Hvað get ég lagt af mörkum?

Fréttir|1. apríl 2015

Vísbendingar eru um að stór hópur ungmenna geti ekki lesið sér til gagns við lok grunnskóla hafa komið mörgum á óvart og uppi eru ýmsar hugmyndir um hvað valdi því. Breytingar sem hafa átt sér stað í samfélaginu síðustu árin eru hugsanlega ein af orsökunum. Áður fyrr lögðu margir áherslu á að börn þeirra væru orðin læs áður en skólagangan hæfist. Foreldrar greiddu gjarna fyrir heimakennslu ef ekki gekk sem skyldi að kenna ungviðinu að lesa. Í þá daga var minni afþreying í boði og til dæmis ekki úr mörgu að velja þegar sjónvarpsefni var annars vegar né aðgangur að þeim heimi sem tölvur nútímans bjóða upp á.

Sama gildir um íþrótta- og tómstundastarf sem er mun fjölbreyttara nú en á árum áður. Lestur á því í mikilli samkeppni við ýmiss konar afþreyingu; jafnt hjá foreldrum sem börnum og ungmennum. Verkefni í skólum eru fleiri og telja margir að oftar sé farið á breiddina en dýptina. 

Það er auðvelt að nálgast málin með því að benda á hvað hefur farið úrskeiðis og hvernig aðrir beri ábyrgð á því að leyst verði úr vandanum. Framkvæmdin byggist á nálguninni og þegar bent er á hvað fer úrskeiðis hjá öðrum gerist oft lítið í framhaldinu. Það er nefnilega svo erfitt að breyta öðrum. Er því ekki komi tími til að allir sem koma að lestri barna og ungmenna velti fyrir sér hvað þeir ætli að gera? Spurningin „hvað ætla ég að leggja af mörkum til að bæta læsi íslenskra barna og ungmenna?“ er hlutur sem við ættum öll að geta sameinast um.

Ef við notum þessa nálgun, til dæmis á skólann, má skoða hvort hugsanlegt sé að framangreindar samfélagsbreytingar hafi ekki skilað sér í breyttri nálgun innan skólanna. Nú er mesta áherslan á lestrarkennslu í fyrstu fjórum bekkjum grunnskólans en eftir það er litið svo á að ekki þurfi að hafa sérstaka lestrarkennslu, nema fyrir þá nemendur sem ekki hafa náð lestrartækninni. Lestur námsbóka í hinum ýmsu fögum er talinn koma í stað þess að hafa ákveðnar lestrarbækur í skóla. Hvað getum við sem kennarar gert til að ýta undir yndislestur og málskilning nemenda? er ögrandi spurning sem má nota til að nálgast viðfangsefnið innan skólanna.

Sveitarfélögin geta lagt sitt af mörkum með því að efla bókakost í skólunum, sem og fjölga rafbókum, til að ná til allra nemenda og jafnvel setja inn viðbótarkennara til þess að hægt sé að veita þjálfun sem skilar árangri. Foreldrar eru lykillinn að þjálfun nemenda og því mikilvægt að þeir skapi tíma í önnum dagsins þar sem lesið er saman og bókin síðan rædd, eða gefi sér tíma til að tala um bækur sem fjölskyldan er að lesa. Lestur og samtal eykur lesskilning. Bókaútgefendur gætu gefið út meira af efni fyrir börn og ungmenni og svo mætti lengi telja.

Það er því affarasælast að nálgast niðurstöður læsis sem og önnur málefni út frá hugsuninni „hvað get ég lagt af mörkum?“ Það er ekki fyrr en við reynum að svara þeirri spurningu að hlutirnir fara að gerast.

Guðbjörg Ragnarsdóttir, varaformaður Félags grunnskólakennara