Hvað má eiginlega?

Fréttir|16. september 2024

Sigrún Birna Björnsdóttir Kaaber, sérfræðingur KÍ í jafnréttis- og vinnuumhverfismálum, fjallaði um öráreiti og áreitni á fimmta fundi fræðslunefndar í september.

Öráreiti er hugtak sem er nýtt af nálinni og flestum dulið. Ætlunin er að varpa ljósi á fyrirbærið ásamt því að ræða birtingarmyndir áreitni og kynferðislegrar og kynbundinnar áreitni. Mikilvægt er að allir þekki Reglugerð 1009/2015 en farið var sérstaklega í mikilvægi fumlausra og þolendamiðaðra viðbragða við kynferðislegri og kynbundinni áreitni.


FRÆ - fundarröð Fræðslunefndar KÍ

Fundurinn er hluti af fundarröðinni FRÆ, mánaðarlegum klukkustundalöngum Teamsfundum fyrir félagsfólk á vegum fræðslunefndar KÍ. Fundaröðin hófst með fræðslufundum frá Brú lífeyrissjóði og LSR um samþykktar breytingar á reglum lífeyrissjóðanna. Í febrúar fjallaði dr. Valdís Jónsdóttir um raddheilsu. Í mars fjallaði Dísa B. Jónsdóttir hjá LSR um hverju þarf að huga að varðandi lífeyrismál við starfslok. Í apríl talaði Kristín Sigurðardóttir, slysa- og bráðalæknir, um streitu og seiglu.

Fulltrúar sjóða KÍ fjalla um sjóðamál 16. október og Anna Sigríður Þráinsdóttir, málfarsráðunautur RÚV, fjallar um inngildandi orðræðu á síðasta FRÆ-fundi ársins, 13. nóvember.