Hvað með kennara?

Kennarar, vinnuumhverfi og velferð á tímum COVID-19
Stéttin sem kennir ungviðinu okkar seiglu og sveigjanleika, eflir með þeim fjarlægðarskyn og hreinlæti og nýtir samskiptaforrit og fjarkennslubúnað eins og ekkert sé, til að freista þess að ná settum markmiðum skólaársins, er alveg hreint mögnuð og stendur sína framlínuplikt eins og klettur. En um leið vill kannski gleymast að hlúa verður að hverjum kennara og starfsaðstæðum hans og hann verður að hlúa að sér. Vinnuumhverfisnefnd KÍ þakkar kennurum fyrir ósérhlífni og dugnað og sönnun þess að hægt er að tileinka sér nýjungar á mettíma en minnir á í öllu atinu að huga þarf að velferð og vinnuumhverfi. Og öll hlýðum við Víði.
Framhaldsskólakennarar
Framhaldsskólakennarar sitja heima við í misgóðum stólum og hefur skjátími þeirra lengst fram úr hófi enda tímafrekt að koma því sem vanalega fer fram í kennslustofu á form sem hæfir ungmennum heima. Framhaldsskólakennarar hafa ekki sömu yfirsýn yfir hópana svo verkefnaskil verða tíðari. Kennari með 150 nemendur þarf að opna hvert skjal til að athuga hvort innistæða sé fyrir skilum, jafnvel fara yfir verkefnið og gefa fyrir. Reyndar hafa margir kennarar lært af löngum vinnudögum að sumt er hreinlega ekki gerlegt og breytt um aðferðir.
Nauðsynlegt er kennurum sem öðrum að setja skýr mörk um hvenær er unnið heima og hvenær ekki. Á netinu má finna ógrynni heilræða um fjarvinnu og hefur Advania m.a. gefið út nokkur ráð. Einnig má nýta sér þekkingu þeirra sem starfa í teymisvinnu. Víða eru daglegir stöðufundir haldnir þar sem farið er yfir hvaða verkefnum hver og einn hyggst sinna. Einnig eru settar leikreglur um samskipti og viðveru sem gilda á alla vegu.
Leikskólakennarar
Lífið í leikskólum er með heldur öðru sniði þar sem mikið breytt starfsemi fer fram og virðist það fara eftir stærð og staðsetningu hvernig skipulagi er háttað. Í Heilsuleikskólanum Skógarási í Reykjanesbæ eru að jafnaði 80 nemendur en um þessar mundir mæta um 15 nemendur í einu eða 30 í allt. Starfsfólki er skipt upp í tvær vaktir en enginn samgangur er á milli vakta. Á hvorri vakt eru sjö starfsmenn með 15 börn sem er gott þar sem nánast er ómögulegt að halda tveggja metra bili milli barna og barna og starfsfólks og því þarf að huga gríðarvel að hreinlæti. Útivera hefur verið aukin til muna og er reynt að gera hvern dag eftirminnilegan. Stjórnendur halda vel utan um fólkið sitt og senda reglulega hvatningarpistla og hittist félagsþyrst starfsfólkið á daglegum veffundum þar sem farið er yfir málin, brandarar látnir fjúka og spjallað um hitt og þetta. Þeir starfsmenn sem ekki geta mætt til vinnu fengu heimaverkefni t.d. að lesa bækur, prjóna dúkkuföt, sauma tuskur og saga út tölustafi og ævintýri.
Í leikskólanum Sæborg við Starhaga í Reykjavík eru alla jafna 76 börn en núna mætir um helmingur barna í einu á sína deild. 12 börn eru í forgangi og mæta alla daga á sína deild, þetta er gert vegna þess að húsnæðið býður ekki upp á aðra möguleika. Allt starfsfólk mætir til starfa og þeir sem geta undirbúa kennslu heima. Starfsfólk deildar hittir báða barnahópana sem tilheyra þeirra deild en leikföng og námsgögn krossast ekki milli hópa. Útsjónarsemi og þolgæði starfsfólks er mikið og leggjast allir á eitt til að dæmið gangi upp. Reynt er að bjóða upp á eitthvert innpakkað góðgæti öðru hvoru til að létta lund starfsfólks og hefur starfsmannasíðan á fésinu verið nýtt til skemmtunar.
Líðan starfsfólks er mjög misjöfn og er það mishrætt við ástandið eins og gengur en flestir eru í góðu jafnvægi. Góð samskipti og umhyggja er lykillinn að farsæld enda eru allir óöruggir en foreldrar láta í ljós þakklæti sem er dýrmætt og Skóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar sýnir stuðning í verki, hefur virka upplýsingagjöf og gaf öllum páskaegg.
Hér er einungis sagt frá tveimur leikskólum en svo virðist sem útfærslur í samkomubanni séu æði misjafnar og skorðist oft við hönnun og stærð húsnæðis. Upplýsingarnar bárust frá stjórnendum leikskólanna en báðar lýsingarnar áttu það sammerkt að mikil áhersla er lögð á hreinlæti sem tekur nú mun meiri tíma en áður, hugað er að öllum snertiflötum og börnunum kennt að veiran vill ekki sápu með myndbandi þar sem krydd er í hlutverki sýkla.
Grunnskólakennarar
Grunnskólinn hefur tekið stakkaskiptum og er fyrst og fremst hugað að hópaskiptingu og hverjir umgangast þá. Sömu starfsmenn fylgja ákveðnum hópum og eru fleiri á yngra stigi til að létta undir. Í einhverjum skólum hefur verið brugðið á það ráð að nýta krafta verk- og listgreinakennara og íþróttakennara við stuðning ásamt þroskaþjálfum og sérkennurum enda hefur þörf fyrir stuðning aukist í takt við fjölgun hópa/bekkja og strangar samgangskröfur. Í öðrum skólum sinna verk-, listgreina og íþróttakennarar forfallakennslu.
Stjórnendur funda reglulega með starfsfólki og virðist mikil hvatning vera á flestum stöðum. Starfsfólki er dreift á kaffisvæði sem eru víða um skóla og eru mötuneyti nemenda einnig nýtt. Fólk situr dreift en reynt er að kæta starfsfólk með ávöxtum, súkkulaði og jafnvel bakkelsi, góðu kaffi og tei. Fólk fer heim strax eftir kennslu þótt einhverjir verði að ljúka undirbúningi á staðnum. Allir þurfa þó að vera komnir út áður en skólinn er þrifinn hátt og lágt. Víða virðist elsta stigið vera í fjarnámi eða mæta 1-2 tíma dag hvern, miðstigið og yngsta stigið mæta víða annan hvern dag og hafa kennarar því tíma á milli kennsludaga til að skipuleggja kennslu og undirbúa heimanám nemendanna sem hefur aukist gríðarlega. Víða þurfa hópar að mæta á mismunandi tímum til að rými skóla nýtist sem best en sótthreinsa verður rými áður en næsti hópur mætir, þannig eru einhverjir skólar tví- og jafnvel þrísetnir vegna hönnunar húsnæðis.
Útivera hefur aukist til muna og skipulögð vel þannig að hópar hittist ekki og hreyfing hefur verið aukin enda lítil sem engin formleg íþróttakennsla. Ljóst er að samtakamáttur, seigla og ákveðni í að takast á við ástandið og standast auknar kröfur samfélagsins einkennir starfsfólk þeirra skóla sem greinarhöfundur hafði spurnir af.
Tónlistarkennarar
Tónlistarkennsla hefur einnig breyst en einhverjir kenna enn staðnám á meðan fleiri nýta sér fjarfundabúnað með misjöfnum hljómgæðum. Að sögn nokkurra kennara á Akureyri gekk kennslan vonum framar fyrstu tvær vikur aukins samkomubanns og eru nemendur frekar spenntir fyrir þessum nýjungum. Flestir nýttu Zoom fjarfundaforrit sem fæst á netinu en einnig notuðu kennarar Skype, Facetime, Showbie og Messenger. Kennsla á þennan hátt er einhverjum erfiðleikum bundin þar sem hljóð berst seint og jafnvel illa svo undirleikur er út úr myndinni. Erfitt hefur reynst að kenna yngstu nemendunum og hefur söngkennsla verið vandkvæðum bundin. En jákvæðni er mikil meðal kennara, þeir fagna nýjungum eins og að senda upptökur af tóndæmum og segja einbeitingu nemenda með besta móti. Enn fremur sjá þeir fyrir sér að nýta megi þessar nýjungar í framtíðinni.
Hvernig höldum við gleðinni í öllu þessu?
Landlæknir hefur sent frá sér pistil um ástandið og andlega heilsu og er gott að lesa hann sér til áminningar. En hvað er til bragðs takandi? Fjöldi síðna á fésbókinni hafa sprottið upp þar sem fólk deilir úr sínum gleðibönkum. Dæmi um slíka síðu er Minn lífskraftur þar sem fólk deilir hvernig það sækir sér andlega næringu í náttúruna og eru dæmin jafn misjöfn eins og þau eru mörg. Náttúran gefur mikið og er líklega besta dæmið sá straumur fólks sem gengur eða hjólar um Fossvogsdalinn í Reykjavík daglega gott dæmi, vinsældir dalsins hafa aukist verulega, svo mjög að stundum þarf að sýna útsjónarsemi þrátt fyrir nægt pláss til að halda tveggja metra reglunni. Gott er að sækja í léttleika og reyna að forðast umræðu um málefni sem við erum ósammála um og höfum engin áhrif á eins og t.d. um lokun skóla, viðbrögð stjórnvalda og svo margt annað sem dregur úr okkur orku.
Hvatning stjórnenda skiptir miklu máli og virðast þeir standa sína plikt mjög vel. Póstar stjórnenda og trúnaðarmanna eru lykilatriði og sýna viðbrögð kennara við póstum eins trúnaðarmanns vel að stutt brýning skiptir miklu máli í amstri daganna. Trúnaðarmaður þessi fékk fjölda svara við póstum sínum þar sem hann var hvattur áfram og þakkað fyrir. Bréfin þurfa ekki að vera löng, aðeins hvatning og gleði.
Heimavinna á álags- og óvissutímum fær marga til að gera vörutalningu í eldhússkápunum oft á dag. Á leiðinni inn í eldhús er gott að spyrja sig: Er ég svangur/svöng? Eða leiðist mér bara? Svo er mjög gott að fá sér vatnsglas og hafa vatn við höndina við vinnu. Standa upp reglulega, spjalla við heimilisfólk og hverfa síðan aftur til starfa (sem reynist mörgum erfitt eins og síðar verður komið að). Þetta er í raun sparnaðarráð þar sem það væri fremur hvimleitt að þurfa að endurnýja fataskápinn þegar samgöngubanni verður aflétt.
Reyndar fer einveran misvel í fólk, sumir taka henni fagnandi en aðrir segja dagana renna saman í eitt þar sem þeir virðast endurtaka sig. Dagbókarskrif, súrdeigsbakstur, spil, púsl, prjónles og gönguferðir virðast halda lífinu í kennurum enn sem komið er, en depurð og leiði er skammt undan. Margir kennarar eru miklar félagsverur svo huga verður að henni. Börnin eru vanari því að hitta vini sína í spjallforritum og tölvuleikjum en kynslóðin sem kennir þeim. Svo nú er lag að læra af þeim, nýta forrit eins og Teams, Messenger eða Snapchat og hittast í netheimum í stað raunheimum rétt á meðan við bíðum þetta af okkur.
Lífið hefur vissulega tekið stakkaskiptum og hefur álag á margar stéttir aukist til muna. Flestir, bæði fjar- og staðvinnandi, þurfa að halda mörgum boltum á lofti í einu. Margir eru með fjölskylduna í fanginu við vinnu sína og þurfa allt í senn að skipuleggja og ástunda barnauppeldi, reka heimaskóla, sinna vinnunni og láta börnin hafa eitthvað fyrir stafni með nagandi samviskubit yfir því að vera ekki að gera neitt nógu vel. Grafíska hönnunarfyrirtækið Komma strik útbjó virknibingó til að stytta börnum og fullorðnum stundir á meðan þetta ástand varir, reyndar er það svo skemmtilegt að flestir á heimilinu geta verið með.
Gleymum ekki að þetta líður hjá og sumarið er á næsta leiti þrátt fyrir endurtekin vorhret, vorboðarnir eru á leiðinni eða komnir og munum að við erum alltaf að gera okkar besta þótt stundum sé það minna og stundum meira.