Hvað er leiðsagnarnám?

Fréttir|3. mars 2021

Nanna K. Christansen skrifar um leiðsagnarnám og rannsókn sem hún gerði þar að lútandi. Nanna hlaut styrk í Rannsóknasjóði KÍ árið 2019 fyrir verkefnið: Þróun leiðsagnarnáms í fjórum grunnskólum í Reykjavík. Markmið rannsóknarinnar var að leita svara við því hvernig tekst að innleiða kennsluaðferðir Shirley Clarke í leiðsagnarnámi í fjórum grunnskólum í Reykjavík.

Á síðustu árum hefur verið mikill og vaxandi áhugi kennara og stjórnenda á leiðsagnarnámi og meiri hluti grunnskóla í Reykjavík hefur að einhverju marki unnið að þróun þess á síðustu árum. Einnig er kunnugt um aðra grunnskóla og framhaldsskóla á landinu sem hafa unnið að þróun leiðsagnarnáms. Áhugi íslenskra kennara helst í hendur við áherslur aðalnámskrár grunnskóla (2011) og skólaþróun víða um heim en fjöldi erlendra bóka og greina hafa verið skrifaður um leiðsagnarnám/-mat (formative assessment/assessment for learning) og áherslur sem því tengjast. Erna Ingibjörg Pálsdóttir fjallar einnig um leiðsagnarmat/-nám í bók sinni Fjölbreyttar leiðir í námsmati, að meta það sem við viljum að nemendur læri.

Rannsóknir hafa leitt í ljós að það hvernig niðurstöður námsmats eru notaðar til að styðja við framfarir nemenda í náminu skiptir mun meira máli en námsmatið sjálft (Wiliam og Leahy, 2015). Niðurstöður námsmatsins verða þannig framvísandi, eins konar vegvísar sem beina námi nemendanna fram á við. Þetta hefur leitt til þess að athyglin hefur í ríkum mæli færst frá námsmatinu sjálfu yfir á áhrif þess á næstu skref í náminu. Í samræmi við þetta hefur mörgum þótt heitið „assessment for learning (AFL)“ eiga betur við en „formative assessment“ og af sömu ástæðum er heitið leiðsagnarnám notað hér í stað leiðsagnarmats.

Bókinni Leiðsagnarnám, hvers vegna, hvernig, hvað? er einkum ætlað að mæta þörfum og áhuga kennara og skólastjórnenda á leiðsagnarnámi og veita þeim fræðilega innsýn og hagnýtan stuðning til að innleiða og þróa námsmenningu sem stuðlar að aukinni ábyrgð og árangri nemenda.

Hvað er leiðsagnarnám?

Í stuttu máli snýst leiðsagnarnám um að veita nemandanum leiðsögn sem hjálpar honum til að ná þeim markmiðum sem hann stefnir að. Markmiðin þurfa að vera skýr og vel skilgreind svo nemandinn, kennarinn og aðrir sem að náminu koma hafi sama skilning á því hvað sé til marks um að markmiðunum sé náð. Dylan Wiliam og Siobhán Leahy (2015) telja meginforsendur þess að kennari geti byggt nám og kennslu á leiðsagnarnámi vera þær að honum sé ljóst hvaða hæfni nemendur hans eigi að tileinka sér, þ.e.a.s. hvað þeir eigi að læra. Ef hann viti það ekki sé hann ekki fær um að meta framfarir þeirra, hvað þá heldur að veita þeim endurgjöf sem hjálpar þeim til að ná árangri.

Niðurstöður Carol Dweck (2006) hafa leitt í ljós að hugarfar (mindset) nemenda og kennara, þekking nemenda á tengslum náms og heilans og á viðhorfum þeirra til mistaka hefur veruleg áhrif á nám og kennslu. Breski kennarinn Shirley Clarke, sem er heimsþekktur sérfræðingur í þróun leiðsagnarnáms og höfundur fjölda bóka um efnið, hefur í samstarfi við kennara samofið niðurstöður Dweck og fleiri fæðimanna hugmyndafræði og nálgun leiðsagnarnáms og eru þær mikilvægur grunnur þeirrar námsmenningar sem er forsenda leiðsagnarnáms. Með námsmenningu er hér átt við þau viðhorf, gildi og venjur sem einkenna nám og kennslu í hverjum skóla.

Þróun leiðsagnarnáms í grunnskólum Reykjavíkur

Skólaárin 2017–2019 stóð skrifstofa skóla- og frístundasviðs Reykjavíkur (SFS) fyrir símenntunarverkefni um leiðsagnarnám, en samtals 25 skólar skráðu sig til þátttöku í verkefninu. Forsaga málsins var að skólastjórnendur óskuðu eftir því að kennurum yrði boðin fræðsla um nálgun Shirley Clarke, með það að markmiði að styðja við eflingu leiðsagnarnáms. Nokkrir skólanna höfðu þá þegar tileinkað sér áherslur leiðsagnarnáms í einhverjum mæli, einkum með stuðningi John Morris, skólastjóra Ardleigh Green Junior School.

Lagt var upp með það að í þátttökuskólunum störfuðu innleiðingarteymi sem hefðu það hlutverk að leiða starfið innan skólans. Engar kröfur voru gerðar af hálfu SFS til skólanna. Var það í höndum hvers skóla að setja sér markmið og viðmið um árangur og ákveða hvernig og að hve miklu leyti þeir nýttu tilboð skrifstofunnar um fræðslu og viðburði fyrir teymin. Umfjöllunarefnin voru m.a. kynning og umræður um ýmsa áhersluþætti leiðsagnarnáms, stærðfræði og leiðsagnarnám, samvinna nemenda, list-og verkgreinakennsla og leiðsagnarnám og nemendur með annað móðurmál en íslensku í leiðsagnarnámi. Á þessum tveimur árum voru auglýstir ríflega 40 viðburðir tengdir leiðsagnarnámi og voru þeir allir afar vel sóttir. Verkefninu var fylgt eftir með vefsíðu þar sem finna mátti fjölbreytt efni um leiðsagnarnám á https://menntastefna.is/. Hápunkturinn var námskeið og vinnustofa undir leiðsögn Shirley Clarke sem haldin var í Reykjavík í mars 2018 og 450 kennarar og stjórnendur sóttu.

Þekkingarskóla í leiðsagnarnámi 

Í byrjun árs 2019 var ákveðið að fylgja eflingu leiðsagnarnáms eftir með því að stofna fjóra þekkingarskóla í leiðsagnarnámi, en þeim var í framhaldinu ætlað að styðja aðra áhugasama skóla og kennara við að þróa og innleiða leiðsagnarnám. Skólarnir voru Dalskóli, Hamraskóli, Hlíðaskóli og Kelduskóli. Í öllum þessum skólum voru starfandi kennarar sem sýnt höfðu mikinn áhuga á leiðsagnarnámi og nutu stuðnings skólastjóra.

Í hverjum þekkingarskóla var teymi sem leiddi þróun leiðsagnarnámsins. Í því var skólastjóri og/eða aðstoðarskólastjóri auk 3–6 kennara. Teymi hvers skóla fundaði reglulega til að skipuleggja innra þróunarstarf skólans. Þau stóðu einnig fyrir reglulegum fundum um leiðsagnarnám með öðrum kennurum skólans. Meginþungi þróunarstarfsins fór fram í kennslustundum þar sem kennarar unnu að verkefnum með handleiðslu teymisins. Teymin fjögur tóku þátt í sameiginlegum fræðslu- og umræðufundum ásamt verkefnastjóra, sóttu námskeið sem verkefnastjóri stóð fyrir og stóðu sjálf fyrir opinni fræðslufundaröð um leiðsagnarnám. Auk þátttöku í ráðstefnunni Visible Learning sem haldin var í Edinborg vorið 2019 fóru fulltrúar teymanna í skólaheimsókn til London vorið 2020.

Ferðin var styrkt af Erasmus+ styrkjaáætlun ESB. Teymin fengu að auki styrk úr Sprotasjóði til að leiða starfið í skólum sínum.

Mat á árangri

Við lok verkefnisins var ráðgert að þekkingarskólarnir framkvæmdu innra mat þar sem litið væri til þeirra markmiða og viðmiða sem stefnt var að. Verkföll og farsótt settu stórt strik í reikninginn á vorönninni 2020 og því reyndist ekki unnt að vinna þennan hluta verkefnisins eins vel og að var stefnt. Hluti af matinu sem tókst að framkvæma fólst í því að verkefnastjóri fylgdist með í kennslustundum, tók viðtöl við kennara og stjórnendur og rýnihópsviðtöl voru tekin við nemendur.

Eftirfarandi tilvitnanir lýsa reynslu þátttakenda:

Kennarar í fyrrum Kelduskóla: Eftir þátttökuna í þekkingarskólaverkefninu á síðasta ári vitum við miklu betur hvers vegna við gerum það sem við erum að gera með kennslunni. Sumt í leiðsagnarnámi getur virkað þannig að öllum finnist þeir alltaf hafa kennt svona, en það skiptir öllu máli að vita hvers vegna og hvaða áhrif það getur haft á nemendur. Ef það hefur engin áhrif á nemendur er tilgangurinn enginn.

Kennarar og stjórnendur Dalskóla: Orðræða nemenda ber vott um áhrifin af leiðsagnarnáminu, þeir tala t.d. um að þeir ætli að fara í djúpköfun í verkefnum sem þeir eru að vinna með og metnaðurinn er meiri. Þeim finnst líka mikilvægt að ná markmiðunum sem þeir eru að stefna að.

Kennari í Hlíðaskóla: Þegar nemendur vita til hvers er ætlast af þeim verður árangurinn svo miklu meiri. Nemendur okkar voru að ljúka við hópverkefni, sem við höfum látið alla okkar nemendur vinna á síðustu árum. Nú fengu öll verkefnin A. Áður dreifðist árangurinn á allan skalann. Fyrirmælin eru orðin skýrari, nemendur skoða nú fyrirmyndir og nýta sér stuðningsefni á námsveggnum. Það skiptir svo miklu máli að nemendur viti til hvers er ætlast af þeim. Öllum nemendum finnst gaman að hafa markmið og ná árangri.

Kennarar og stjórnendur í Hamraskóla: Með leiðsagnarnámi og stöðugri endurgjöf breytast vinnubrögð nemenda fljótt til hins betra. Það er skemmtilegt að fylgjast með því hvaða áhrif árangursviðmiðin hafa á vinnubrögð og námsframvindu í nemendahópnum. Það er áhugavert að ganga um stofuna og heyra krakkana nota orðalag árangursviðmiðanna og merkilegt hve stuttan tíma það tekur nemendur að verða þátttakendur í því að setja þessi viðmið.

Efni bókarinnar

Bókin Leiðsagnarnám, hvers vegna, hvernig, hvað? byggir á niðurstöðum umfangsmikilla rannsókna og reynslu grunnskóla í Reykjavík. Fræðilegur grunnur styður við hagnýt verkefni sem er ætlað að:

  • efla námsmenningu sem er forsenda leiðsagnarnáms
  • skipuleggja nám og kennslu
  • stuðla að áhuga nemenda, setja námsmarkmið og árangursviðmið
  • auka markvissar samræður nemenda með spurningatækni
  • þróa endurgjöf sem eykur árangur nemenda

Í bókinni er einnig gerð grein fyrir þróunarverkefni skóla- og frísundasviðs um leiðsagnarnám með áherslu á verkefni þekkingarskólanna.

Útgáfunni fylgir vefurinn www.leidsagnarnam.is sem hefur að geyma upplýsingar og gögn sem tengjast efni bókarinnar.

 

Greinin er lokaskýrsla Nönnu og má lesa hér í pdf-formi.

Nanna var í viðtali um verkefnið í Skólavörðunni, 1. tbl. 2019.