Hvað segja frambjóðendur um skólamál í Reykjavík?

Kennarafélag Reykjavík efndi til kvöldfundar með frambjóðendum til borgarstjórnar síðastliðið mánudagskvöld. Hægt er að horfa á upptöku af fundinum.
Frambjóðendur átta flokka sem bjóða fram til borgarstjórnar mættu á fund Kennarafélags Reykjavíkur síðastliðið mánudagskvöld. Fundurinn fór fram í Breiðholtsskóla og var ágætlega sóttur.
Jón Ingi Gíslason, formaður Kennarafélags Reykjavíkur, flutti örstutt ávarp í upphafi fundar og sagði að frambjóðendur yrðu spurðir hvað þeir ætluðu að gera fyrir skóla í Reykjavík á næsta kjörtímabili.
Fundarstjórn var í höndum Jóns Páls Haraldssonar, skólastjóra í Laugalækjarskóla. Hann kvaðst fagna framtaki Kennarafélagsins og síðan var farið upphafsræður frambjóðenda en hver og einn fékk þrjár mínútur til að kynna sig og sínar áherslur.
Frambjóðendur á fundinum voru
- Alexandra Briem, Pírötum
- Árelía Eydís Guðmundsdóttir, Framsóknarflokki
- Guðný Maja Riba, Samfylkingu
- Helga Þórðardóttir, Flokki fólksins
- Íris Andrésdóttir, VG
- Marta Guðjónsdóttir, Sjálfstæðisflokki
- Sanna Magdalena Mörtudóttir, Sósíalsistaflokknum
- Þórdís Sigurðardóttir, Viðreisn
Hægt er að kynna sér umræðuna sem fór fram á fundinum með því að horfa á upptöku sem Kennarafélag Reykjavíkur lét gera.
Sveitarstjórnarkosningar fara fram næstkomandi laugardag.