Hvað er vendikennsla?

Fréttir|1. september 2026
FRÆ

Fræðsluerindi Gauta Eiríkssonar um vendikennslu er aðgengilegt. Fyrsta FRÆ haustsins komið í loftið!

Fyrsta FRÆ haustsins var frumsýnt þriðjudaginn 1. september. Þar fjallaði Gauti Eiríksson, kennari við Álftanesskóla, um svokallaða vendikennslu. 

Í vendikennslu (e. flipped classroom) er hinni klassísku kennsluaðferð, þar sem kennarinn heldur fyrirlestur, snúið við á þann hátt að nemendur skoða fyrirlesturinn heima og mæta svo í tíma til að vinna að verkefnum og komast dýpra í efnið.

Gauti er raungreina- og umsjónarkennari í Álftanesskóla og hefur á undanförnum árum útbúið myndbönd tengd náttúrufræði- og stærðfræðikennslu sem hafa hjálpað bæði nemendum hans og öðrum nemendum, hér á landi og erlendis. Hann heldur úti öflugri YouTube-rás þar sem finna má rúmlega 4000 myndbönd, sem njóta mikilla vinsælda og eru með rúmlega tvær milljónir „áhorfa“ og því má segja að Gauti sé sannkölluð rokkstjarna í skólasamfélaginu.

FRÆ: Vendikennsla

Gauti Eiríksson kennari hefur áralanga reynslu af vendikennslu. Hann flytur fræðusluefni um þessa kennsluaðferð.