Hugverkasamkeppni um jafnréttishugtök og merkingu þeirra

Jafnréttisnefnd KÍ hefur hleypt af stokkunum samkeppni meðal nemenda á öllum skólastigum þar sem markmiðið er að vekja skólasamfélagið til meðvitundar um mikilvægi jafnréttis.
Jafnréttisnefnd KÍ (JAKÍ) hefur að markmiði að bæta jafnréttisnæmi allra þeirra sem starfa og stunda nám í skólum landsins. Til að nálgast þá áskorun hleypir JAKÍ hugverkasamkeppni meðal allra nemenda af stokkunum og er skilafrestur til 8. mars 2021.
Allir stjórnendur í leik-, grunn-, framhalds- og tónlistarskólum hafa fengið sent bréf þar sem finna má allar upplýsingar um samkeppnina allt frá markmiðum til dómnefndar. Í bréfinu er einnig að finna hugtakalista með útskýringum enda gengur samkeppnin út á það að þátttakendur kynni sér hugtök jafnréttis með hjálp kennara og nýti þau til innblásturs hugverka sinna.
Von JAKÍ er að kennarar taki þessar nýbreytni fagnandi og nýti hana sem skemmtilegt uppbrot í kennslunni núna í byrjun árs.
„Jafnrétti er einn grunnþátta menntunar og á hann að koma við sögu í allri skólagöngu hvers barns á Íslandi. Með samkeppni sem þessari er ætlunin að ná til enn fleiri grunnþátta en jafnréttis. Mannréttindi og lýðræði eru hugtök af sama meiði og jafnrétti, því ekki næst jafnrétti nema mannréttindi séu höfð að leiðarljósi og lýðræði telst vart þroskað í samfélagi þar sem lítil meðvitund er um mikilvægi jafnréttis," segir í kynningarbréfi JAKÍ.
Þátttakendur hafa frjálsar hendur
Með samkeppninni vill nefndin vekja skólasamfélagið til meðvitundar um breiða ásýnd jafnréttis og mikilvægi þess. Samkeppnin gengur út á að örva læsi nemenda á jafnréttismál og útfærslan verður alltaf sköpun af ýmsum toga.
Kennurum er í lófa lagið að velja hugtök sem henta og laga útskýringarnar að sínum aldurshópi. Samkeppnin er einstaklingskeppni en þó er ekkert því til fyrirstöðu að tveir eða fleiri taki sig saman um að senda hugverk í keppnina. Kennarasamband Íslands mun veita verðlaun fyrir bestu og mest lýsandi hugverk í hverjum aldurshópi.
Þátttakendum eru ekki settar neinar skorður við sköpun sína en koma þarf fram í verkinu á einhvern hátt hvaða hugtak veitti innblástur.
Lesa um fyrirkomulag samkeppninnar.