Hvað ætlarðu að gera eftir vinnu?

Fréttir|11. september 2014

 

 

Þú í framtíðinni vilt að þú í nútíðinni lesir þessa grein og ég vona að þú gerir það. Í upphafi starfsævinnar eru lífeyrismál yfirleitt ekki efst í huga okkar. Mörgu ungu fólki finnst lífeyrismál óspennandi, flókin og leiðinleg. Upphaf lífeyristöku er í fjarlægri framtíð og þar af leiðandi okkur næstum óviðkomandi þegar við erum að stíga fyrstu skrefin á vinnumarkaði. En hvenær er þá eðlilegt að byrja að hyggja að lífeyristöku? Mörgum finnst að það hljóti að vera skömmu áður en farið er á lífeyri eða að minnsta kosti ekki mjög mörgum árum áður, hvað þá áratugum. Eftir að hafa svarað fyrirspurnum um lífeyrismál hér hjá KÍ síðastliðin ár hef ég oft hugsað um hvernig hægt væri að fá félagsmenn til þess að hugsa fyrr um lífeyrismál og kannski er það einmitt byrjunin að skrifa þessa grein.

Við getum gert ráð fyrir að eiga eftir að lifa lengur en fyrri kynslóðir. Starfsævin okkar er um þrír til fjórir áratugir og við stefnum á að njóta lífsins í einhverja áratugi eftir að við hættum störfum svo að lífeyrismál skipta okkur mjög miklu máli. Lestu því áfram.

Í samtölum við ungt fólk um lífeyrismál nefna flestir það sama. Allir vita að það er skylda, og afar mikilvægt, að greiða í lífeyrissjóð en lífeyrismál vekja ekki áhuga. Af hverju ætti ungt fólk að vera að velta sér upp úr einhverju sem gerist í fjarlægri framtíð? Áhuginn vaknar þó smátt og smátt hjá flestum og þegar fólk fer að nálgast sextugt hefur það oftast leitt hugann að því hvenær það geti farið á lífeyri. Það fer því eftir því hvar við erum á lífsleiðinni hversu áhugasöm við erum um þessi mál.

En er eitthvað sem við verðum að vita þegar að kemur að þessum tímamótum, annað en hvenær við getum farið á lífeyri eða hvaða eyðublöð á að fylla út? Er kannski bara nóg að kynna sér þetta rétt undir lok starfsævinnar?

Ég tel að það sé mikilvægast fyrir okkur að vita að tekjurnar lækka þegar kemur að lífeyristöku. Það fer auðvitað eftir því hvað við höfum lengi greitt í lífeyrissjóð hversu mikill munur verður á launatekjum og lífeyrisgreiðslum, en inni á vef lífeyrissjóðanna eru reiknivélar þar sem er hægt að skoða áunnin réttindi, en einnig áætluð réttindi. Það eru þessi áætluðu réttindi sem mikilvægt er að kynna sér.

En ef við höfum nú forskot og vitum það mikilvægasta, sem er að tekjurnar okkar lækka við upphaf lífeyristöku, hvað gerum við þá með slíkar upplýsingar snemma á starfsævinni? Það er auðvitað hægt að fara margar leiðir, en í boði er ágætis leið nú þegar, séreignarsparnaðurinn sem er og verður bein launahækkun. Ef starfsmaður lætur draga af sér 2-4% af heildarlaunum fær viðkomandi 2% kjarasamningsbundið mótframlag frá launagreiðanda og getur þannig stuðlað að betri hag þegar kemur að lífeyristökunni. Annað gæti komið sér vel, eins og að ná að greiða upp húsnæðis- og námslán, þó að það geti í upphafi virst eins og að ætla að borða heilan fíl. Það gæti því reynst vel að stilla afborgunum af lánum upp þannig að þau séu uppgreidd við 65 ára aldur, því það er vel hægt að greiða þau upp smátt og smátt ef við höfum þrjátíu til fjörutíu ára fyrirvara. Þannig getum við búið í haginn fyrir árin eftir vinnu með ýmsum leiðum.

Ég vil því hvetja alla þá sem eru á fyrri hluta starfsævi sinnar til að velta fyrir sér lífeyrismálum og kynna sér stöðu sína og möguleika. Það er gott að vita fyrirfram hvenær lífeyristaka getur hafist og hverjar tekjurnar verða og spá í hvernig við ætlum að mæta því að hafa jafnvel minni tekjur þegar við hættum að vinna. Það getur verið að þú í nútíðinni hugsir að það sé langt í þetta, en hafðu þetta samt bak við eyrað, því þú í framtíðinni vilt vita þetta.

Ingibjörg Úlfarsdóttir, sérfræðingur í kjara- og réttindamálum. 

Grein Ingibjargar birtist í Skólavörðunni 2. tbl. 2014.