Hundruð kennara mættu á samstöðufund

„Mikil samstaða er um verkefnið innan okkar raða og við gerum þá kröfu að í lýðræðissamfélagi sé staðið við gert samkomulag," segir í ályktun samstöðufundar kennara sem fram fór í Hafnarfirði í dag.
Ríflega þrjú hundruð kennarar sóttu samstöðufund í Haukaheimilinu í Hafnarfirði í dag. Kennarar í Hafnarfirði skipulögðu viðburðinn en meðal fundarmanna mátti sjá kennara úr Garðabæ og af Reykjanesi. Páll Erlingsson, sem á sæti í verkfallsstjórn KÍ, stýrði fundinum.
Til máls tóku Mjöll Matthíasdóttir, formaður Félags grunnskólakennara, Hrefna Sif Hreiðarsdóttir, kennari og trúnaðarmaður í Áslandsskóla, Margrét Össurardóttir, kennari í Hvaleyrarskóla, Valdimar Víðisson, skólastjóri í Öldutúnsskóla og verðandi bæjarstjóri í Hafnarfirði, og Haraldur Freyr Gíslason, formaður Félags leikskólakennara
Fundurinn samþykkti ályktun, sem má lesa hér að neðan, með lófaklappi. Valdimar Víðisson tók við ályktuninni og kvaðst myndu fara með hana til bæjarstjórnar.
Ályktun fundarins hljómar svona í heild
Ályktun félagsmanna KÍ í Hafnarfirði 18. nóvember 2024
Félagsmenn Kennarasambands Íslands í Hafnarfirði skora á sveitarstjórn að beita sér fyrir lausn í kjaradeilu Kennarasambands Íslands, Sambands íslenskra sveitarfélaga og íslenska ríkisins.
Árið 2016 var gert samkomulag milli opinberra launagreiðenda og bandalaga stéttarfélaga um breytingar á skipan lífeyrismála. Árið 2017 höfðu lífeyrisréttindi launþega á almennum og opinberum vinnumarkaði verið jöfnuð. Það tók því aðeins eitt ár.
Samkomulagið kveður einnig á um að jafna eigi laun á milli markaða á sex til tíu árum. Síðan eru liðin 8 ár.
Samstarf um hvernig standa eigi að jöfnun launa hefur enn ekki borið árangur. Því hafa aðildarfélög Kennarasambandsins sammælst um það markmið að kjarasamningar allra aðildarfélaga feli í sér skuldbindingu viðsemjenda um hvernig verður staðið við samkomulagið um jöfnun launa á næstu árum.
Kennarar krefjast sambærilegra launa og aðrir háskólamenntaðir sérfræðingar á atvinnumarkaði. Ómálefnalegur launamunur milli markaða hefur alvarlegar afleiðingar á íslenskt skólakerfi og það vantar kennara. Það er tímabært að bregðast við stöðunni með því að jafna launin og fjárfesta þannig í skólakerfinu og framtíðinni um leið.
Mikil samstaða er um verkefnið innan okkar raða og við gerum þá kröfu að í lýðræðissamfélagi sé staðið við gert samkomulag. Mikilvægt er að sveitastjórnir, sem bera t.d. ábyrgð á að framfylgja lögum um skóla á Íslandi, liðki fyrir viðræðum með því að leggja áherslu á að fjárfesta í kennurum.
Samstöðufundur félagsmanna Kennarasambands Íslands, þann 18. nóvember 2024 í Hafnarfirði, skorar á bæjarstjóra og bæjarstjórn Hafnarfjarðarbæjar að beita sér fyrir því að staðið verði við gerða samninga svo tryggt verði að laun félagsfólks Kennarasambandsins standist samanburð við laun sérfræðinga á almennum markaði.
Fjárfestum í kennurum! Fjárfestum í framtíðinni!