtökur af nýtingu auðlinda þjóðarinnar.

Í lögum og námskrám leik-, grunn- og framhaldsskóla er meðal annars lögð áhersla á sveigjanleg skil milli skólastiga sem leiðir af sér að lengd námstíma frá upphafi leikskóla til loka framhaldsskóla getur verið mismunandi út frá þörfum barna og ungmenna. Í tengslum við fjárlög 2015 tók menntamálaráðherra einhliða ákvörðun um styttingu náms og námstíma í framhaldsskólum og um takmarkanir á aðgengi að framhaldsskólum á grundvelli aldurs.
8. Hvernig sér þinn flokkur fyrir sér sveigjanleg skil milli skólastiga?
9. Hver er afstaða þíns flokks til takmarkana á aðgengi að framhaldsskólum á grundvelli aldurs?

Við viljum stórauka sveigjanleikann en það verður að gerast í samráði við KÍ og einstaka skóla. Það er ekkert víst að sama módel henti alls staðar og því verður sveigjanleikinn jafnvel að geta verið mismunandi eftir því hvaða skólar eiga í hlut (t.d. í fámennum byggðarlögum þar sem langt er á milli skóla).
Afnema á allar takmarkanir að framhaldsskólunum. Enn fremur þarf að lengja framhaldsskólann aftur í 4 ár, enda var hann mjög sveigjanlegur hvað námsframvindu og námslok varðaði (sérstaklega áfangaskólar).


Tónlistarskólakennarar standa eina ferðina enn í erfiðri kjaradeilu en á tímabilinu 2008 til 2016 hefur launabilið milli þeirra og annarra kennarahópa breikkað stöðugt, þeim fyrri í óhag, þrátt fyrir fullyrðingar opinberra aðila um sambærileg laun fyrir sambærilega menntun og störf.
10. Hver er afstaða þíns flokks til mats á menntun og störfum tónlistarskólakennara til launa samanborið við aðra sambærilega kennarahópa?
11. Hver er afstaða þíns flokks til lögverndunar starfsheitisins tónlistarskólakennari?

Matið á að vera það sama og við erum fylgjandi lögvernduninni.
 

{slider Björt framtíð}

Þegar tölur um kynja- og aldurssamsetningu í kennarastéttinni eru skoðaðar blasir við brýn þörf fyrir nýliðun. Fjölmargir kennarar eru að hætta störfum vegna aldurs og nú þegar vantar 1.300 leikskóla-kennara til að uppfylla ákvæði laga um hlutfall stöðugilda leikskólakennara. Aðsókn í kennaranám helst engan veginn í hendur við nýliðunarþörfina. Kynjahlutfallið í stéttinni hefur breyst hratt og eru konur um 80% félagsmanna Kennarasambands Íslands.

1. Hvað vill þinn flokkur gera til að leysa brýna nýliðunarþörf í kennarastéttinni?

Björt framtíð telur nauðsynlegt að bæði skólastig séu fjármögnuð að fullu og að þar þurfi að huga að endurskoðun á tekjuskiptingu ríkis og sveitarfélaga. Löggjafinn hefur gert ýmsar kröfur á skólastigin sem rekin eru af sveitarfélögunum, án þess að tryggt sé að tekjur fylgi þeim kröfum. Því þarf að endurskoða og breyta. Það er verkefni sveitarfélaganna að reka skóla og gera þá að aðlagandi viðverustöðum fyrir börn og starfsfólk en ríkisvaldinu ber að búa þannig um hnútana að sveitarfélögin geti staðið sómasamlega að verki. Nú blasir það t.d. við að fæðingarorlof verður lengt í skrefum í 12 mánuði á næstu misserum. Það mun setja aukinn þrýsting á sveitarfélögin að taka við enn yngri börnum. Það er mikilvægt að þá endurtaki sig ekki sagan frá tíunda áratugnum og leikskólar verði reistir í stórum stíl án þess að huga að uppbyggingu innviða eins og mannafla og vel menntuðu starfsfólki. Sveitarfélögunum ber ekki lagaleg skylda til að fjármagna rekstur leikskóla. Þar er um að ræða verkefni sem þau hafa tekið að sér án þess að fá neina fjármögnun þar á móti.

Björt framtíð telur að ríkið þurfi að koma að rekstri og fjármögnun leikskólanna með því að leggja sveitarfélögunum til nýja eða aukna tekjustofna. Þá verða skólarnir m.a. betur í stakk búnir til að gera leik- og grunnskólana meira aðlagandi sem vinnustaði.

Tryggja þarf að leik- og grunnskólakennarar njóti besta grunnnáms sem völ er á með meira vettvangsnámi og betri símenntun til að tryggja að nemendur njóti alltaf bestu kennslu sem unnt er að veita og endurspeglar þarfir samtímans og samfélagsins. Starfsaðstæðum leikskólakennara þarf þó að forgangsraða framar. Leikskólakennarar hafa sótt meiri símenntun en margar aðrar stéttir en starfsaðstæðurnar þeirra hafa lítið sem ekkert breyst. Það hefur stuðlað að því að leikskólakennarar hafa margir hverjir menntað sig út úr leikskólanum sem starfsvettvangi. Þrengsli á leikskólum eru einnig viðvarandi vandamál sem hefur áhrif á vinnuumhverfi leikskólakennara og nemenda þeirra. Slíkt er óásættanlegt.

Björt framtíð vill beita sér fyrir því að ríkið, sveitarfélögin, háskólarnir, stéttarfélögin og starfandi kennarar myndi stefnumótunar- og viðbragðsteymi sem mótar heildarstefnu í málefnum leik- og grunnskóla í þeim tilgangi að til langrar framtíðar verði örugglega boðið upp á nám, vinnuaðstöðu og umgjörð utan um skólastarf sem stenst kröfur nútímans um góðan grunn fyrir frekara nám og lífið.
 

2. Hvaða leiðir vill þinn flokkur fara til að fjölga körlum í kennarastétt?

Björt framtíð vill stuðla að margbreytileika í samfélaginu og telur jafnréttismál vera hluta af mannréttindum. Vitað er að einstaklingar mótast af umhverfi sínu og festast gjarna í viðjum vanans – þess vegna er mikilvægt að brjóta upp staðalímyndir á kyn – æskilegt er að kennslukonur jafnt sem kennslukarlar starfi á öllum skólastigum.

  • Björt framtíð telur mikilvægt að gert verði átak í að hvetja karla til að stunda kennaranám, t.d. í formi námsstyrkja.
  • Bæta starfsaðstæður kennara og þar með barna, ekki síst leikskólakennara.
  • Stuðla að breyttu viðhorfi í samfélaginu gagnvart kennslustarfi m.a. með kynningum ofl.

 

Í lögum og námskrám leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla er skóli fyrir alla í forgrunni, velferð barna og ungmenna og menntun án aðgreiningar. Þessi mikilvægu ákvæði hafa ekki komist til framkvæmda. 
3. Hvernig vill þinn flokkur vinna að skóla fyrir alla? 

Björt framtíð sér velmenntaða og metnaðafulla kennara sem bera virðingu fyrir sérhverjum einstaklingi vera lykil þættir í skólastarfi fyrir alla. Björt framtíð (BF) leggur áherslu á að stefnan um skóla án aðgreiningar þýðir að það þarf að mæta einstaklingsbundnum þörfum allra nemenda til að tryggja að þeir fái góða og innihaldsríka menntun sem geri þeim kleift að auka lífgæði sín og tækifæri til fullrar þátttöku í samfélaginu.


4. Hvernig vill þinn flokkur vinna að aukinni velferð barna og ungmenna? 

Björt framtíð telur mikilvægt að allir samfélagsþegnar hafi aðgang að þjónustu, hvort sem þeir eru ríkir eða ekki, frískir eða veikir. Við viljum að allir einstaklingar, hvort sem þeir glíma við líkamlegar, félagslegar eða andlegar hindranir, eigi möguleika á sjálfstæðu lífi, með reisn og fái til þess aðstoð ef þarf. Við viljum skólar lagi sig enn frekar að börnunum, þörfum þeirra og áhugasviði, námsánægja sé höfð að leiðarljósi og nemendur fái notið styrkleika sinna. 


5. Hvernig vill þinn flokkur vinna að menntun án aðgreiningar?

Björt framtíð sér vel menntaða og metnaðafulla kennara sem bera virðingu fyrir sérhverjum einstaklingi semlykilþátt í menntun án aðgreiningar. Við teljum að nauðsynlegt sé einnig að kennarar og skólastjórnendar hafi til hliðsjónar mannréttindasamninga eins og Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks sem og leik- grunn- og framhaldskólalögin og námskrár þeirra.

 

Í lögum og námskrám grunnskóla og framhaldsskóla er kveðið á um rétt nemenda til að njóta náms- og starfsráðgjafar af aðilum sem uppfylla skilyrði laga um náms- og starfsráðgjafa. Lengi hefur verið bent á mikilvægi náms- og starfsráðgjafar fyrir velferð nemenda og unnið hefur verið að stefnumótun en stjórnvöld hafa ekki fylgt henni eftir. 
6. Hvað vill þinn flokkur gera til að uppfylla lagaskyldur við nemendur um rétt þeirra til náms- og starfsráðgjafar? 

Björt framtíð vill að áfram sé unnið að stefnumótun náms- og starfsráðgjafa í skólum og það verkefni sé klárað með samtali við náms- og starfsráðgjafa.
Auka þarf vægi náms- og starfsráðgjafa til muna í grunnskólum og styðja betur við stöðu þeirra í framhaldsskólum.
Styðja þarf náms- og starfsráðgjafa í skólum til verka með því að opna þverfaglegar leiðir, auka samstarf við heilsugæslu og aðra aðila sem koma að málefnum nemenda.


Í lögum um framhaldsskóla kemur fram með skýrum hætti að mæta eigi kostnaði nemenda vegna námsgagna. 
7. Hvað vill þinn flokkur gera til að uppfylla þessar lagaskyldur við nemendur?

Í 51. gr. laga um framhaldsskóla frá 2008 segir: Í fjárlögum ár hvert skal tilgreind sú fjárhæð sem veitt er til að mæta kostnaði nemenda vegna námsgagna. Ráðherra setur reglur um skiptingu fjárins og fyrirkomulag þessa stuðnings.
Björt framtíð telur mikilvægt að farið sé eftir þeim lögum sem sett eru í landinu. Að því sögðu eigum við að mæta kostnaði nemenda vegna námsgagna í bæði grunn – og framhaldsskólum. Það er ekki aðeins vegna reglugerðar heldur líka vegna umhverfissjónarmið. Mikilvægt að minna á að börn eiga aldrei að líða skort! Ein ástæða brotthvarfs úr framhaldsskólum er vegna kostnaðar, það reynist ungmennum dýrt að fara í framhaldsskóla. Þá sérstaklega ungmennum sem búa úti á landi og hafa ekki tök á því að sækja framhaldsskóla í eigin sveitafélagi. Ríkið á að taka ábyrgð í þessum málum og fara að fylgja lögum.

 

Í lögum og námskrám leik-, grunn- og framhaldsskóla er meðal annars lögð áhersla á sveigjanleg skil milli skólastiga sem leiðir af sér að lengd námstíma frá upphafi leikskóla til loka framhaldsskóla getur verið mismunandi út frá þörfum barna og ungmenna. Í tengslum við fjárlög 2015 tók menntamálaráðherra einhliða ákvörðun um styttingu náms og námstíma í framhaldsskólum og um takmarkanir á aðgengi að framhaldsskólum á grundvelli aldurs.
8. Hvernig sér þinn flokkur fyrir sér sveigjanleg skil milli skólastiga?

Björt framtíð er opin fyrir því að skoða sveigjanleika skils á milli skólastiga út frá fjölbreyttum sjónarhornum. Í ljósi þess að nánast öll börn stunda leikskólanám í dag, má velta fyrir sér hvort innihald náms í 1. bekk á grunnskólastigi eigi að víkja og innihald náms 2. bekkjar verði fyrir 1. bekk. Einnig má velta fyrir sér hvort færa eigi nám 1. bekkjar grunnskólastigs yfir í leikskóla, hvort 10. bekkur grunnskóla færist yfir í framhaldsskóla og þar verði á ný fjögurra ára framhaldsskólanám. Björt framtíð leggur áherslu á að auka samtal milli skólastiga svo það verði samfella í menntun, frá fyrsta skólastigi til þess síðasta.


9. Hver er afstaða þíns flokks til takmarkana á aðgengi að framhaldsskólum á grundvelli aldurs?

Björt framtíð er frjálslyndur flokkur. Í stefnum okkar segir ávallt að allir eigi að hafa val. Velji einstaklingur sem er kominn yfir þrítugt að fara í framhaldsskóla á honum að gefast tækifæri til þess að velja þann skóla eða þá leið sem honum hugnast. Ekki má hindra aðgengi að úrræðum út frá aldri, kyni, eða annarri breytu.

 

Tónlistarskólakennarar standa eina ferðina enn í erfiðri kjaradeilu en á tímabilinu 2008 til 2016 hefur launabilið milli þeirra og annarra kennarahópa breikkað stöðugt, þeim fyrri í óhag, þrátt fyrir fullyrðingar opinberra aðila um sambærileg laun fyrir sambærilega menntun og störf. 
10. Hver er afstaða þíns flokks til mats á menntun og störfum tónlistarskólakennara til launa samanborið við aðra sambærilega kennarahópa? 

Björt framtíð telur að menntun eigi að skila sér í launaumslagið. Tónlistarkennarar eru með áralangt nám að baki sér sem gerir þá að sérfræðingum í sínu fagi. Það ber að virða.

11. Hver er afstaða þíns flokks til lögverndunar starfsheitisins tónlistarskólakennari?

Björt framtíð telur það jákvætt að tónlistarkennari verði lögverndað starfsheiti. Það sé viss virðingar- og gæðastimpill sem því fylgi. Við fögnum því einnig að samsvarandi nám sé á ný í boði fyrir tónlistarnemendur.
 

{slider Dögun}

Þegar tölur um kynja- og aldurssamsetningu í kennarastéttinni eru skoðaðar blasir við brýn þörf fyrir nýliðun. Fjölmargir kennarar eru að hætta störfum vegna aldurs og nú þegar vantar 1.300 leikskóla-kennara til að uppfylla ákvæði laga um hlutfall stöðugilda leikskólakennara. Aðsókn í kennaranám helst engan veginn í hendur við nýliðunarþörfina. Kynjahlutfallið í stéttinni hefur breyst hratt og eru konur um 80% félagsmanna Kennarasambands Íslands.
1. Hvað vill þinn flokkur gera til að leysa brýna nýliðunarþörf í kennarastéttinni?
2. Hvaða leiðir vill þinn flokkur fara til að fjölga körlum í kennarastétt? 

„Dögun telur mikilvægt að bæta kjör kennara á öllum skólastigum - um leið og starfsskilyrði þeirra verða bætt. Slíkt verður jafnframt að fela í sér að árangur nemenda batni - bæði sýnilegur árangur með bættri ástundun og öflugri framvindu – og einnig þannig að líðan nemenda og lífsgæði í skólum batni. Öflugt sjálfsmat skóla og markvissar umbótaáætlanir þurfa að liggja til grundvallar – og þróunarsamningar sem stjórnendur einstakra skóla bera ábyrgð á að útfæra í virku samstarfi við kennara og foreldra.“

Launaþróun er algert lykilatriði til þess að eðlileg endurnýjun verði í skólastarfi og nýir kennarar fáist til starfa. Víða á Norðurlöndunum reikna hagsmunaaðilar þörfina á endurnýjun í starfstéttum, t.d. meðal lækna og kennara. Þetta er mjög auðvelt. Sniðugt væri ef Ísland tæki einnig upp þessi vinnubrögð, þ.e. að hugsa dæmið fram í tímann.


Í lögum og námskrám leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla er skóli fyrir alla í forgrunni, velferð barna og ungmenna og menntun án aðgreiningar. Þessi mikilvægu ákvæði hafa ekki komist til framkvæmda.
3. Hvernig vill þinn flokkur vinna að skóla fyrir alla?
4. Hvernig vill þinn flokkur vinna að aukinni velferð barna og ungmenna?
5. Hvernig vill þinn flokkur vinna að menntun án aðgreiningar?

Dögun lítur einfaldlega svo á að ALLIR hafi jafnan rétt til náms og í stefnuskrá okkar segir:  „Dögun vill að innritun barna og námsframvinda verði í framtíðinni fremur miðuð við fæðingardag og þroska og að árangur nemenda verði fremur metinn miðað við framfarir en ekki árgangabundinn samanburð með samræmdum prófum. Réttur barna til grunnnáms frá heimili verði miðaður við 18 ára aldur en rekstrarform og skólaskil geta verið breytileg eftir landsvæðum og byggðarlögum – og nánar til ákvörðunar með samningum aðila. Mikilvægt er að fjárfesta í þróunarstarfi og skipulagsbreytingum náms sem miða að því að bæta árangur nemenda um leið og starfskjör kennara eru bætt.

Dögun telur að auka þurfi lýðræði og valddreifingu í rekstri og skipulagi skóla - - og tryggja að fjármögnun grunnskólanáms verði skipulögð með nemendaframlögum og óháð öðrum rekstri sveitarfélaga. Gjaldfríar máltíðir verði innleiddar í öllum skólum fyrir börn frá 4ra ára aldri til 18 ára.

Menntun er eitt það allra mikilvægasta sem gerist í lífi hvers einstaklings. Út frá því ber að haga skipulagi menntamála á Íslandi. Menntun á ekki að vera spurning um efnahag, félagslega stöðu eða slíkt. Menntun = mannréttindi.

 

Í lögum og námskrám grunnskóla og framhaldsskóla er kveðið á um rétt nemenda til að njóta náms- og starfsráðgjafar af aðilum sem uppfylla skilyrði laga um náms- og starfsráðgjafa. Lengi hefur verið bent á mikilvægi náms- og starfsráðgjafar fyrir velferð nemenda og unnið hefur verið að stefnumótun en stjórnvöld hafa ekki fylgt henni eftir.
6. Hvað vill þinn flokkur gera til að uppfylla lagaskyldur við nemendur um rétt þeirra til náms- og starfsráðgjafar?
Fara eftir þeim lögum og reglum sem kveða á þessa þjónustu. Hún er mikilvæg og það er þjóðhagslega hagkvæmt að veita nemendum ráðgjöf, sem t.d. beinir þeim á réttar brautir við val á námi og störfum í framtíðinni.


Í lögum um framhaldsskóla kemur fram með skýrum hætti að mæta eigi kostnaði nemenda vegna námsgagna.
7. Hvað vill þinn flokkur gera til að uppfylla þessar lagaskyldur við nemendur?
Einfaldlega FARA EFTIR LÖGUNUM. Lög sem þessi, sem og önnur, eru ekki upp á punt, eða orðagjálfur.


Í lögum og námskrám leik-, grunn- og framhaldsskóla er meðal annars lögð áhersla á sveigjanleg skil milli skólastiga sem leiðir af sér að lengd námstíma frá upphafi leikskóla til loka framhaldsskóla getur verið mismunandi út frá þörfum barna og ungmenna. Í tengslum við fjárlög 2015 tók menntamálaráðherra einhliða ákvörðun um styttingu náms og námstíma í framhaldsskólum og um takmarkanir á aðgengi að framhaldsskólum á grundvelli aldurs.
8. Hvernig sér þinn flokkur fyrir sér sveigjanleg skil milli skólastiga?

Dögun telur það æskilegt að skil milli skólastiga séu sveigjanleg, því engir tveir einstaklingar eru eins.

9. Hver er afstaða þíns flokks til takmarkana á aðgengi að framhaldsskólum á grundvelli aldurs?

Dögun er á móti hömlum sem þessum, þar sem menntun snýst um sjálfsögð mannréttindi og rétt einstaklinga til þroska. Hversvegna ætti 25 ára einstaklingur ekki að eiga rétt á því að fara í framhaldsskóla? Þetta er dæmi um það þegar svokölluð kostnaðarhagkvæmni er farin að leika mjög óæskilegt hlutverk í mótun menntastefnu.


Tónlistarskólakennarar standa eina ferðina enn í erfiðri kjaradeilu en á tímabilinu 2008 til 2016 hefur launabilið milli þeirra og annarra kennarahópa breikkað stöðugt, þeim fyrri í óhag, þrátt fyrir fullyrðingar opinberra aðila um sambærileg laun fyrir sambærilega menntun og störf.
10. Hver er afstaða þíns flokks til mats á menntun og störfum tónlistarskólakennara til launa samanborið við aðra sambærilega kennarahópa?

Launakjör tónlistarkennara eiga að sjálfsögðu að vera sambærileg við kjör annarra kennara og alls ekki má draga úr eða vanmeta tónlistarmenntun.

11. Hver er afstaða þíns flokks til lögverndunar starfsheitisins tónlistarskólakennari?

Gott mál.
 

{slider Flokkur fólksins}

Við hjá Flokki Fólksins teljum afar mikilvægt að Ísland búi yfir góðu menntakerfi. Það er í raun ótrúlegt hversu lítil áhersla hefur verið lögð á betrumbætur innan menntakerfisins miðað við hversu mikilvægur þáttur það er fyrir samfélagið allt. Að því sögðu tel ég rétt að taka fram að Flokkur Fólksins býr ekki yfir fullmótaðri menntamálastefnu að svo stöddu, þannig að það væri óábyrgt af okkur að svara spurningum ykkar áður en sú vinna fer fram. Við mótun stefnunar teljum við mikilvægt að fá sem flesta kennara og nemendur að borðinu með sínar hugmyndir og skoðanir um hvað megi betur fara og hvernig megi áorka því, ásamt því að líta út fyrir landsteinana og skoða vandlega, með vísindalegum hætti, hvernig aðrar þjóðir standa að sínum menntamálum, meta kosti og galla og draga af því lærdóm.

Á Íslandi í dag eru laun og aðstaða kennara á þann veg að starfið er ekki eftirsóknavert. Þetta er staðreynd innan leikskólanna, grunnskólanna, framhaldsskólanna og háskólanna. Ég tel að flestir Íslendingar séu sammála því að starfsmenn innan menntakerfisins gegni með mikilvægari störfum innan alls kerfisins. Það er eitthvað verulega öfugsnúið í samfélagi þar sem erfitt er að manna mikilvægustu stöður þess vegna lélegra kjara og slæmrar aðstöðu, á meðan aðrar stéttir mala gull.
Þó að Flokkur Fólksins búi ekki yfir fullmótaðri stefnu þegar kemur að menntamálum þá er alveg ljóst að við munum berjast fyrir stórlega bættum kjörum kennara til að endurpsegla verðmæti þeirra fyrir samfélagið allt. Hverjum á að borga vel og halda ánægðum ef ekki þeim sem við treystum til að ala upp og kenna börnum okkar? Mikilvægustu störf innan samfélags eiga að vera þau eftirsóknarverðustu og mikilvægustu stofnanir samfélags eiga skilið nóg fjármagn til þess að sinna tilgangi sínum vel.

A heimasíðu okkar er að finna dálítið af upplýsingum um hugmyndir okkar hvað varðar velferð barna og skólastarf almennt.

 

{slider Framsóknarflokkur}

Þegar tölur um kynja- og aldurssamsetningu í kennarastéttinni eru skoðaðar blasir við brýn þörf fyrir nýliðun. Fjölmargir kennarar eru að hætta störfum vegna aldurs og nú þegar vantar 1.300 leikskóla-kennara til að uppfylla ákvæði laga um hlutfall stöðugilda leikskólakennara. Aðsókn í kennaranám helst engan veginn í hendur við nýliðunarþörfina. Kynjahlutfallið í stéttinni hefur breyst hratt og eru konur um 80% félagsmanna Kennarasambands Íslands.

1. Hvað vill þinn flokkur gera til að leysa brýna nýliðunarþörf í kennarastéttinni?
2. Hvaða leiðir vill þinn flokkur fara til að fjölga körlum í kennarastétt?

Stjórnmálamenn verða að veita þessari stöðu athygli og bregðast við, áður en vandinn vex enn frekar. Viðfangsefnið kallar á fjölþætta lausn og til þess að vinna að henni þarf samtal háskólasamfélagsins, kennarafélaganna, ríkis og sveitarfélaga. Í því samtali þarf að fara yfir inntak námsins, starfsvettvang og kjör.

Varðandi inntak námsins: Leggja þarf meiri áherslu á starfsnám á vetvangi og skoða hvort skynsamlegt væri að hluti af mastersnáminu væri launað starfsnám.
(Jafnframt er mikilvægt að ræða hvort nauðsynlegt sé að lokaverkefni í kennaranámi til starfsréttinda, sé fræðilegt? Þurfa allir kennarar rannsóknarmenntun?)

Kerfisbreyting hjá Lánasjóði íslenskra námsmanna í námslán og námsstyrki, skapi tækifæri til að þróa hvata til að fjölga nemendum í greinum þar sem fyrirsjáanlegur er skortur á fagmenntuðu fólki. Þetta væri annað hvort hægt að gera í gegnum námsstyrkjakerfi eða með skattalegum hvötum við endurgreiðslu námslána.

Starfsumhverfi: Skýra þarf hlutverk og verkaskiptingu skóla og heimila, til að einfalda líf bæði kennara og foreldra. Skoða sérstaklega hvort báðum kynjum líði jafn vel innan veggja skólanna. Mikilvægt er að námskrár og kjarasamingar styðji sameiginlega við þróun og mótun skólastarfsins.

Bæta þarf kjör kennara og til þess þarf samfélagslega sátt til lengri tíma um launakjör.


Í lögum og námskrám leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla er skóli fyrir alla í forgrunni, velferð barna og ungmenna og menntun án aðgreiningar. Þessi mikilvægu ákvæði hafa ekki komist til framkvæmda.
3. Hvernig vill þinn flokkur vinna að skóla fyrir alla?
4. Hvernig vill þinn flokkur vinna að aukinni velferð barna og ungmenna?
5. Hvernig vill þinn flokkur vinna að menntun án aðgreiningar?

3. og 5. Auka grunnþjónustu bæði staðbundna og fjarþjónustu. Auka þarf samvinnu skólaþjónustu, heilsugæslu og félagsþjónustu – til að ráðgjöf og stuðningur við foreldra og starfsfólksskóla skili sem mestum árangri. Teymisvinna þvert á stofnanir.

4. Auka aðgang að sérfræðiþjónustu heilbrigðisstarfsfólks til fjölskyldna í gegnum heilsgæsluna og tryggja teymisvinnu kringum fjölskyldur sem þurfa aðstoð.

Leggja áherslu á líðan barna, að öll börn hafi hlutverk og öll börn nái árangri í námi.

Í lögum og námskrám grunnskóla og framhaldsskóla er kveðið á um rétt nemenda til að njóta náms- og starfsráðgjafar af aðilum sem uppfylla skilyrði laga um náms- og starfsráðgjafa. Lengi hefur verið bent á mikilvægi náms- og starfsráðgjafar fyrir velferð nemenda og unnið hefur verið að stefnumótun en stjórnvöld hafa ekki fylgt henni eftir.

6. Hvað vill þinn flokkur gera til að uppfylla lagaskyldur við nemendur um rétt þeirra til náms- og starfsráðgjafar?

Tryggja að háskólar bjóði upp á fjarnám í náms- og starfsráðgjöf til að fjölga fagmenntuðu fólki.

 

Í lögum um framhaldsskóla kemur fram með skýrum hætti að mæta eigi kostnaði nemenda vegna námsgagna.
7. Hvað vill þinn flokkur gera til að uppfylla þessar lagaskyldur við nemendur?

Mikil þörf er á endurnýjun námsefnis og auknu framboði á námsefni á framhalsskólastigi, eðlilegt er að Menntamálastofnun yrði falið hlutverk og úthlutað fjármagni til að vinna að úrbótum á þessu sviði.

 

Í lögum og námskrám leik-, grunn- og framhaldsskóla er meðal annars lögð áhersla á sveigjanleg skil milli skólastiga sem leiðir af sér að lengd námstíma frá upphafi leikskóla til loka framhaldsskóla getur verið mismunandi út frá þörfum barna og ungmenna. Í tengslum við fjárlög 2015 tók menntamálaráðherra einhliða ákvörðun um styttingu náms og námstíma í framhaldsskólum og um takmarkanir á aðgengi að framhaldsskólum á grundvelli aldurs. 
8. Hvernig sér þinn flokkur fyrir sér sveigjanleg skil milli skólastiga? 

Nemendur geti átt þess kost að flytjast fyrr á milli skólastiga, sé það mat skóla, nemenda og foreldra að nemendur séu reiðubúnir til slíks eða nemendur eigi kost á að hefja nám í einstökum námsgreinum t.d. með í fjarnámi frá framhaldsskóla þó þeir stundi nám í grunnskóla. Á sama hátt gætu nemendur átt rétt á að flytjast seinna milli skólastiga.

9. Hver er afstaða þíns flokks til takmarkana á aðgengi að framhaldsskólum á grundvelli aldurs?
Eðlilegt er að framhaldsskólar geti forgangsraðað nemendum í bóknám sbr. reglugerð um innritun í framhaldsskóla.

 

Tónlistarskólakennarar standa eina ferðina enn í erfiðri kjaradeilu en á tímabilinu 2008 til 2016 hefur launabilið milli þeirra og annarra kennarahópa breikkað stöðugt, þeim fyrri í óhag, þrátt fyrir fullyrðingar opinberra aðila um sambærileg laun fyrir sambærilega menntun og störf.
10. Hver er afstaða þíns flokks til mats á menntun og störfum tónlistarskólakennara til launa samanborið við aðra sambærilega kennarahópa?

Eðlilegt að launakjör kennara sem kenna á sama skólastigi (aldursbili) séu sambærileg og byggð á sambærilegum grunni.

11. Hver er afstaða þíns flokks til lögverndunar starfsheitisins tónlistarskólakennari?

Flokkurinn hefur ekki tekið afstöðu.
 

{slider Píratar}

Þegar tölur um kynja- og aldurssamsetningu í kennarastéttinni eru skoðaðar blasir við brýn þörf fyrir nýliðun. Fjölmargir kennarar eru að hætta störfum vegna aldurs og nú þegar vantar 1.300 leikskóla-kennara til að uppfylla ákvæði laga um hlutfall stöðugilda leikskólakennara. Aðsókn í kennaranám helst engan veginn í hendur við nýliðunarþörfina. Kynjahlutfallið í stéttinni hefur breyst hratt og eru konur um 80% félagsmanna Kennarasambands Íslands.

1. Hvað vill þinn flokkur gera til að leysa brýna nýliðunarþörf í kennarastéttinni?
2. Hvaða leiðir vill þinn flokkur fara til að fjölga körlum í kennarastétt?

Samþykkt stefna Pírata er að nota finnsku leiðina sem viðmið. Í því felst að haldið verði áfram í að leggja áherslu á gæði í menntun kennara og að klára þann hluta breytingarinnar sem snýr að launum kennara, þar sem, miðað við OECD gögn, þyrftu laun kennara að vera um þriðjungi hærri. Markmið Pírata er alltaf að velja þær leiðir sem hafa gefist best og alltaf í samvinnu við hlutaðeigandi aðila. Píratar munu alls ekki innleiða neinar breytingar án náinnar samvinnu við kennarastéttina.

Stór hluti af því að tækla nýliðunarvandann væri launaleiðrétting en einnig þarf nauðsynlega að halda í þá kennara sem klára nám og byrja að kenna en eru, eins og stendur, að snúa sér að öðrum störfum eftir stutt stopp í skólum. Ein leið væri til að mynda að telja starfsreynslu réttindalausra kennara sem starfsnám.


Í lögum og námskrám leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla er skóli fyrir alla í forgrunni, velferð barna og ungmenna og menntun án aðgreiningar. Þessi mikilvægu ákvæði hafa ekki komist til framkvæmda.
3. Hvernig vill þinn flokkur vinna að skóla fyrir alla?
4. Hvernig vill þinn flokkur vinna að aukinni velferð barna og ungmenna?
5. Hvernig vill þinn flokkur vinna að menntun án aðgreiningar?

Þetta er fagleg vinna sem stjórnmálasamtök eiga ekki að skipta sér af að öðru leyti en að greiða leið gæðanáms fyrir nemendur. Lögin voru vonandi gerð í faglegu ferli, því ber þá að fylgja þeim eftir bestu getu með reglulegu eftirliti um hvort aðferðirnar eru að skila sér í gæðanámi fyrir nemendur.


Í lögum og námskrám grunnskóla og framhaldsskóla er kveðið á um rétt nemenda til að njóta náms- og starfsráðgjafar af aðilum sem uppfylla skilyrði laga um náms- og starfsráðgjafa. Lengi hefur verið bent á mikilvægi náms- og starfsráðgjafar fyrir velferð nemenda og unnið hefur verið að stefnumótun en stjórnvöld hafa ekki fylgt henni eftir. 
6. Hvað vill þinn flokkur gera til að uppfylla lagaskyldur við nemendur um rétt þeirra til náms- og starfsráðgjafar? 

Það er verið að vinna að því að skólar skili af sér námsbrautarlýsingum á tölvulesanlegu sniði með namskra.is verkefninu og útgáfu þeirra lýsinga með Ploteusarverkefni evrópusambandsins sem Rannnís og Menntamálastofnun eru að vinna við fyrir íslenskt menntakerfi. Við það skapast mjög mikilvægt tól fyrir náms- og starfsráðgjafa til þess að skipuleggja sitt starf.

Stefna Pírata er að fylgja faglegum ferlum, að taka ákvarðanir byggðar á upplýstum ákvörðunum sem eru vel studdar með gögnum. Það er lykilatriði að haghafar fái að fylgja framkvæmd stefnuáætlanna í hverju skrefi þannig að hægt sé að bregðast við um leið og einhver vandamál koma upp til þess hægt sé að endurmeta aðstæður án þess að allt stöðvist eða að það þurfi að byrja upp á nýtt.


Í lögum um framhaldsskóla kemur fram með skýrum hætti að mæta eigi kostnaði nemenda vegna námsgagna. 
7. Hvað vill þinn flokkur gera til að uppfylla þessar lagaskyldur við nemendur?

Fara eftir lögum.


Í lögum og námskrám leik-, grunn- og framhaldsskóla er meðal annars lögð áhersla á sveigjanleg skil milli skólastiga sem leiðir af sér að lengd námstíma frá upphafi leikskóla til loka framhaldsskóla getur verið mismunandi út frá þörfum barna og ungmenna. Í tengslum við fjárlög 2015 tók menntamálaráðherra einhliða ákvörðun um styttingu náms og námstíma í framhaldsskólum og um takmarkanir á aðgengi að framhaldsskólum á grundvelli aldurs.
8. Hvernig sér þinn flokkur fyrir sér sveigjanleg skil milli skólastiga?
9. Hver er afstaða þíns flokks til takmarkana á aðgengi að framhaldsskólum á grundvelli aldurs?

Helsti haghafi menntakerfisins er nemandinn. Skólakerfið á að vera sveigjanlegt fyrir nemandann. Nemandinn á ekki að þurfa að aðlaga sig að skólakerfinu mtt. samfellu náms, hvort sem það eru framhaldsskólaáfangar í grunnskóla eða nemandi á framhaldsskólaaldri í háskóla.


Tónlistarskólakennarar standa eina ferðina enn í erfiðri kjaradeilu en á tímabilinu 2008 til 2016 hefur launabilið milli þeirra og annarra kennarahópa breikkað stöðugt, þeim fyrri í óhag, þrátt fyrir fullyrðingar opinberra aðila um sambærileg laun fyrir sambærilega menntun og störf. 
10. Hver er afstaða þíns flokks til mats á menntun og störfum tónlistarskólakennara til launa samanborið við aðra sambærilega kennarahópa? 
11. Hver er afstaða þíns flokks til lögverndunar starfsheitisins tónlistarskólakennari? 

Sambærileg menntun og starf = sömu grunnlaun. Þetta eru augljós réttindi og Píratar sem flokkur sem berst fyrir verndun og útvíkkun borgararéttinda styður slíkt.

Píratar hafa ekki ályktað sérstaklega um lögverndun starfsheita, hvorki tónlistarskólakennnara né annara. Markmið slíkra laga væru að tryggja ákveðna lágmarkshæfni þeirra sem geta gegnt viðkomandi starfi. Það skarast ekkert á við nein gildi eða stefnu Pírata.
 

{slider Samfylking}

Þegar tölur um kynja- og aldurssamsetningu í kennarastéttinni eru skoðaðar blasir við brýn þörf fyrir nýliðun. Fjölmargir kennarar eru að hætta störfum vegna aldurs og nú þegar vantar 1.300 leikskóla-kennara til að uppfylla ákvæði laga um hlutfall stöðugilda leikskólakennara. Aðsókn í kennaranám helst engan veginn í hendur við nýliðunarþörfina. Kynjahlutfallið í stéttinni hefur breyst hratt og eru konur um 80% félagsmanna Kennarasambands Íslands.
1. Hvað vill þinn flokkur gera til að leysa brýna nýliðunarþörf í kennarastéttinni?

Samfylkingin vill auka virðingu fyrir starfi kennara og bæta starfsumhverfi þeirra til að störf í þessum mikilvægu menntastofnunum verði eftirsóttari. Það verður að vera sameiginlegt verkefni ríkis, sveitarfélaga, fagfélaga, háskóla, foreldra og nemenda. Samfylkingin í borgarstjórn Reykjavíkur hefur nýlega haft forgöngu um að efna til víðtæks samstarfs við félög kennara, háskóla og ríkisvaldið um leiðir til að auka nýliðun í kennarastétt og bæta starfsumhverfi kennara. Þar verður sérstaklega skoðað hvernig megi laða til kennslustarfa þær þúsundir Íslendinga sem hafa aflað sér kennsluréttinda en hafa valið sér annan starfsvettvang en kennslu. Eitt mikilvægasta verkefni sem Íslendingar standa frammi fyrir er að auka nýliðun í kennarastétt. Fjölga þarf verulega þeim sem leggja stund á kennaranám og í því sambandi þarf að efla kennaramenntun og tryggja að sú menntun sem kennaranemar fá í háskólum nýtist þeim sem skyldi á vettvangi, m.a með því að efla vettvangsnám sem hluta af einingabæru námi. Viðhorfskannanir meðal kennara á liðnum árum gefa til kynna að efla þurfi tiltekna þætti í menntun kennara, t.d. varðandi stuðning við jákvæða hegðun, þekkingu á bekkjarstjórnun o.s.frv.

Mikið vantar upp á til að við stöndumst samjöfnuð við þær þjóðir sem fremst standa varðandi stöðu og virðingu fyrir kennurum, þar má t.d. nefna Finnland þar sem kennarastarfið er eitt það best metna og vinsælasta meðal ungs fólks og Kanada sem hefur lagt mikla vinnu í að efla og bæta stöðu kennara. Kjör kennara verða að vera samkeppnishæf við laun háskólamenntaðra stétta með sambærilega menntun.

Við getum náð árangri. Sem dæmi þá jókst áhuga á leikskólakennaranámi í kjölfar vitundarvakningar sem Félag leikskólakennara átti frumkvæði að og viðleitni sveitarfélaga, þ.á.m. Reykjavíkur, til að bjóða starfsfólki leikskóla námsstyrki til að geta sótt sér leikskólakennararéttindi meðfram starfi. Skoða þarf leiðir til að efla diplómanám meðfram hefðbundnu leikskólakennaranámi, efla vettvangsnám sem hluta af einingabæru námi og setja aukið fjármagn í námsstyrki.

Við verðum að setja meiri pening í mannauð og minni í steinsteypu. Sveitarfélög sjá um rekstur leik- og grunnskóla og er hann stærsti útgjaldaliður þeirra. Sveitarfélög hafa ekki fengið sanngjarnan hlut í góðæri síðustu ára, sem hefur skilað tugmilljarða tekjuaukningu til ríkisins á sama tíma og verkefni sem flust hafa frá ríki til sveitarfélaga, ekki síst grunnskólinn og málefni fatlaðra hafa verið alvarlega vanfjármögnuð. Samfylkingin leggur áherslu á réttlátari skiptingu tekna milli ríkis og sveitarfélaga m.a. til að fjármagna nauðsynlegar úrbætur í skólamálum.


2. Hvaða leiðir vill þinn flokkur fara til að fjölga körlum í kennarastétt?

Mikilvægt er að fjölga körlum í kennarastétt til að börn og ungmenni njóti uppfræðslu öflugra kennara af báðum kynjum. Ein mikilvægasta leiðin til þess er að auka veg og virðingu kennarastarfsins í samfélaginu með fjölbreyttum aðgerðum sem lúta m.a. að bættum kjörum sem standast samjöfnuð við kjör háskólamenntaðra stétta með sambærilega menntun, bættu starfsumhverfi, öflugri starfsþróun og vitundarvakningu í samfélaginu um mikilvægi kennarastarfsins fyrir velferð einstaklinga og samfélagsins.


Í lögum og námskrám leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla er skóli fyrir alla í forgrunni, velferð barna og ungmenna og menntun án aðgreiningar. Þessi mikilvægu ákvæði hafa ekki komist til framkvæmda. 
3. Hvernig vill þinn flokkur vinna að skóla fyrir alla? 

Um þessi atriði var fjallað í landsfundarályktun Samfylkingarinnar árið 2015 undir yfirskriftinni Nemendamiðuð menntastefna:

Samfylkingin vill að menntun barna og ungmenna miði að því að nemendur á öllum aldri nýti styrkleika sína, færni og áhugasvið og að þeir fái aukið svigrúm til að ráða námshraða og skipulagi náms í samræmi við námsgetu og áform í námi. Samfylkingin leggur ríka áherslu á að réttindi barna og ungmenna verði tryggð í skóla margbreytileikans. Gefa þarf nemendum sem þurfa sérstakan stuðning eða skipulag í námi sínu vegna fötlunar, veikinda eða annarra örðugleika tækifæri til að stunda nám á sínum forsendum með leiðum sem skila árangri. Nýttar verði markvisst gagnreyndar aðferðir í kennslu og námi til að tryggja nemendum bestu hugsanlegu námsaðstæður. Samfylkingin vill auka samvinnu skóla og miðlun þekkingar um árangursríkar og fjölbreyttar aðferðir við kennslu. Notkun upplýsingatækni, öflug starfsþróun kennara, þróun lærdómssamfélaga sem leggja áherslu á sameiginlega ábyrgð allra sem starfa í skólum á námi barna og ungmenna og aðgangur að fjölbreyttri kennsluráðgjöf eru allt lykilatriði í skólastarfi allra skólastiga.

Samfylkingin vill að:

  • skipulag skóla og náms stefni að því marki að allir nemendur ljúki námi með brautskráningu.
  • nemendum sem fallið hafa brott úr skóla verði auðveldað að hefja nám að nýju.
  • innleiddar verði heildstæðar leiðir til að þjóna nemendum með mismunandi þarfir, jafnt nemendum sem glíma við náms- eða hegðunarerfiðleika og bráðgerum nemendum.
  • börn hafi jafnan aðgang að almennum skólum, sérúrræðum og eftir atvikum sérskólum.
  • starfsstéttir sameinist um að tryggja farsæld barna og ungmenna í skólum, bæði í skólanum og í nánu samstarfi við hann. Ætíð skal hafa í huga að kennarar eru sérfræðingar í að skipuleggja nám og kennslu en þegar fjölþættur vandi er til staðar er kunnátta og færni ólíks fagfólks mikilvæg til að finna heildstæða lausn.
  • stuðlað verði að frekari þróun dreifnáms og sveigjanlegs náms í því skyni að jafna aðgengi landsmanna að námi á öllum skólastigum.
  • börn með skerta heyrn fái tækifæri til þess að öðlast virkt tvítyngi íslensku og íslensks táknmáls. Vald á íslensku táknmáli er grunnur menntunar, lífsgæða og sjálfsmyndar heyrnarskertra barna.


4. Hvernig vill þinn flokkur vinna að aukinni velferð barna og ungmenna?

Öll börn eiga rétt á góðri menntun og jöfnum tækifærum. Það hefur verið eitt mikilvægasta baráttumál jafnaðarmanna út úm allan heim í lengri tíma. Því miður er enn verk að vinna í þeirri baráttu á Íslandi. Tryggja þarf öllum jöfn tækifæri innan íslenska skólakerfisins og í svari við spurningu 3 er fjallað um aðgerðirnar sem Samfylkingin vill ráðast í.

Í kosningabaráttunni sem nú stendur yfir er leggur Samfylkingu áherslu á tvennt sem skiptir börn miklu máli:

  • Gjaldfrjálsa sálfræðiþjónustu sem verði aðgengileg á heilsugæslustöðvum og í framhaldsskólum.
  • Tvöfaldan stuðning ríkisins við barnafjölskyldur til að bæta kjör allra barnafjölskyldna og útrýma barnafátækt. En árið árið 2014 liðu 6.100 börn efnislegan skort á Íslandi. Það er algerlega óviðunandi þegar ríkasta 1% landsmanna á 507 milljarða í hreinni eign.


5. Hvernig vill þinn flokkur vinna að menntun án aðgreiningar?

Tryggja þarf öllum jöfn tækifæri innan íslenska skólakerfisins. Í svari við spurningu 3 er fjallað um aðgerðirnar sem Samfylkingin vill ráðast í.


Í lögum og námskrám grunnskóla og framhaldsskóla er kveðið á um rétt nemenda til að njóta náms- og starfsráðgjafar af aðilum sem uppfylla skilyrði laga um náms- og starfsráðgjafa. Lengi hefur verið bent á mikilvægi náms- og starfsráðgjafar fyrir velferð nemenda og unnið hefur verið að stefnumótun en stjórnvöld hafa ekki fylgt henni eftir. 
6. Hvað vill þinn flokkur gera til að uppfylla lagaskyldur við nemendur um rétt þeirra til náms- og starfsráðgjafar? 

Samfylkingunni er mjög annt um rétt nemenda og annarra og munum ganga á eftir því að réttur nemenda til náms- og starsfráðgjafar sé virtur. Samfylkingin vill að nemendur á unglingastigi grunnskóla og í framhaldsskóla njóti lágmarks tímafjölda í náms-og starfsráðgjöf líkt og í Finnlandi þar sem allir nemar á unglingastigi grunnskóla eiga rétt á tveimur stundum í viku í einstaklingsmiðaða náms- og starfsráðgjöf. Auk þess viljum við að gjaldfrjáls sálfræðiþjónusta verði aðgengileg á heilsugæslustöðvum og í framhaldsskólum.


Í lögum um framhaldsskóla kemur fram með skýrum hætti að mæta eigi kostnaði nemenda vegna námsgagna. 
7. Hvað vill þinn flokkur gera til að uppfylla þessar lagaskyldur við nemendur?

Fjárhagur má ekki koma í veg fyrir að fólk sæki sér menntun. Samfylkingin vill að fella niður kostnað námsmanna vegna námsgagna og Samfylkingin veit að ríkissjóður er aflögufær þegar kemur að því tryggja jafnrétti til náms. Ennfremur hefur Samfylkingin ályktað um að skoðaðir verði möguleikar á að bjóða nemendum að fá afnot af einkatölvum í gegnum kaupleigusamninga.


Í lögum og námskrám leik-, grunn- og framhaldsskóla er meðal annars lögð áhersla á sveigjanleg skil milli skólastiga sem leiðir af sér að lengd námstíma frá upphafi leikskóla til loka framhaldsskóla getur verið mismunandi út frá þörfum barna og ungmenna. Í tengslum við fjárlög 2015 tók menntamálaráðherra einhliða ákvörðun um styttingu náms og námstíma í framhaldsskólum og um takmarkanir á aðgengi að framhaldsskólum á grundvelli aldurs. 
8. Hvernig sér þinn flokkur fyrir sér sveigjanleg skil milli skólastiga?

Samfylkingin mun aldrei standa að einhliða ákvörðunum um jafn mikilvæg mál og styttingu náms og námstíma í framhaldsskólum. Á landsfundi Samfylkingarinnar 2015 var ályktað um mikilvægi samráðs og faglegrar umfjöllunar um styttingu náms og skil á milli skólastiga undir yfirskriftinni Árangursríkara menntakerfi:

Samfylkingin vill setja á fót formlegan samstarfsvettvang ríkis og sveitarfélaga, skólafólks, nemenda, foreldra og aðila vinnumarkaðarins sem hafi það hlutverk að móta tillögur um heildstæðar umbætur í menntamálum með það fyrir augum að að efla skólastarf, auka árangur menntakerfisins í víðum skilningi, draga úr endurtekningu námsefnis á mörkum skólastiga og gera kennarastarfið að vel launuðum og eftirsóknarverðum starfsvettvangi. Á þeim vettvangi verði m.a. tekin fagleg afstaða til hugmynda um að stytta viðmiðunarnámstíma í skólakerfinu öllu og til flutnings framhaldsskóla til sveitarfélaga, þar sem það er talið þjóna hagsmunum nemenda og samfélags. Samfylkingin leggur áherslu á í því samhengi að:

  • skólagjöld og námskostnaður í leik-, grunn- og framhaldsskólum verði felld niður
  • það fjármagn sem kann að sparast með aukinni skilvirkni nýtist til eflingar innra starfs skólanna, til að bæta starfskjör kennara og skólastarfsfólks, minnka námshópa í framhaldsskólum, bæta aðbúnað og tækjakost, styðja við breytta kennsluhætti og þróunarstarf í skólum.
  • skoða þurfi markvisst fjölgun styttri námsbrauta til starfsréttinda.
  • greina þurfi sérstaklega þarfir framhaldsskólastigsins þar sem margir skólar eru komnir að þolmörkum vegna aðhaldsaðgerða.
  • tryggja þurfi jafnt aðgengi allra landsmanna og allra aldurshópa að námi á framhaldsskólastigi. Samfylkingin hafnar þeim tálmunum sem settar hafa verið á framhaldsskólanám fyrir 25 ára og eldri.
  • skoðaðir verði möguleikar á kaupleigusamningum varðandi einkatölvur fyrir nemendur. Nemendur greiði ákveðna leigu fyrir afnotin og geti í lok skólagöngunnar eignast tölvuna.

9. Hver er afstaða þíns flokks til takmarkana á aðgengi að framhaldsskólum á grundvelli aldurs? 

Samfylkingin hafnar alfarið þeim aldurstakmörkunum sem voru innleiddar af ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknar. Við gerð fjárlaga hefur Samfylkingin mótmælt þessari aðgerð sem bitnar illa á landsbyggðinni og veltir kostnaði yfir á nemendur sem við viljum hvetja til að sækja sér menntun. Oddný Harðardóttir formaður Samfylkingarinnar fjallaði um málið í nefndaráliti sínu um frumvarp til fjárlaga fyrir árið 2016:

Samfylkingin leggur ríka áherslu á að framhaldsskólar verði aftur opnir öllum aldurshópum. Með fjárlögum fyrir árið 2015 voru settar fjöldatakmarkanir í framhaldsskólum. Jafnvel þótt mennta- og menningarmálaráðherra segi að skólum sé ekki bannað að taka við bóknámsnemendum sem náð hafa 25 ára aldri er skólunum svo þröngur stakkur sniðinn að flestum þeim sem sóttu um skólavist á þeim aldri var hafnað. Afleiðingar þessarar menntastefnu ríkisstjórnarinnar hafa nú, aðeins einu ári seinna, komið í ljós. Í framhaldsskólunum hefur nemendum 25 ára og eldri fækkað um 447 í bóknámi og um 295 í list- og verknámi, alls um 742 einstaklinga. Skilaboðin um fjöldatakmörkun hafa augljóslega orðið til þess að þeir sem eru 25 ára eða eldri sækja síður um skólavist og telja sig ekki lengur velkomna í framhaldsskólana.

Nokkur fjöldi fólks hefur flosnað upp úr framhaldsskólanámi eða orðið að hætta vegna ýmissa ófyrirsjáanlegra aðstæðna svo sem veikinda eða fjárskorts. Mörg þeirra hafa farið aftur í framhaldsskóla í heimahéraði sínu eftir 25 ára aldur og hafa lokið stúdentsprófi og háskólaprófi í kjölfarið. Þau starfa um allt land, í leikskólum, grunnskólum, á heilbrigðisstofnunum og í tæknigreinum svo dæmi séu tekin. Landsbyggðin hefur treyst á menntun og störf þessara einstaklinga. Nú er búið að loka fyrir þessa leið. Það er mikill missir fyrir einstaklingana sem hafa ekki tækifæri til að styrkja stöðu sína með öðrum hætti. Missirinn verður ekki síður mikill fyrir samfélagið í heild til lengri tíma litið.

Rannsóknir sýna að gott aðgengi að námi skiptir miklu ef hækka á menntunarstig þjóðarinnar. Mennta- og menningarmálaráðherra hefur ferðast um landið og talað um mikilvægi læsis og menntunar fyrir hagvöxt og hagsæld í landinu. Á sama tíma skerðir hann aðgengi að menntun sem mun koma harðast niður á ungu fólki á landsbyggðinni. Þeim er í staðinn boðið að flytjast búferlum og fara í einkaskóla á Suðurnesjum, Reykjavík eða í Borgarfirði eða stunda dreifnám við þá skóla með ærnum tilkostnaði. Enginn vafi er á að með þessari ráðstöfun mun opinberum störfum á landsbyggðinni fækka enn frekar og erfiðara verður að fá fólk með fagmenntun til starfa.


Tónlistarskólakennarar standa eina ferðina enn í erfiðri kjaradeilu en á tímabilinu 2008 til 2016 hefur launabilið milli þeirra og annarra kennarahópa breikkað stöðugt, þeim fyrri í óhag, þrátt fyrir fullyrðingar opinberra aðila um sambærileg laun fyrir sambærilega menntun og störf. 
10. Hver er afstaða þíns flokks til mats á menntun og störfum tónlistarskólakennara til launa samanborið við aðra sambærilega kennarahópa?

Samfylkingin leggur mikla áherslu á jafnt og almennt aðgengi barna og ungmenna að tónlistarnámi og á sama hátt að tónlistarkennarar séu metnir að verðleikum varðandi laun og önnur starfskjör. Það er eðlilegt að tónlistarkennarar njóti kjara sem standast jöfnuð við kjör kennarahópa með sambærilega menntun en þá er jafnframt sanngjarnt að samræma þær kröfur sem kjarasamningar gera til kennara í mismunandi störfum. Mikilvægt er að efla samhliða starfsþróun tónlistarkennara með áherslu á fjölbreytni kennsluaðferða og aukið vægi þverfaglegrar nálgunar sem er vaxandi krafa í samtímanum. Rétt er að benda á að það eru álitamál í mati á kennarastörfum og kjör grunnskólakennara eru ekki jöfn innbyrðis. Mikilvægt er að ræða þá stöðu hreinskilnislega og leita leiða til að brúa þá gjá sem myndast hefur milli almennra kennara og listgreinakennara með sanngjörnum og málefnalegum hætti þannig að ekki búi um sig óánægja sem ýtir undir sundrung í kennarastétt. Allir kennarar á sviði list- eða verkgreina þurfa að vera hluti af sátt um mat á kennarastarfinu almennt.

11. Hver er afstaða þíns flokks til lögverndunar starfsheitisins tónlistarskólakennari?

Samfylkingin er tilbúin að skoða fýsileika þess að lögvernda starfsheiti tónlistarskólakennara sérstaklega ef það getur orðið til þess að stuðla að aukinni fjölbreytni og fagmennsku á sviði tónlistarkennslu í landinu. Vissulega þyrfti að skoða vel í því sambandi samsetningu menntunar, menntunarkröfur, ákvæði um starfsþróun o.s.frv. Mikilvægt er að ríki og sveitarfélög taki upp formlegt samstarf um eflingu þess tónlistarkennaranáms sem í boði er í landinu. Þar þarf að móta áætlun um markvissa uppbyggingu til næstu ára sem m.a. getur falið í sér að vinna að lögverndun starfsheita þeirra sem kennslunni sinna.

 

{slider Sjálfstæðisflokkur}

Þegar tölur um kynja- og aldurssamsetningu í kennarastéttinni eru skoðaðar blasir við brýn þörf fyrir nýliðun. Fjölmargir kennarar eru að hætta störfum vegna aldurs og nú þegar vantar 1.300 leikskóla-kennara til að uppfylla ákvæði laga um hlutfall stöðugilda leikskólakennara. Aðsókn í kennaranám helst engan veginn í hendur við nýliðunarþörfina. Kynjahlutfallið í stéttinni hefur breyst hratt og eru konur um 80% félagsmanna Kennarasambands Íslands.
1. Hvað vill þinn flokkur gera til að leysa brýna nýliðunarþörf í kennarastéttinni?
2. Hvaða leiðir vill þinn flokkur fara til að fjölga körlum í kennarastétt? 

Það liggur í augum uppi að laun kennara þurfa að vera með þeim hætti að þau endurspegli bæði mikilvægi stéttarinnar og laði hæfileikaríkt og fjölbreytt fólk til starfa.

Undir forystu Sjálfstæðisflokksins á þessu kjörtímabili hafa kennarar fengið verulegar kjarabætur. Í tilfelli framhaldsskólakennara hafa laun hækkað um 43% þegar fyrri hluti árs 2016 er borinn saman við fyrri hluta árs 2013. Samhliða styttingu náms úr hefur verið komið mjög til móts við nýliðunarþörf, en betur má ef duga skal.

Hvað varðar grunn- og leikskólakennara þá eru málefni þeirra og kjarasamningar á borði sveitarfélaga.

Það er mikilvægt að halda áfram á þessari braut við lausn á þessari áskorun. Með verulegri kjarabót hefur Sjálfstæðisflokkurinn sýnt vilja sinn í verki til þess að mæta nýliðunarvanda í kennarastéttinni og auka veg og virðingu hennar.

 

Í lögum og námskrám leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla er skóli fyrir alla í forgrunni, velferð barna og ungmenna og menntun án aðgreiningar. Þessi mikilvægu ákvæði hafa ekki komist til framkvæmda. 
3. Hvernig vill þinn flokkur vinna að skóla fyrir alla?
4. Hvernig vill þinn flokkur vinna að aukinni velferð barna og ungmenna?
5. Hvernig vill þinn flokkur vinna að menntun án aðgreiningar? 

Sjálfstæðisflokkurinn átti frumkvæði að því að samstarfssamningur um framkvæmd úttektar á menntun án aðgreiningar var undirritaður af Illuga Gunnarssyni mennta- og menningarmálaráðherra, Cor J.W. Meijer framkvæmdastjóra og Per Ch Gunnvall stjórnarformanni Evrópumiðstöðvar um nám án aðgreiningar.

Einnig var undirrituð viljayfirlýsing um samstarf um úttektina af hálfu fulltrúa mennta- og menningarmálaráðuneytis, velferðarráðuneytis, Sambands íslenskra sveitarfélaga, Kennarasambands Íslands, Heimilis og skóla, landssamtaka foreldra og Skólameistarafélags Íslands.

Sjálfstæðisflokkurinn telur að taka eigi ákvarðanir sem styðji við menntun án aðgreiningar á grundvelli þessarar vinnu, sem hann hefur átt frumkvæði að. Búast má við að niðurstöður úttektar á námi án aðgreiningar liggi fyrir í lok þessa árs.


Í lögum og námskrám grunnskóla og framhaldsskóla er kveðið á um rétt nemenda til að njóta náms- og starfsráðgjafar af aðilum sem uppfylla skilyrði laga um náms- og starfsráðgjafa. Lengi hefur verið bent á mikilvægi náms- og starfsráðgjafar fyrir velferð nemenda og unnið hefur verið að stefnumótun en stjórnvöld hafa ekki fylgt henni eftir.
6. Hvað vill þinn flokkur gera til að uppfylla lagaskyldur við nemendur um rétt þeirra til náms- og starfsráðgjafar?

Sjálfstæðisflokkurinn telur að lausn á þessum vanda felist í því að veita nægu fjármagni svo hægt sé að bjóða upp á náms- og starfsráðgjöf samkvæmt tilvitnuðum lögum. Fjárveitingar til grunnskóla eru á forræði sveitarfélaga.

Með því að breyta fyrirkomulagi framhaldsskólanáms úr fjögurra ára kerfi yfir í það kerfi sem tíðkast víðast hvar annars staðar hefur skapast svigrúm innan skólakerfisins til þess að hækka fjárframlög á hvern nemanda verulega í framhaldsskólakerfinu.

Undir forystu Sjálfstæðisflokksins hefur verið tekin ákvörðun um að fjárframlög á hvern framhaldsskólanema hækki úr rúmum 900 þúsund krónum á hvern nemanda þegar minnst var árið 2012 og upp í 1.600 þúsund krónur árið 2021 samkvæmt samþykktri og fullfjármagnaðri fjármálaáætlun 2017-2021. Fjárhæðirnar eru á föstu verðlagi ársins 2016. Svigrúm er til enn frekari hækkana en hér greinir innan fjármálaáætlunarinnar.

Hér er um að ræða vatnaskil í starfsemi framhaldsskólanna og algjöran viðsnúning á þeirri alvarlegu stöðu sem var komin upp á síðasta kjörtímabili. Með þessu hefur Sjálfstæðisflokkurinn sýnt vilja sinn í verki.


Í lögum um framhaldsskóla kemur fram með skýrum hætti að mæta eigi kostnaði nemenda vegna námsgagna. 
7. Hvað vill þinn flokkur gera til að uppfylla þessar lagaskyldur við nemendur?

Hafa ber í huga að tilvitnuð lagagrein, 51. gr. laga um framhaldsskóla, er óvirk þar sem fjárveitingavaldið hefur ekki veitt fé til hennar frá því að lög um framhaldsskóla tóku gildi þann 1. ágúst 2008.

Lagagreinin á rætur sínar að rekja til stefnuyfirlýsingar fyrri ríkisstjórnar frá því í maí 2007, en sú ríkisstjórn starfaði eins og kunnugt er eingöngu fram að kosningum snemma árs 2009. Það er því háð forgangsröðun og vilja hverrar ríkisstjórnar fyrir sig, en Sjálfstæðisflokkurinn hefur forgangsraðað fjármunum í þágu framhaldsskóla til þess að mæta miklum niðurskurði í kjölfar efnahagskreppu. Þannig hefur verið hægt að hækka laun framhaldsskólakennara
verulega á kjörtímabilinu, en launin hafa hækkað um 43% þegar fyrri hluti árs 2016 er borinn saman við fyrri hluta árs 2013.

Eins og að framan greinir hefur undir forystu Sjálfstæðisflokksins verið tekin ákvörðun um að fjárframlög á hvern framhaldsskólanema hækki úr rúmum 900 þúsund krónum á hvern nemanda þegar minnst var árið 2012 og upp í 1.600 þúsund krónur árið 2021 samkvæmt samþykktri og fullfjármagnaðri fjármálaáætlun 2017-2021. Fjárhæðirnar eru á föstu verðlagi ársins 2016. Svigrúm er til enn frekari hækkana en hér greinir innan fjármálaáætlunarinnar.


Í lögum og námskrám leik-, grunn- og framhaldsskóla er meðal annars lögð áhersla á sveigjanleg skil milli skólastiga sem leiðir af sér að lengd námstíma frá upphafi leikskóla til loka framhaldsskóla getur verið mismunandi út frá þörfum barna og ungmenna. Í tengslum við fjárlög 2015 tók menntamálaráðherra einhliða ákvörðun um styttingu náms og námstíma í framhaldsskólum og um takmarkanir á aðgengi að framhaldsskólum á grundvelli aldurs. 
8. Hvernig sér þinn flokkur fyrir sér sveigjanleg skil milli skólastiga? 

Sjálfstæðisflokkurinn telur að nám og námshraði nemenda eigi að ráðast af þekkingu, færni og félagslegum þroska hvers og eins. Í 15. kafla aðalnámskrár grunnskóla er fjallað um tengsl á milli skólastiga.

Sjálfstæðisflokkurinn telur að yngri börn ættu að geta hafið grunnskólagöngu fyrr en við 6 ára aldur ef aðstæður leyfa, félagslegur þroski þeirra gefur tilefni til og foreldrar þeirra æskja þess. Í þessu sambandi telur Sjálfstæðisflokkurinn mikilvægt að upplýsingagjöf og samstarf milli skólastiga sé háttað þannig að það þjóni þörfum nemenda sem allra best og veiti jafnframt kennurum og foreldrum sem gleggstar upplýsingar til þess að meta stöðu nemenda.

Það er í samræmi við stefnu Sjálfstæðisflokksins um að nám sé einstaklingsmiðað og þjóni sem best hagsmunum hvers nemanda, hvort sem hann þarf á auknum stuðningi að halda eða meira af krefjandi verkefnum til að þroskast og dafna.

Bent skal á að núgildandi lög um framhaldsskóla gera ráð fyrir því að nemendur sem lokið hafa grunnskólanámi eiga rétt til innritunar í framhaldsskóla. Sjálfstæðisflokkurinn styður það fyrirkomulag, sem þýðir m.a. að nemendur sem hafa náð félagslegum þroska og færni í grunnskóla til jafns við þá sem lokið hafa hefðbundinni grunnskólagöngu, geta innritast í framhaldsskóla.

Hvað styttingu framhaldsskólans varðar þá bendir Sjálfstæðisflokkurinn á að breytingin hefur heppnast afar vel og mælst vel fyrir meðal nemenda og skólasamfélagsins. Nær allir skólar hafa þegar innleitt breytinguna.

 

Samkvæmt skýrslu sem hagfræðistofnun Háskóla Íslands vann fyrir mennta- og menningarmálaráðuneyti má gera ráð fyrir 14-17 milljarða króna aukningu á þjóðarframleiðslu á ári vegna breytingarinnar. Jafnframt hefur aðgerðin skapað svigrúm til þess að bæta laun kennara mjög mikið og hækka verulega framlög á hvern nemanda eins og rakið hefur verið. 
9. Hver er afstaða þíns flokks til takmarkana á aðgengi að framhaldsskólum á grundvelli aldurs? 

Í tíð núverandi ríkisstjórnar var tekin ákvörðun um að fara að fordæmi Svía og Norðmanna hvað varðar námsframboð fyrir fullorðið fólk, þ.e. þá sem eru eldri en 25 ára. Í samræmi við fyrirkomulag Svía og Norðmanna var fjármunum inni í framhaldsskólum forgangsraðað í þágu námsmanna á aldrinum 16-25 ára. Skref í þá átt höfðu áður verið tekin með reglugerð nr. 204/2012.

Sjálfstæðisflokkurinn telur að leiða megi líkum að því að sömu kennsluhættir, aðstæður og námsframboð henti almennt ekki 16 ára börnum sem hafa nýlokið grunnskóla eins og þeim sem eru vel komnir á fullorðinsaldur, hafa starfsreynslu, skuldbindingar og eftir atvikum börn. Reynslan hefur sýnt að brottfall meðal eldri nemenda sem stunda bóknám í framhaldsskólum er mjög hátt hér á landi og námsframvinda slök.

Þess vegna hefur aukin áhersla verið lögð á fullorðinsfræðslu fyrir eldri nemendur og fjárframlög hins opinbera til fullorðinsfræðslu verið þrefölduð að raungildi seinasta áratuginn. Þannig er hægt að bjóða eldri nemendum sem vilja afla sér menntunar á framhaldsskólastigi nám sem hentar þeirra aðstæðum betur en hið hefðbundna framhaldsskólanám.

Í fullorðinsfræðslu er starfsreynsla gjarnan metin til menntunar með svokölluðu raunfærnimati, sem er ekki til staðar í framhaldsskólum. Markmið fullorðinsfræðslunnar er að gefa öllum sem vilja kost á að sækja sér síðar framhaldsnám á háskólastigi eða að halda aftur til starfa með aukna þekkingu og færni. Jafnframt er markmiðið að draga úr brottfalli, bæta námsframvindu og auka þjónustustig, bæði fyrir yngri og eldri nemendur.

Í Svíþjóð og Noregi eru aldurstakmarkanir inn í framhaldsskóla. Í Noregi er miðað við að framhaldsskólanámi skuli lokið fyrir 25 ára aldur, en í Svíþjóð eru nemendur ekki innritaðir í framhaldsskóla séu þeir eldri en 20 ára.

Hér á landi er því öfugt háttað. Framhaldsskólum er heimilt að innrita nemendur að uppfylltum skilyrðum laga um framhaldsskóla, óháð aldri. Afar fátítt er að eldri nemendum sé synjað um inngöngu inn í framhaldsskóla á bóknámsbrautir og því hæpið að tala um takmarkanir á aðgengi hér á landi, þó að framhaldsskólarnir henti sem fyrr segir fyrst og fremst nemendum á framhaldsskólaaldri.


Tónlistarskólakennarar standa eina ferðina enn í erfiðri kjaradeilu en á tímabilinu 2008 til 2016 hefur launabilið milli þeirra og annarra kennarahópa breikkað stöðugt, þeim fyrri í óhag, þrátt fyrir fullyrðingar opinberra aðila um sambærileg laun fyrir sambærilega menntun og störf.
10. Hver er afstaða þíns flokks til mats á menntun og störfum tónlistarskólakennara til launa samanborið við aðra sambærilega kennarahópa? 

Sjálfstæðisflokkurinn telur eðlilegt að fólk fái greitt sambærileg laun fyrir sambærileg störf. Í þessu sambandi skal bent á að laun tónlistarkennara eru á forræði sveitarfélaga, en eins og kunnugt er hafa ákveðin sveitarfélög sinnt tónlistarkennslu og fjárframlögum til hennar afar illa.

Aftur á móti hefur núverandi ríkisstjórn veitt auknum fjármunum af hálfu ríkisins til málaflokksins og meðal annars samið um að stofnaður verði framhaldsskóli í listum með áherslu á tónlistarkennslu.

Í því felst að Sjálfstæðisflokkurinn hefur tekið þá afstöðu að tónlistarkennslu sé gert jafnhátt undir höfði eins og annarri menntun á framhaldsskólastigi þegar kemur að því að undirbúa nemendur undir frekara nám og störf. Um er að ræða eitt stærsta og mikilvægasta skref í þágu tónlistarkennslu í langan tíma hér á landi.

11. Hver er afstaða þíns flokks til lögverndunar starfsheitisins tónlistarskólakennari?

Sjálfstæðisflokkurinn telur að lögverndun starfsheita skuli ekki beitt nema almannahagsmunir krefjist þess.
 


{slider Viðreisn}

1. Hvað vill þinn flokkur gera til að leysa brýna nýliðunarþörf í kennarastéttinni?

Starfsumhverfi grunnskólakennara þarf að endurhugsa. Vinnuumhverfið er óspennandi og laðar því ekki að nýtt fólk. Vegna álags hafa kennarar ekki nægan tíma til að kynna sér nýjustu rannsóknir í kennslufræðum.
Bæta þarf kjör og starfsaðstöðu kennara á öllum skólastigum. Nám í leikskóla- og grunnskólafræðum þarf að endurskoða. Fjölga þarf námsleiðum innan framhaldsskóla og framhaldsfræðslunnar með það fyrir sjónum að einstaklingar hafi greiðari leið í nám í leik- og grunnskólafræði á háskólastigi, óháð búsetu.
Lág laun og mikið álag fara illa saman og eru ekki til þess fallin að laða fólk til starfa. Það felst ákveðið gildismat í kjörum kennara. Viðreisn vill beita sér fyrir því að kennurum verði gert hærra undir höfði í samfélaginu okkar. Jafnframt þarf að draga úr álagi á kennurum með því að ráða til starfa í skólunum fólk með sérþekkingu á öðrum sviðum sem snúa að getu nemenda til þess að stunda nám. Sérstakra aðgerða er þörf til þess að laga þann alvarlega skort á kennurum sem nú blasir við. Eins væri hægt að greiða leið leiðbeinanda sem nú þegar starfa innan skólanna til náms.
Núverandi ástand er það slæmt að grípa þarft til sérstakra tímabundinna aðgerða líkt og að veita styrk/stuðning til þeirra sem vilja fara í kennara- og leikskólanám t.d. næstu fimm árin. Nýta þarf þekkingu þeirra sem hafa starfað innan leikskóla/grunnskóla t.a.m. með raunfærnimati til að stytta námið.
Viðreisn leggur áherslu á að námslánakerfi LÍN skuli vera árangurshvetjandi og vill skoða af alvöru hvort ná megi fram jákvæðum hvötum í gegnum námslánakerfið, t.d. með því að hækka hutfall beinnar styrkveitingar á móti hlutfalli lánsfjár fyrir nemendur í þjóðfélagslega mikilvægum fögum þar sem aðskókn er of lítil. Einnig mætti bjóða upp á hagstæðari endurgreiðslukjör fyrir nemendur í slíkum greinum og mætti til að mynda tengja kjörin við starfstíma nemenda á viðkomandi sviðum eftir að námstíma lýkur. Vert er að skoða hvort beita megi slíkum aðerðum til þess að laða einstaklinga með tiltekna hæfni í kennaranám og til starfa í skólakerfinu, með það fyrir augum að efla kennslu í tilsvarandi námsgreinum. Nefna mætti stærðfræði, raungreinar og tölvunarfræði í þessu sambandi.

2. Hvaða leiðir vill þinn flokkur fara til að fjölga körlum í kennarastétt?
Það þarf að koma af stað samfélagslegu átaki til úrbóta og hér þurfa karlmenn líka að vera fyrirmyndir. Þá þarf að huga að fjölgun karlkyns kennara við Menntavísindasvið. Hugmyndir hafa verið reifaðar í þá veru að umbuna skólastofnunum fyrir viðleitni til þess að jafna kynjahlutföll. En forsenda fyrir jöfnun kynjahlutfalla er jafnari áhugi kynjanna á starfinu. Viðreisn er opin fyrir þeirri hugmynd að beita námslánakerfinu til þess að vinna á kynbundnu náms- og starfsvali. Viðreisn hefur sett jafnréttismál á oddinn í sinni stefnumótun. Flokkurinn ætlar að útrýma kynbundnum launamun og vill stuðla að jafnvægi í náms- og starfsvali. Þessi stefna á við um samfélagið allt, en hún á þó sérstaklega við á þeim sviðum sem snúa að með beinum hætti að börnum, enda skipta fyrirmyndir miklu máli við mótun kynjaviðhorfa.

3. Hvernig vill þinn flokkur vinna að skóla fyrir alla?
Ísland hefur skrifað undir Salamanca yfirlýsinguna um skóla fyrir alla. Menntun er frumréttur hvers barns og stjórnvöldum ber skylda til þess að gera börnum kleift að ná viðunandi menntunarstigi. Hæfileikar, geta og þarfir nemenda eru mismunandi og við þurfum að tryggja aðgengi allra barna að skóla við þeirra hæfi sem næst heimili þeirra, að sérskólum, eða sérdeildum innan skóla, t.d. fyrir einhverf börn, þar sem starfsfólk hefur sérþekkingu og þar sem stöðugleiki er í starfsmannahaldi. Aðgengi að sérfræðiráðgjöf, sálfræðigreiningum og ekki síst ráðgjöf þarf einnig að auka þannig að hægt sé að byrja að vinna fyrr með einstaklingum með sérþarfir. Nauðsynlegt er að tryggja greiningu á sérþörfum og viðeigandi úrræðum svo flótt sem auðið er.

4. Hvernig vill þinn flokkur vinna að aukinni velferð barna og ungmenna?
Mikilvægt er að hver og einn hljóti góða grunnmenntun en kerfið hlúi jafnframt að hæfileikum nemanda þannig að sjálfsmynd hans styrkist. Segja má að allt skólaskylt nám ætti að efla nemanda að lífsleikni og allar greinar ættu því að flokkast sem undirgreinar lífsleikni. Samfelldur skóladagur, þar sem hreyfing er fléttuð inn í skólastarf, styður við velferð barna og hefur forvarnargildi. Viðreisn leggur áherslu á að hugmyndafræði heilsueflandi grunnskóla skuli höfð til hliðsjónar við þróun skólastarfs og að huga þurfi að hreyfingu nemenda, næringu og geðrækt. Sálfræði- og geðheilbrigðisþjónusta á að vera hluti af almenna heilbrigðiskerfinu. Mestu máli skiptir þó að skólaumhverfið – skipulag þess og áherslur – sé með þeim hætti að einstaklingar fái notið styrkleika sinna í skóla strax frá upphafi. Auka þarf áherslu á að efla grunnfærni allra nemenda í lestri og stærðfræði (rök- og málgreind) strax í upphafi til að tryggja að einstaka nemendahópar dragist ekki aftur úr. Í þessu sambandi er vert að huga sérstaklega að stöðu drengja sem og nemenda sem eiga annað móðurmál en íslensku.
Viðreisn leggur áherslu á að námsframboð og kennsluhættir verði fjölbreyttir. Skólarnir verða að gera hverjum og einum kleift að rækta hæfileika sina og finna sér farveg við sitt hæfi. Þess vegna vill Viðreisn m.a. gera skapandi kennslu, list- og verknámi hærra undir höfði. Ein helsta örsök skólaleiða (og síðar brottfalls úr skóla) er sú að nemendum er beint á þá braut sem þeim hentar best. Hér er þörf á almennri hugarfarsbreytingu í samfélaginu, en einnig þarf að tryggja skólunum getu til þess að greina þarfir nemenda og svigrúm til þess að mæta þeim.

5. Hvernig vill þinn flokkur vinna að menntun án aðgreiningar?
Skóli án aðgreiningar hefur ekki gengið sem skyldi. En hópur barna og ungmenna fær ekki úrræði við hæfi þar sem innritun í sérskólana er afar takmörkuð. Skóli án aðgreiningar er aftur á móti gott tæki til að ýta við menntastofnunum um að mæta öllum einstaklingum sem kjósa að mennta sig á efri stigum og sömuleiðis að byggja upp leik- og grunnskóla sem geta að mestu leyti mætt þörfum flestra. Skilgreina þarf betur þá þjónustu sem innt er af hendi í almennum skólum.
En um leið er mjög brýnt og mikilvægt að stutt sé við sérskólana þeir eru nauðsynlegir til aukinna lífsgæði fyrir hóp barna og ungmenna.
Mikilvægt er að foreldrar hafi val þegar kemur að skóla fyrir börn sín því þarf bæði að fjölga plássum í sérskólum fyrir þá sem það velja en jafnframt að styrkja almenna skóla til þess að taka á móti nemendum með sérþarfir. Í því miði er brýnt að fjölga starfsmönnum skólanna með viðeigandi menntun og reynslu.

6. Hvað vill þinn flokkur gera til að uppfylla lagaskyldur við nemendur um rétt þeirra til náms- og starfsráðgjafar?
Viðreisn leggur áherslu á að efla enn frekar náms- og starfsráðgjöf í grunn- og framhaldsskóla. Í grunnskóla er náms- og starfsráðgjöf lögbundinn hluti af sérfræðiþjónustu skóla. Í aðalnámskrá grunnskóla er skilgreinst hlutverk náms- og starfsráðgjafa en það þarf að skilgreina það enn frekar og endurskoða starfslýsingu þeirra. Áhersla Viðreisnar er að náms- og starfsráðgjafi verði hluti af starfsemi skólans allt frá 1.til 10. bekkjar. Mikilvægt er að sjá til þess að upplýsingar og ráðgjöf um náms- og starfsval sé fyrir hendi strax í upphafi skólagöngu og sé hluti af námi barnanna og aðgengilegar öllum börnum meðan á skólagöngu stendur. Náms- og starfsráðgjafar og kennararar þurfa að kynna fyrir nemendum störf og þróun starfa sem fylgja breytingum í nútímasamfélagi. Með því að tengja skólann við atvinnulífið með t.d. fyrirtækjaheimsóknum, kynningu á störfum o.fl. er verið að koma til móts við ólíkar þarfir nemenda. Lengi hefur verið bent á mikilvægi náms- og starfsráðgjafar fyrir velferð nemenda og unnið hefur verið að stefnumótun en stjórnvöld hafa ekki fylgt henni eftir. Endurskoða þarf nám náms- og starfsráðgjafa með tilliti til þess að efla hæfni þeirra til að veita starfsráðgjöf. Sömuleiðis þarf að tryggja að lög um aðgengi að náms- og starfsráðgjöf séu uppfyllt. Veita þarf fjármagni til skólanna sem er sérmerkt náms- og starfsráðgjöf.

7. Hvað vill þinn flokkur gera til að uppfylla þessar lagaskyldur við nemendur?
Jafnrétti til náms óhað efnahag og búsetu er grunnforsenda í stefnu viðreisnar. Kostnaður við námsgögn framhaldsskólanema má ekki verða svo hár að hann komi í veg fyrir að efnaminni námsmenn hrökklist frá námi. Rétt er að fella niður VSK af námsbókum. Sérstaklega er mikilvægt að koma til móts við þá nemendur sem verst standa og rétt er að nemendur sem koma frá efnaminni fjölskyldum njóti stuðnings við kaup námsgagna.

8. Hvernig sér þinn flokkur fyrir sér sveigjanleg skil milli skólastiga?
Viðreisn hefur það langtíma stefnumið að lækka útskriftaraldur nemenda í framhaldsskólum um eitt ár. Þjóðhagslegur ávinningur af þeirri breytingu verður umtalsverður og kemur til með að veita svigrúm til þess að styrkja innviði skólakerfisins og bæta náms- og starfsumhverfi til muna. Miklvægt er að mótuð sé heildstæð stefna fyrir sveigjanleika á milli skólastiga. Skilgreina þarf tengingu milli grunnskóla og framhaldsskóla útfrá nýjum hæfniviðmiðum um menntun. Nemendur eiga ætið að eiga kost á námi við sitt hæfi. Skólakerfinu ber að hlúa að þeim sem eiga við námserfðileika að etja og eiga erfitt með að ná markmiðum síns aldurshóps. Að sama skapi ber að veita þeim nemendum stuðning og örvun sem geta farið hraðar yfir námsefnið. Þess vegna þarf að vera hægt að flýta námsferlum og flytjast milli skólastiga eftir getu en ekki eftir aldri. Skilin á milli leik- og grunnskóla eiga að vera mjúk, nemendur eiga að fá undirbúning fyrir grunnskólanám á lokaári leikskólans og leikur ætti að lifa sem námsaðferð á fyrstu árum grunnskólagöngu. Kennarar með leikskólamenntun og almenna kennaramenntun ættu að koma að skólastarfi á báðum skólastigum.

9. Hver er afstaða þíns flokks til takmarkana á aðgengi að framhaldsskólum á grundvelli aldurs?
Viðreisn er mótfallin takmörkunum á aðgangi að námi á grundvelli aldurs. Jafnrétti til náms á ekki að takmarkast af aldri. Á Íslandi er um 30% einstaklinga á vinnumarkaði sem ekki hafa lokið framhaldsskóla tryggja þarf aðgengi þeirra að framhaldsskólum, hvort heldur almennu námi eða starfsmenntun, óháð aldri. Jafnframt ættu þessar námsleiðir að vera aðgengilegar á öðrum stöðum en inni í framhaldsskólum fyrir eldri nemendur.

10. Hver er afstaða þíns flokks til mats á menntun og störfum tónlistarskólakennara til launa samanborið við aðra sambærilega kennarahópa?
Tónlistarkennarar ættu ekki að búa við lakari kjör en sambærilegir kennarahópar. Innan skólanna er unnið áhrifaríkt starfs em hefur mikið forvarnar- og lýðheilsugildi. Tilkoma og rekstur tónlistarskóla um allt land er ein af undirstöðum blómlegs tónlistarlífs á Íslandi, það hefur því mikilvægu samfélagslegu hlutverki að gegna og hefur að auki jákvæð hagræn áhrif. Viðreisn vill beita sér fyrir því að listnámi verði gert hærra undir höfði í samfélaginu.

11. Hver er afstaða þíns flokks til lögverndunar starfsheitisins tónlistarskólakennari?
Lögverndun starfsheitisins tónlistarkennari er mikilvæg. Jafnframt er mikilvægt að raunsæar kröfur liggi til grundvallar notkunar hans.

 


{slider Vinstrihreyfinging grænt framboð}

Þegar tölur um kynja- og aldurssamsetningu í kennarastéttinni eru skoðaðar blasir við brýn þörf fyrir nýliðun. Fjölmargir kennarar eru að hætta störfum vegna aldurs og nú þegar vantar 1.300 leikskóla-kennara til að uppfylla ákvæði laga um hlutfall stöðugilda leikskólakennara. Aðsókn í kennaranám helst engan veginn í hendur við nýliðunarþörfina. Kynjahlutfallið í stéttinni hefur breyst hratt og eru konur um 80% félagsmanna Kennarasambands Íslands.

1. Hvað vill þinn flokkur gera til að leysa brýna nýliðunarþörf í kennarastéttinni?
Gera þarf kennarastarfið að fýsilegri kosti, til dæmis með því að efla faglegt sjálfstæði kennara og leggja áherslu á skólaþróun á öllum skólastigum og tryggja fjármuni til hennar. Þá er rétt að skoða leiðir til að gera hluta af kennaranáminu að launuðu vettvangsnámi sem og aðrar leiðir til að laða fleiri í námið. Tekjuskipting ríkis og sveitarfélaga eru hér lykilatriði þar sem fjármögnun leik- og grunnskóla eru stór hluti útgjalda sveitarfélaganna og telst sannarlega til grunnþjónustu. 

2. Hvaða leiðir vill þinn flokkur fara til að fjölga körlum í kennarastétt? 
Kennaranámið þarf að efla verulega með því að auka fjölbreytni og tryggja viðunandi fjármögnun þess. Brýnt er að ráðast í kynningarátak á kennaranáminu og kennarastarfinu til að bregðast við kynjasjónarmiðum auk almennrar þarfar fyrir nýliðun í stéttinni.


Í lögum og námskrám leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla er skóli fyrir alla í forgrunni, velferð barna og ungmenna og menntun án aðgreiningar. Þessi mikilvægu ákvæði hafa ekki komist til framkvæmda.

3. Hvernig vill þinn flokkur vinna að skóla fyrir alla?
Mikilvægt er að skólakerfið bjóði öllum börnum og ungmennum jöfn tækifæri. Stuðningur við sterkan, opinberan skóla er áherslumál Vinstri grænna. Grunnskólinn er eitt mikilvægasta jöfnunartæki samfélagsins. Standa þarf vörð um fjölbreytta og öfluga opinbera grunnskóla þar sem kennarar, nemendur og fjölskyldur vinna saman að alhliða menntun og þroska barna og ungmenna. Framhaldsskólann þarf að styrkja umtalsvert með opinberum framlögum þannig að hann þurfi ekki að glíma við fjársvelti og einhliða, miðstýrðar kúvendingar eða kerfisbreytingar. Háskólastigið þarf að efla með það að markmiði að framlög á nemanda nái meðaltali OECD fyrir árið 2020. VG leggur áherslu á stórsókn í skólamálum á komandi kjörtímabili fyrir unga fólkið, atvinnulífið og samfélagið allt.

4. Hvernig vill þinn flokkur vinna að aukinni velferð barna og ungmenna?
Baráttan gegn fátækt og krafan um mannsæmandi kjör er verkefni stéttarfélaga en ekki síður kjörinna fulltrúa. Vinstri græn vilja halda slíkum áherslum til haga á hinu pólitíska sviði enda má stuðla að bættum kjörum með því að beita skattkerfinu til jöfnunar og setja sér það markmið að hverfa frá gjaldtöku í opinberu heilbrigðiskerfi. Því miður benda gögn til þess að 6000 börn líði einhvers konar skort í okkar ríka samfélagi sem er auðvitað með öllu óásættanlegt og viljum við Vinstri græn gera áætlun til að útrýma fátækt meðal barna.
Forvarnir eru mikilvægur þáttur í sterku samfélagi, þar sem íþróttir, tónlistarnám og aðrir frístundakostir standa börnum og ungmennum til boða óháð efnahag. VG leggur líka til styttingu vinnuvikunnar til að bæta lífsgæði fjölskyldunnar og auka samverutíma barna með sínum nánustu.

3. Hvernig vill þinn flokkur vinna að menntun án aðgreiningar?
Brýnast er þar að horfa til tekjuskiptingar ríkis og sveitarfélaga. Skóli án aðgreiningar gerir kröfu um aðgengilegt gæðahúsnæði, mikla sérfræðiþekkingu, öfluga stoðþjónustu og sveigjanlegt skólastarf. Skóli án aðgreiningar er einstaklingsmiðaður skóli sem kemur til móts við fjölbreyttar þarfir í fjölbreytu samfélagi. Samfélag án aðgreiningar ætti jafnframt að vera leiðarstef því skólinn er hluti af samfélaginu.


Í lögum og námskrám grunnskóla og framhaldsskóla er kveðið á um rétt nemenda til að njóta náms- og starfsráðgjafar af aðilum sem uppfylla skilyrði laga um náms- og starfsráðgjafa. Lengi hefur verið bent á mikilvægi náms- og starfsráðgjafar fyrir velferð nemenda og unnið hefur verið að stefnumótun en stjórnvöld hafa ekki fylgt henni eftir.

4. Hvað vill þinn flokkur gera til að uppfylla lagaskyldur við nemendur um rétt þeirra til náms- og starfsráðgjafar?
Enn og aftur er hér spurningin um fjármögnun á öllum skólastigum. Mikilvægt er að þessi lykilþáttur mæti ekki afgangi því örugglega er um sparnað að ræða í heildarsamhenginu sé náms- og starfsráðgjöf sómi sýndur á framhaldsskóla- og háskólastiginu.


Í lögum um framhaldsskóla kemur fram með skýrum hætti að mæta eigi kostnaði nemenda vegna námsgagna.

5. Hvað vill þinn flokkur gera til að uppfylla þessar lagaskyldur við nemendur?
Þetta ákvæði hefur setið á hakanum frá því að það var fest í lög, fyrst vegna þess að bág staða ríkissjóðs leyfði ekki aukin útgjöld. Þetta mál hefur ekki verið forgangsmál núverandi ríkisstjórnar. Vinstri græn vilja verða við þessari lagaskyldu, enda er oft um háar upphæðir að ræða þegar ungmenni kaupa nauðsynleg námsgögn.

 

Í lögum og námskrám leik-, grunn- og framhaldsskóla er meðal annars lögð áhersla á sveigjanleg skil milli skólastiga sem leiðir af sér að lengd námstíma frá upphafi leikskóla til loka framhaldsskóla getur verið mismunandi út frá þörfum barna og ungmenna. Í tengslum við fjárlög 2015 tók menntamálaráðherra einhliða ákvörðun um styttingu náms og námstíma í framhaldsskólum og um takmarkanir á aðgengi að framhaldsskólum á grundvelli aldurs. 

6. Hvernig sér þinn flokkur fyrir sér sveigjanleg skil milli skólastiga?
Það er stefna Vinstri grænna að skólastarf njóti faglegs sjálfstæðis í sem ríkustum mæli á öllum skólastigum og telja að slíkt sjálfstæði skipti einnig sköpum í því að kennsl sé aðlaðandi fyrir ungt fólk sem er að taka ákvarðanir um menntun og framtíð. Þarna þurfa stjórnvöld - bæði ríki og sveitarfélög - að treysta skólunum sjálfum fyrir auknum samstarfsmöguleikum og þróunarstarfi á öllum skólastigum. Lykilorðið hér er traust milli skóla og stjórnvalda, fagmennska og sveigjanleiki með þarfir nemendanna að leiðarljósi.

7. Hver er afstaða þíns flokks til takmarkana á aðgengi að framhaldsskólum á grundvelli aldurs?
Vinstri græn vilja hverfa frá einhliða breytingum á framhaldsskólanum, sem birtast í styttingu framhaldsskólans. Það er mikilvægt að framhaldskólarnir hafi svigrúm til að móta eigið starf, þannig að námslok geti tekið mið af faglegu mati þeirra sem stjórna viðkomandi skóla og þörfum nemenda skólans. Ekki síður er mikilvægt að fólk á öllum aldri eigi þessi kost að nýta sér opinbera menntakerfið.


Tónlistarskólakennarar standa eina ferðina enn í erfiðri kjaradeilu en á tímabilinu 2008 til 2016 hefur launabilið milli þeirra og annarra kennarahópa breikkað stöðugt, þeim fyrri í óhag, þrátt fyrir fullyrðingar opinberra aðila um sambærileg laun fyrir sambærilega menntun og störf.

8. Hver er afstaða þíns flokks til mats á menntun og störfum tónlistarskólakennara til launa samanborið við aðra sambærilega kennarahópa?
Mikilvægt er að tryggja tónlistarmenntun um land allt og festa starfsemi tónlistarskóla í sessi. Til að ná því fram þarf að gera framhaldsstig í tónlistarnámi að verkefni ríkisins og tryggja tónlistarskólakennurum laun í samræmi við menntun og sérhæfingu.

9. Hver er afstaða þíns flokks til lögverndunar starfsheitisins tónlistarskólakennari?
Þetta starfsheiti er ekki lögverndað og margir tónlistarmenn sem eru að kenna eru ekki með kennarapróf en auðvitað þekkjum við rökin með því að lögvernda þetta starfsheiti sem hefur verið baráttumál Félags tónlistarkennara. Vinstri græn hafa ekki mótað sér endanlega afstöðu í málinu en myndu leggja áherslu á að kalla fólk að borðinu til umræðu um þetta mál og reyna að skapa samstöðu um hvert eigi að stefna og hvernig.

{/sliders}