Hvað lærum við af COVID-19?

Fréttir|21. ágúst 2020
Pistill

Við lifum á óvissutímum. Menntun er frábært verkfæri til að takast á við óvissu.

Að takast á við kórónuveiruna sem veldur COVID-19 er stærsta einstaka viðfangsefnið sem íslensk þjóð hefur þurft að takast á við á lýðveldistímanum. Óvissan er enn mikil og erfitt er að takast á við það áfall að faraldurinn hafi náð sér aftur á strik eftir að búið virtist að koma böndum á hann. Það er hrollvekjandi til þess að hugsa að heimsbyggðin þurfi að lifa með veirunni, jafnvel árum saman.

 

Kerfin stóðust álagsprófið

Íslendingar eru þó að sumu leyti í öfundsverðri stöðu. Grunnkerfi samfélagsins hafa dugað betur hér en víða annars staðar. Hin faglegu kerfi byggja hérlendis á miklum mannauði og yfirgripsmikilli þekkingu. Hér höfum við t.d. séð almannavarna-, heilbrigðis-, umönnunar- og menntakerfin milda höggið af hinum hræðilega heimsfaraldri langt umfram það sem almennt hefur tíðkast.

Íslenska menntakerfið er sérlega öfundsvert af viðbrögðum sínum. Hér var gengið fumlaust til verka við flóknar og krefjandi aðstæður.

Kerfi standast þung álagspróf í krafti styrkleika sinna en geta þeirra til að takast á við þau ítrekað ræðst af veikleikunum. Áföll leiða í ljós veikleika og skapa þannig fágæt tækifæri til úrbóta.

 

Nauðsynlegar úrbætur

Nú er unnið að því á vettvangi almanna- og sóttvarna að skapa breiðara samtal og sátt um samspil sóttvarna og almannahagsmuna. Heilbrigðisyfirvöld vinna einnig að því að auka getu hins opinbera kerfis til skimana, greininga og rannsókna. Á sama hátt þarf nú að hyggja að þeim veikleikum sem komið hafa í ljós í menntakerfinu.

Fyrst ber að nefna aðstöðumun. Frá því um miðjan áttunda áratug síðustu aldar hefur meginstef hins íslenska skólakerfis verið jöfnuður og jafnrétti til náms. Í alþjóðlegum samanburði er íslenskt skólakerfi öflugt að þessu leyti. Nú hefur reynt mjög á þetta grundvallarmarkmið. Verulegur aðstöðumunur er á milli skólagerða, sveitarfélaga, skóla og fjölskyldna þegar kemur að því að mæta þeim áskorunum sem við stöndum frammi fyrir. Aðstæður eru ólíkar og tækjakostur einnig. Grípa þarf til aðgerða til að styrkja við þær fjölskyldur, nemendur, kennara, skóla og sveitarfélög sem höllustum fæti standa.

Menntakerfið, eins og önnur kerfi, stendur einnig frammi fyrir áleitnum spurningum um forgangsröðun og hið flókna samspil grundvallarréttinda og víðtækari hagsmuna. Með hvaða hætti á að úthluta gæðum og byrðum? Hvað skal njóta forgangs komi aftur til þess að verulegar takmarkanir verði lagðar á skólastarf? Hvernig er hægt að breyta starfsháttum til að tryggja rétta forgangsröðun? Hver er staða viðkvæmra eða óttasleginna nemenda, aðstandenda, kennara eða annarra starfsmanna sem hafa áhyggjur af aukinni smithættu samfara opnara skólastarfi? Hvað felst í skólaskyldu og fræðsluskyldu við aðstæður sem þessar?

Þá blasir við að skólastjórnendur og kennarar hafa, eins og margt framlínufólk, gengið býsna nærri sér. Ofan á staðbundið skólastarf bættist víða fjarkennsla og mjög flókin skipulagning sem kostaði bæði tíma og fyrirhöfn. Eins og aðrir hópar í íslensku samfélagi einkenndi ósérhlífni og ábyrgðartilfinning fyrstu viðbrögð starfsfólksins. Slíkt eru eðlileg og skiljanleg viðbrögð til skamms tíma. Til lengri tíma verður að finna langtímajafnvægi. Þá er það frumskylda stjórnvalda að tryggja að staðinn sé vörður um starfsaðstæður og réttindi. Tryggja þarf að lög og kjarasamningar njóti virðingar og að tækifærin séu ekki notuð til að grafa undan grundvallarleikreglum í íslensku samfélagi. Í þeim efnum er eitt og annað óuppgert frá vormánuðum sem laga þarf.

 

Styrkjum varnir okkar

Eitt sterkasta vopn samfélagsins, nú þegar við mætum annarri bylgju faraldursins, er sú vissa að menntakerfið hefur til að bera þann styrk sem nauðsynlegur er samfélagi sem stendur vörð um fólkið sitt. Við njótum auk þess þeirra forréttinda að hafa reynslu af fyrri glímu við vágestinn og getum því lagað það sem þarf að laga.

Þær takmarkanir sem settar voru á íslenskt samfélag á vordögum þjónuðu á endanum samfélaginu sjálfu með þeim hætti að tryggja að neyðarþjónusta heilbrigðiskerfisins stæði öllum þeim til boða sem á henni þyrftu að halda. Það er, og verður áfram, grunnstefið í baráttu íslensks samfélags gegn COVID-19. Það var því miður ekki hægt að bjarga öllum en tryggt var að það væri reynt.

Menntun er mannréttindi og lengri tíma barátta við erfiðleika kallar á að réttur til menntunar sé varinn með öllum ráðum. Hér þarf stefnumörkun stjórnvalda og allar samfélagslegar aðgerðir að stuðla að því að börn og ungmenni njóti sem bestrar menntunar. Því þarf að fylgja eftir með festu og fjármagni.

Það skiptir ekki máli hvert litið er í vörnum okkar og framlínu á síðustu mánuðum. Í öllum tilfellum ráðast gæði varna okkar af fjárfestingu samfélagsins og einstaklinganna í menntun og þekkingu sem og virðingu samfélagsins fyrir hinu sama. Að forgangsraða í þágu menntunar á viðsjárverðum tímum er ekki bara siðferðileg skylda okkar, það er beinlínis mikilvægasta fjárfestingin sem möguleg er til að gera hina viðsjárverðu tíma bærilegri.

 

Óvissan

Við lifum á óvissutímum. Menntun er frábært verkfæri til að takast á við óvissu. Einmitt vegna þess að hún, ólíkt ýmsu öðru, gerir ráð fyrir óvissunni en þykist ekki geta eytt henni. Á flóknum tímum þarf sérstaklega að varast sölumenn hinna glerhörðu sannindi. Við vitum í raun ekki enn hvað við munum læra af á COVID en við vitum að við erum að læra.

Það sem við getum þó gert er að ígrunda vel hvernig við ætlum að læra; hvernig við ætlum að mæta óvissunni.

Þar má fyrst nefna mikilvægi samábyrgðar. Heimsbyggðina vantar ekki sterka leiðtoga eða heilagar þrenningar til að mæta yfirstandandi vá. Vánni verður ekki mætt nema saman.

Aðstæðurnar kalla á að framlínufólk sérstaklega ígrundi starf sitt og ástandi bæði faglega forvitni og heilbrigðan efa — og deili síðan uppgötvunum sínum og ræði.

Mikilvægast er að vita fyrir hvað maður stendur. Rótlaust þang er allt of reikult til að verða þeim til bjargar sem lendir í öldurótinu. Við sjáum vísbendingar um að árangur þjóða í baráttunni við sjúkdóminn standi að einhverju leyti í samhengi við siðferðisþroska þeirra leiðtoga sem fyrir þjóðunum fara.

Kennarar eru fjölbreyttur hópur og margvíslegur og skólar eru af öllum stærðum og gerðum — en þegar á botninn er hvolft stöndum við öll fyrir það sama.

Í vikunni skrifaði ég, fyrir hönd Kennarasambandsins, undir yfirlýsingu um áframhaldandi samstarf við menntayfirvöld vegna COVID. Undir það rituðu einnig menntamálaráðherra, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga og formaður félags fræðslustjóra.

Þar skoruðum við á íslenskt samfélag að standa með okkur vörð um menntakerfið og hétum því að gera allt sem hægt er að gera til að ákvarðanataka um menntamál á næstu dögum, vikum og mánuðum byggi á bestu upplýsingum og öflugu samráði.

Einmitt þannig vinnum við kennarar. Við vinnum saman. Við vinnum með hreinskilni og þurfum oft að bregðast hratt við. Það gleður mig mikið að þetta mikilvæga samstarfsfólk okkar er sama sinnis og ég hlakka til að draga saman það sem fram kemur hér í dag, á málþingi okkar, og miðla því inn á þann vettvang.