Hvað segja skólaskáldin nú?

Fréttir|16. september 2020

Kennarasambandið blæs til Smásagnasamkeppni KÍ sjötta árið í röð. Keppnin hefur frá upphafi verið vel heppnuð, þátttaka góð og skáldskapurinn til mikils sóma.

Kennararsambandið efnir enn á ný til smásagnakeppni þetta haustið. Keppnin hefur farið fram fimm sinnum og hefur tilefnið verið „kennaradagurinn“ sem haldinn er hátíðlegur um veröld alla 5. október. 

Þátttaka í keppninni hefur frá upphafi verið góð í flestum aldursflokkum og ljóst að börn og ungmenni búa yfir áhuga á skáldskap. Við hvetjum kennara á öllum skólastigum til að láta nemendur vita af keppninni og jafnvel má nýta hana í skólastarfinu.

Keppt er í fimm flokkum

  • leikskólinn
  • grunnskólinn 1. – 4. bekkur
  • grunnskólinn 5. – 7. bekkur
  • grunnskólinn 8. – 10. bekkur
  • framhaldsskólinn

Þema keppninnar er sem fyrr tengt skólanum en smásagnahöfundar hafa að sjálfsögðu frelsi í efnistökum. Gætt verður fyllstu nafnleyndar á meðan dómnefnd fer yfir sögurnar. Verðlaunasögurnar verða birtar í prentútgáfu Skólavörðunnar sem kemur út síðar í haust. Verðlaunaathöfn og sjálf verðlaunin verða kynnt síðar.

Skilafrestur er til miðnættis 24. september og ber að skila handritum á netfangið smasaga@ki.is.

Eftirfarandi þarf að hafa í huga

  • Sagan má ekki hafa birst opinberlega og ekki vera lengri en 3.000 orð.
  • Skila á sögum sem viðhengi í textaformati, til dæmis word-útgáfu (ekki pdf).
  • Sagan á að vera á íslensku
  • Sagan þarf að bera titil

Upplýsingar um höfund

  • Nafn
  • Bekkur
  • Skóli
  • Tengiliður
  • Heimilisfang og sími
  • Athugið: Ef kennarar senda margar sögur fyrir hönd nemenda sinna þá er æskilegt að senda hverja sögu í sér tölvupósti.

 

Fréttir af keppninni frá fyrri árum

Smásagnahöfundar verðlaunaðir við hátíðlega athöfn (4. október 2019)

Framúrskarandi smásagnahöfundar verðlaunaðir (5. október 2018)

Smásagnahöfundar verðlaunaðir á Alþjóðadegi kennara (5. október 2017)

KÍ verðlaunar smásagnahöfunda á Alþjóðadegi kennara (5. október 2016)

Úrslit í smásagnasamkeppninni gerð kunn (5. október 2015)

 

Verðlaunahafar frá upphafi

2019

  • Þóroddur Óskarsson, Júlíana Líf Helgadóttir og Kristófer Daði Stefánsson, leikskólanum Lyngholti á Reyaðarfirði, fyrir söguna Sóley og ofurhetjan
  • Hrafnhildur Sara Hauksdóttir, 3. bekk Varmárskóla, fyrir söguna Einhyrningur í skólanum
  • Árni Matthías Sigurðsson, 6. bekk Hraunvallaskóla, fyrir söguna Fúluhlíðarskóli
  • Eybjört Ísól Torfadóttir, 8. bekk Breiðholtsskóla, fyrir söguna Skólamótið
  • Máni Hrafn Stefánsson, Tækniskólanum, fyrir söguna Bragði sagði

 

2018

  • Jón Halldór Stefánsson, leikskólanum Álfaborg á Svalbarðsströnd, fyrir söguna Vélmennin
  • Katla Bríet Líndal Benediktsdóttir, 2. bekk Grunnskóla Þórshafnar, fyrir söguna Vandræðalegi skóladagurinn
  • Margrét Þrastardóttir, 7. bekk Vatnsendaskóla, yrir söguna Dúfurnar
  • Rakel Björk Heimisdóttir, 8. bekk Víðistaðaskóla, fyrir söguna Tveir skrýtnir skóladagar
  • Guðrún Elena Magnúsdóttir, Menntaskólanum við Hamahlíð, fyrir söguna Skólinn hefur drepið mig. Ég hef verið myrt af minni eigin menntun

2017

  • Börn í leikskólanum Skýjaborg (árgangur 2012) í Hvalfjarðarsveit fyrir söguna Kennarinn með blað í fanginu
  • Kjartan Kurt Gunnarsson, 1. bekk Grunnskóla Þórshafnar, fyrir söguna Ofurkennari minn
  • Heiðrún Vala Hilmarsdóttir, 5. bekk Hraunvallaskóla, fyrir söguna Barnalegi kennarinn
  • Elísa Sverrisdóttir, 10. bekk Foldaskóla, fyrir söguna Hringrás
  • Dagný Ásgeirsdóttir, nemi í Menntaskólanum Tröllaskaga, fyrir söguna Kennarinn

2016

  • Börnin í Hulduheimum í leikskólanum Fífuborg í Grafarvogi fyrir söguna Mannasaga
  • Guðlaugur Heiðar Davíðsson, nemandi í 4. bekk Hamraskóla í Reykjavík, fyrir söguna Kennarabófi
  • Eyþór Ingi Brynjarsson, nemandi í 6.–EÓS í Holtaskóla í Reykjanesbæ fyrir söguna Nýi kennarinn í Litlahól
  • Guðný Salvör Hannesdóttir, nemandi í 8. bekk Laugalandsskóla í Holtum, fyrir söguna Áhugaverður álfakennari
  • Bryndís Bolladóttir, nemandi í Borgarholtsskóla, fyrir söguna Hún kenndi mér allt sem ég kann – sigursaga þyrnidansara í þunglyndi

2015

  • Kjartan Kurt Gunnarsson, nemandi í leikskólanum Barnabóli á Þórshöfn, fyrir söguna Kennari minn
  • Ásdís Einarsdóttir, nemandi í Öxarfjarðarskóla, fyrir söguna Kennaradraugarnir
  • Marta Ellertsdóttir, nemandi í Garðaskóla, fyrir söguna Emelía og kennarinn
  • Dagný Gréta Hermannsdóttir, nemandi í Menntaskólanum í Kópavogi, fyrir söguna Bananabrauð