Hvað skiptir máli?

Fréttir|1. september 2020
Pistill

Þeim þjóðum hefur gengið best á heimsvísu sem búa við menntakerfi þar sem traust ríkir til skólafólks. Þar hafa börn fengið mesta menntun.

Síðustu mánuði hefur komið í ljós sem aldrei fyrr hvaða hlutverk skólinn og skólaganga barna og ungmenna hafa í samfélaginu. Skólar eru ekki eylönd sem standa fyrir utan samfélagið heldur eru þeir lífæð hvers samfélags og miðja. Í vor stóð skólafólk frammi fyrir margs konar áskorunum og lagði mikið á sig til að halda skólakerfinu gangandi og tryggja börnum og ungmennum eins mikið nám og mögulegt var. Skólafólkið studdi samstarfsfólk sitt, varði þá grunnstoð sem menntakerfið er og vann þannig að auknum jöfnuði í samfélaginu.

Þegar ljóst var nú í sumar að þetta væri ekki alveg búið þá þyrmdi yfir marga. Það var svolítið öðruvísi að ráðast í verkefni eins og vertíð að vori með þá hugsun að brátt tæki blítt sumar við en að hugsa ástandið til lengri tíma. Það er erfiðara að hefja skólastarf að hausti sem er óhefðbundið, felur í sér minni samveru inn í skólunum og krefst þess að sífellt sé hugað að ótal nýjum útfærslum og leiðum. Einnig er erfitt að hugsa til þess að vita ekki hvort verið er að undirbúa nýjan veruleika í þrjár til fjórar vikur eða jafnvel einhver ár.

Menntun snýst um fleira en aðeins það sem stendur í skólabókunum. Áríðandi er að viðhalda innihaldsríkum tengslum milli barna, fjölskyldna og skólasamfélags. Sérstaklega er það mikilvægt fyrir þá nemendur sem skortir seiglu og hafa ekki tamið sér námsaðferðir sem henta til að læra á eigin spýtur. Því er mjög mikilvægt að börn og ungmenni geti stundað nám sitt í skólunum og notið samvista við samnemendur og kennara með sem eðlilegustum hætti.

Alheimssamtök kennara; Education International - EI hafa tekið saman fimm þætti sem mikilvægt er fyrir skólasamfélagið að huga að á næstu vikum og mánuðum og eru þeir reifaðir hér á eftir og aðlagaðir að íslenskum veruleika.

1. Þátttaka í stefnumótun og virkt samráð

Á tímum sem þessum skiptir mjög miklu að skólafólk og samtök kennara séu höfð með í ráðum og taki vikan þátt í stefnumótum. Mjög vel kom í ljós síðastliðið vor þegar gefin voru út tilmæli um að ákveðin fjölda- og lengdartakmörk giltu í skólastarfi að nærri óhugsandi var að útfæra skólastarf í samræmi við þau viðmið. Sem betur áttu kennarasamtökin þá í stöðugu og nánu samráði við menntamálayfirvöld og hagsmunaaðila og voru þátttakendur í ákvarðanatöku. Þess vegna má segja að skólahald hafi verið með besta hugsanlega hætti miðað við aðstæður. Kennarar, náms- og starfsráðgjafar og skólastjórnendur fengu stórt verkefni í fangið og leystu það af mikill fagmennsku og endurskipulögðu skólastarfið á svo til einni nóttu og svo aftur ef á þurfti að halda. Auðvitað mátti eitthvað betur fara. En með því að taka þátt í umræðum og með því að koma að stefnumótum stuðlaði skólafólk að lýðræði, félagslegu réttlæti og jöfnuði.

Það kom líka vel í ljós þá á meðal þjóða heimsins að þar sem ákvarðanir voru teknar í samráði við samtök kennara og skólafólk gengu hlutirnir best. Víða í heiminum hefur allt skólahald legið niðri svo mánuðum skiptir.

Algerlega nauðsynlegt er því að samráð sé milli kennara, skólastjórnenda og stjórnvalda þegar svona stendur á. Það er skólafólkið sem hefur þá fagþekkingu sem þarf til að móta árangursríka stefnu sem styður við nám nemenda og tryggir gæðamenntun fyrir alla. Það eru kennarar, náms- og starfsráðgjafar og skólastjórnendur sem geta brugðist við á hverjum degi og breytt skólastarfi nemendum til hagsbóta.

2. Heilsa og öryggi

Einboðið er að tryggja heilsu og öryggi þeirra er starfa innan skólasamfélagsins sem og nemenda. Skýrar leiðbeiningar um sóttvarnir sem og fyrirbyggjandi aðgerðir til að hefta útbreiðslu vírussins eru nauðsynlegar til að halda börnum, ungmennum og starfsfólki skóla öruggu og heilbrigðu.

Tryggt þarf að vera að auðvelt sé að fylgja sóttvarnarleiðbeiningum og allir, bæði starfsfólk og nemendur þurfa að vera upplýst og þjálfuð til að fylgja nýjum leiðbeiningum. Starfsfólk þarf að hafa öruggan aðgang að persónulegum hlífðarbúnaði og viðbótarfé og opinber yfirvöld þurfa að tryggja starfsmannahald. Að auki þarf að taka mið af aðstæðum viðkvæmra hópa hvort sem það eru nemendur, starfsfólk eða fjölskyldur þeirra.

3. Áhersla á jöfnuð

Við skipulag alls skólastarfs þarf að hafa jöfnuð að leiðarljósi. Ein verstu áhrif heimsfaraldursins eru að hann hefur komið niður á börnum og ungmennum með mismunandi hætti. Margvíslegar ástæður geta verið fyrir því að nemendur eiga erfitt með að sinna námi heiman frá. Má þar nefna ónógan stuðning heima fyrir, þrengsli, ofbeldi og fátækt svo eitthvað sé nefnt. Skólakerfið er besta tækið sem við höfum til að auka jöfnuð milli barna og skapa þeim svipuð tækifæri. Þess vegna þarf að setja í algeran forgang nú að halda skólakerfinu gangandi og huga að líðan barna og ungmenna.

Einnig þarf að móta stefnu og takast á við aukið brottfall úr framhaldsskólum. Þá nefna alþjóðasamtök kennara; EI að veita þurfi aðstæðum stúlkna sérstaka athygli þar sem þær verði fremur fyrir andlegu, líkamlegu og kynferðislegu ofbeldi heima fyrir.

4. Stuðningur við líkamlega og andlega heilsu barna, ungmenna og starfsfólks skóla

Ríkulegan stuðning þarf til að styrkja líðan og geðheilsu barna, ungmenna og starfsfólks skóla. Má þar nefna sálrænan stuðning og möguleika á ráðgjöf bæði fyrir nemendur, aðstandendur þeirra og starfsfólk. Heimsfaraldurinn veldur áframhaldandi streitu og kvíða núna í haust og munu mörg börn, ungmenni sem og starfsfólk eiga erfitt með að snúa aftur í skólann og laga sig að nýjum venjum sem og takmörkunum á félagslegum samskiptum. Einnig þyrfti aukinn stuðningur að vera í boði fyrir þá sem kunna að hafa orðið fyrir vanlíðan, ofbeldi, eða öðrum tilfinningalegum áföllum.

Í vor bauð Kennarasambandið með stuðningi menntamálaráðuneytisins upp á sálfræðistuðning fyrir félaga sína sem fundu fyrir óöryggi og kvíða vegna aðstæðnanna. Það voru ríflega 30 sem nýttu sér tilboðið. Ljóst er að það sama þyrfti að gera nú.

5. Traust

Í síðasta lagi má nefna traust. Fræðsluyfirvöld hvort sem það eru ríki eða sveitarfélög þurfa að hafa samráð við kennara, skólastjórnendur og stéttarfélög þeirra til að ákvarða og meta áhrif skólalokana á kennslu, nám og líðan nemenda. Við þessar aðstæður skiptir öllu máli að fagmennska skólafólks njóti skilyrðislauss trausts. Skólakerfið og skólaganga eru skilgreind sem partur af mikilvægustu þjónustu samfélagsins líkt og heilbrigðisþjónustan og til að það gangi upp er traust lykilatriði.

Þeim þjóðum hefur gengið best á heimsvísu sem búa við menntakerfi þar sem traust ríkir til skólafólks. Þar hafa börn fengið mesta menntun. Ekki er hægt að finna neitt um það að þeim börnum sem bjuggu við mestu og bestu hugsanlega tækni hafi gengið betur. Þó auðvitað hjálpi hún líka. Þar sem best gekk var kennurum og skólastjórnendum treyst til að finna bestu hugsanlegar leiðir.

 

Að lokum langar mig að beina orðum mínum til skólafólksins sem ég veit að að á hverjum degi gera sitt allra besta. Síðustu mánuði hefur komið í ljós sem aldrei fyrr að heimurinn er síbreytilegur og þrátt fyrir alla heimsins tækninýjungar þá er framtíðin óviss. Hvernig við tökumst á við breytingar er því undir okkar eigin þekkingu og dómgreind komið.

Vissulega varð faraldurinn til að margir tóku heljarstökk inn í nýja tækniheima. Og heyrst hafa raddir um að sá tími komi ekki aftur þar sem kennari standi fyrir framan nemendahóp sinn og kenni honum og að skólastofan hafi liðið undir lok. En er það svo? Höfum við einhverjar sannanir fyrir því að stafrænar lausnir bæti nám verulega? Er hægt að skapa lærdómssamfélag barna og ungmenna í rafrænum heimi. Já vissulega er það hægt en það kemur ekki í stað þess að hitta kennara, samnemendur og aðra skólafélaga þar sem raunveruleg samskipti fara fram.