Hvað verður um dýrin í eldgosi?

Börnin á Eiði í Leikskóla Seltjarnarness tóku þátt í Hönnunarmars sem fram fór í sumar. Þau eru fyrstu leikskólabörnin sem verða þess heiðurs aðnjótandi að taka þátt í þessari hönnunarhátíð. Sýningargripir barnanna voru sérlega glæsilegir, sautján hangandi jarðarkringlur, fagurlega skreyttar eldfjöllum og ýmsu öðru.
Við fundum strax í byrjun árs að krakkarnir höfðu mikinn áhuga á eldfjöllum og við ákváðum að fylgja því eftir,“ segir Helga Lotta Reynisdóttir leikskólakennari í Leikskóla Seltjarness, um tilurð verkefnisins Eldurinn í jörðinni sem ekki aðeins fól í sér mikinn fróðleik fyrir börnin á deildinni Eiði heldur rataði afraksturinn, sem fyrr segir, fyrir almannaaugu á glæsilegri sýningu í Norræna húsinu.
Helga hélt utan um eldfjallaverkefnið, ásamt samstarfsfólki á deildinni Eiði. Hún segir verkefnið til komið vegna þess að í Leikskóla Seltjarnarness er unnið með frumefnin; jörð eld, loft og vatn. Þegar árið 2020 gekk í garð var komið að jörðinni.
„Við byrjuðum að velta jörðinni fyrir okkur og krakkarnir komu strax með margar góðar hugmyndir. Umræðan spannst svo áfram á þann veg að þau fóru að velta fyrir sér eldfjöllum; bæði eldfjöllunum okkar hér á landi og líka úti í heimi,“ segir Helga um fyrstu skrefin í verkefninu.
Þekkingarleitin í fyrirrúmi
Könnunaraðferðin er í hávegum höfð í leikskólanum og segir Helga að þegar krakkarnir á Eiði hófu að færa umræðuna um jörðina yfir á svið eldsumbrota og jarðhræringa hafi verið ákveðið að fylgja því eftir. „Við skynjuðum áhuga þeirra og ekki leið langur tími þar til hópurinn var farinn að sökkva sér í alls kyns pælingar um eldgos og eldfjöll."
Könnunaraðferðin byggir meðal annars á því að grípa hugmyndir barnanna, hjálpa þeim að þróa þær áfram, í gegnum verkefni og með vettvangsferðum,“ segir Helga og bætir við að verkefnið hafi frá upphafi verið samvinnuverkefni þar sem þekkingarleit barnanna var í fyrirrúmi.
Við skynjuðum áhuga þeirra og ekki leið langur tími þar til hópurinn var farinn að sökkva sér í alls kyns pælingar um eldgos og eldfjöll.
„Það er svo frábært að fylgjast með hvernig hugmyndirnar þróast í svona verkefni og viðfangsefnið tekur smám saman á sig mynd. Við vitum ekki hvert förinni er heitið enda okkar hlutverk að elta hugmyndir barnanna og aðstoða þau við að fara lengra, verða meiri sérfræðingar í því sem þau hafa áhuga á. Þannig hófumst við handa í janúar með því að kynna jörðina, fengum lánað hnattlíkan sem börnin skoðuðu í þaula, notuðum spjaldtölvurnar til að skoða myndir af jörðinni og velta fyrir okkur mismunandi sjónarhornum. Smám saman beindust sjónir þeirra að eldfjöllum og eldgosum,“ segir Helga.
Góðir gestir glæða áhugann enn frekar
Mikilvægt er að hlusta á hugmyndir barnanna, segir Helga, og því lá næst við að afla upplýsinga um eldfjöll og jarðhræringar. „Við veltum fyrir okkur hvert best væri að leita til að fræðast um eldfjöll og hvort við gætum nálgast einhvern eða einhverja sem þekkja til þessara mála,“ segir Helga.
Það reyndist góð hugmynd að leita út fyrir leikskólann og fyrstur fyrir valinu varð Jónas Þór Steinarsson, afi eins stráksins á deildinni. Jónas, sem er ríflega sjötugur, upplifði Vestmannaeyjagosið í janúar 1973.
„Hann var svo glaður að koma til okkar og ekki spillti fyrir hversu góða hlustendur hann fékk. Jónas sagði frá því hvernig var að vakna upp við eldgos um miðja nótt. Börnin tóku virkan þátt í samtalinu og voru með spurningar sem þau höfðu undirbúið, svo sem um hvort fólk hefði getað tekið dótið sitt með sér, hvernig veðrið var, hvort fólk hefði farið á flugvöllinn og hvort eyjafólk hefði fengið skilaboð í símann sinn. Jónas svaraði öllum spurningum barnanna. Það sem brann einna mest á börnunum var hvað hefði orðið um dýrin, kýrnar og kindurnar til dæmis. Þau sýndu samkennd með dýrunum sem voru auðvitað skilin eftir,“ segir Helga.
Það sem brann einna mest á börnunum var hvað hefði orðið um dýrin, kýrnar og kindurnar til dæmis.
Næsta gesti var líka tekið afar vel. Þar var á ferð Sólveig G. Hannesdóttir, líffræðikennari í MR og móðir barns á deildinni. „Sólveig kom með heilmikinn farangur, steingervinga, ösku úr Eyjafjallajökli, hrafntinnu og baggalúta sem börnin gerðu tilraunir með. Hún kom líka með líkan af jörðinni sem börnin gátu skoðað og tekið í sundur. Þetta var alveg frábær heimsókn og kveikti enn meiri áhuga á jarðfræðinni.“
Þessar heimsóknir eru gott dæmi um samstarf leikskólans við foreldra og fjölskyldur barnanna. Helga segir verkefnið hafa verið unnið í góðu samstarfi við heimilin og ýmis tengsl nýtt til að glæða verkefnið enn frekar.
Börnin setjast á háskólabekk
Vettvangsferðir eru hluti af könnunaraðferðinni og einn kaldan morgun seint í febrúar lögðu börnin ásamt kennurum í ferðalag sem endaði í Háskóla Íslands, nánar til tekið í Öskju, húsi jarðfræðinnar. Þar beið einn helsti sérfræðingur þjóðarinnar í jarðfræði, Magnús Tumi Guðmundsson prófessor, eftir krökkunum.
„Magnús Tumi tók afar vel á móti okkur og hélt frábæran fyrirlestur fyrir krakkana. Hann hafði á orði að hann hefði ekki áður kennt svo ungum nemendum. En honum fórst það vel úr hendi og krakkarnir nutu þess að hlusta og fræðast, ekki síður en við fullorðna fólkið.“
Verklegi þáttur þessa mikla verkefnis er ónefndur en börnin unnu hörðum höndum að því að búa til hnetti, hvert með sínu lagi auðvitað.
„Þetta tók margar vikur en stefnan var að þetta yrði tilbúið í mars, í Hönnunarmars. Við notuðum blöðrur sem innvols í hnettina og síðan þurfti að líma mikið magn af pappír utan á sem síðan var málaður. Börnin létu ekki þar við sitja og í sameiningu bjuggu þau til stærðar eldfjall. Við nutum aðstoðar starfsmanna og kennara á deildinni og ekki síst Kristínar Vilborgar sem er sérgreinastjóri í listaskála leikskólans.“
Eldfjallið er sérlega glæsilegt, hátt og tignarlegt, og var það flutt með sendibíl í Norræna húsið.
Samheldni og einskær gleði í starfsmannahópnum
Þegar leið nær Hönnunarmars var staðan hins vegar breytt. COVID-19 skók samfélagið og hátíðarhöldunum var frestað.
Börnin höfðu þá og þegar valið sýningunni nafn, Eldurinn í jörðinni skyldi hún heita. Tíminn leið og um mitt sumar var hægt að halda hátíðina og opna sýninguna í Norræna húsinu. Sýningaropnunin var hátíðleg, öll börnin mættu prúðbúin og salinn fylltu foreldrar, systkini, ömmur, afar og aðrir ættingjar.
„Þetta var falleg stund og mikil gleði í loftinu. Jarðirnar sómdu sér vel í sýningarrýminu og þetta gat ekki tekist betur til,“ segir Helga og bætir við að verkefni á borð við þetta sé ekki bara jákvætt fyrir börnin heldur hafi þetta haft mjög góð áhrif á starfsandann í leikskólanum. „Við fengum öll mikið út úr þessu verkefni. Samheldnin er mikil meðal kennara og starfsfólks og það eru engar ýkjur að segja að við vorum öll saman í þessu og gleðin var einskær,“ segir Helga Lotta Reynisdóttir.
Þessi umfjöllun var birt í Skólavörðunni, 1. tbl. 2020