Hvað er þinn leikskóli að gera í jafnréttisfræðslu?

Fréttir|20. janúar 2017

Jafnréttisnefnd KÍ hefur sent leikskólastjórum erindi þar sem þeir eru hvattir til að styðja við jafnréttisfræðslu í sínum skólum.

Jafnréttisnefnd KÍ hefur sent leikskólastjórum erindi þar sem þeir eru hvattir til að styðja við jafnréttisfræðslu í sínum skólum. Leikskólastjórar eru jafnframt hvattir til að taka erindið upp á fundi með starfsfólki. 

Jafnréttislög, sem voru sett 1976, kveða á um að jafnréttisfræðsla skuli fara fram á öllum skólastigum. „Á öllum skólastigum skulu nemendur hljóta fræðslu um jafnréttismál þar sem m.a. skal lögð áhersla á að búa bæði kynin undir jafna þátttöku í samfélaginu, svo sem í fjölskyldu-  og atvinnulífi. Kennslu- og námsgögn skulu þannig úr garði gerð að kynjum sé ekki mismunað“ (23. gr. Menntun og skólastarf, Lög um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla nr. 10/2008). 

Þá segir í nýrri aðalnámskrá allra skólastiga að jafnrétti sé einn af grunnþáttum menntunar. „Jafnrétti: Jafnréttismenntun felur í sér gagnrýna skoðun á viðteknum hugmyndum í samfélaginu og stofnunum þess í því augnamiði að kenna börnum og ungmennum að greina þær aðstæður sem leiða til mismununar sumra og forréttinda annarra. [...] Áherslu ber að leggja á að drengir og stúlkur eigi sem jafnasta og víðtækasta möguleika. Hvergi í skólastarfinu, í inntaki né starfsháttum, ættu að vera hindranir í vegi annars hvors kynsins
(Úr aðalnámskrá fyrir öll skólastig).

Þá er bent á gagnlegt námsefni í jafnréttisfræðslu, svo sem Ritröð um grunnþætti mennunar um jafnrétti, bækur sem hægt er að nota og aðrar gagnlegar upplýsingar. 

Bréf jafnréttisnefndar.