Hundur í skólastofunni: Orka & Dagný

Fréttir|28. apríl 2025
Skólavarðan

Í Rimaskóla hefur Labrador hundurinn Orka hafið störf í tengslum við þróunarverkefnið Hundur í skólastofunni sem sett var þar af stað. Dagný Gísladóttir kennari við skólann fjallar um hugmyndina að verkefninu, áætlaða framkvæmd þess og hugsanlegan ávinning.

„Það hefur verið draumur minn að setja af stað verkefni þar sem hundur er notaður sem íhlutun í starfi með nemendum. Til þess þurfti talsverðan undirbúning og sækja þurfti um leyfi til stjórnenda, Skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar og Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur. 

Við Orka sóttum námskeið hjá Æfingastöðinni sem heitir Verklegt námskeið í íhlutun með aðstoð hunds. Á því var megináhersla lögð á verklega þjálfun hunds og meðal annars farið yfir þjálfun hunda í æfingum sem nýtast í starfi með fólki, viðurkenndar leiðir við þjálfun hunda sem ætlaðir eru í slíkt starf, velferð hunda, ábyrgð stjórnenda hunda, ávinning og vinnu með skólahunda og vellíðan manna í návist dýra.

Verkefnið felst í því að Orka verður í skólastofunni tvo daga í viku. Hún verður hluti af skólaumhverfinu og munu nemendur læra umgengni við hundinn og læra með honum. Einnig er möguleiki á að vera með kennslustundir þar sem aðrir kennarar gætu sent nemendur til okkar Orku og yrðu verkefni unnin í litlum hópi eða með einstaklingi. Hugsunin er að tengja við verkefnið Nurture, sem er tilraunaverkefni á vegum Reykjavíkurborgar, sem leikskólar Rimahverfis taka einnig þátt í.

Þjónusta með aðstoð hunds í starfi gefur mér sem kennara tækifæri á að skapa ýmsar aðstæður sem geta aðstoðað nemendur við nám sitt, líðan og þroska

Markmið verkefnisins eru að auka vellíðan, ró, sjálfstraust og árangur nemenda, vinna verkefni með íhlutun hundsins og hvetja nemendur til vinnu og verka. Margar rannsóknir, greinar og ritgerðir eru til um árangur þjónustu með aðstoð dýra í vinnu með fólki. Í þeim hefur til að mynda komið fram að umgengni við dýr auki félagshæfni, bæti samskipti og auki samhygð. Snerting, strokur og samskipti við hund framkalla þá hormónið oxytocin sem vekur og eykur á vellíðan.

Vinna með skólahunda um allan heim hefur til dæmis sýnt fram á jákvæðan árangur hjá börnum sem hafa orðið fyrir einelti og einnig kveikt áhuga þeirra á lestri og öðru námi. Rannsóknir hafa líka sýnt fram á að einstaklingar með einhverfu hafi átt auðveldara með að taka þátt í ýmsum athöfnum með aðstoð hunds. Einnig er hægt að vinna með skólaforðun sem er stigvaxandi vandi.

Þjónusta með aðstoð hunds í starfi gefur mér sem kennara tækifæri á að skapa ýmsar aðstæður sem geta aðstoðað nemendur við nám sitt, líðan og þroska. Ég fer full eftirvæntingar inn í skólaveturinn og hlakka til að sjá hvert verkefnið flytur.“