Hugsjónafólk í Monterrey
Fyrstu þúsund dagarnir í lífi barns eru í brennidepli í starfsemi CENDI-samtakanna í Monterrey í Mexíkó. Samtökin reka 16 leikskóla og einn grunnskóla þar sem börnin njóta handleiðslu frá 45 daga aldri. Sjö manna sendinefnd á vegum Háskólans á Akureyri, Miðstöðvar skólaþróunar, Sjúkrahússins á Akureyri og Akureyrarbæjar kynnti sér starfsemi CENDI nýlega. Kristín Dýrfjörð sem leiddi hópinn, segir frá því sem fyrir augu bar í Monterrey.
„Við urðum vitni að afskaplega merkilegu hugsjónastarfi; starfi sem gengur út á það eitt að hlúa að og styrkja minnstu þegna landsins til aukins þroska og menntunar og um leið gera þá hæfari til að taka við keflinu þegar þeirra tími kemur,“ segir Kristín Dýrfjörð, dósent og leikskólakennari við Háskólann á Akureyri.
CENDI-samtökin voru Kristínu ekki alveg ókunn því hún heimsótti Monterrey ásamt dr. Guðrúnu Öldu Harðardóttur, pedagogista við leikskólann Aðalþing, síðastliðið haust. Þær héldu báðar erindi á ráðstefnu CENDI og Kristín segir ferðina hafa verið mikið ævintýri. „Við fengum auðvitað svolítið menningarsjokk í upphafi en smám saman urðum við þess áskynja að þarna fór fram stórmerkilegt starf.“
Stofnendur og frumkvöðlar CENDI eru hjónin Alberto Anaya Guiterrez og Maria Guadalupa Rodriguez Martinez. Þau vildu að sögn Kristínar leggja sitt af mörkum til að styrkja samfélagið og álitu að best væri að breyta því innan frá. „Þau horfðu annars vegar til Kúbu og hins vegar til Norðurlandanna. Þau sáu að fyrst yrðu þau að styrkja innviði fátækrahverfanna með því að byggja upp heilsugæslu, mæðravernd og leikskóla. Þar sem í Mexíkó eru ekki til lög eða reglugerðir sem tryggja fjármagn til menntunar yngstu barnanna varð þeirra leið að stofna stjórnmálaflokk, vinstrisinnaðan flokk sem kallast Partido del Trabajo (Verkamannaflokkurinn) sem hefur það hlutverk að berjast fyrir réttindum yngstu samborgaranna, CENDI og menntunarmálum almennt. Nú er staðan sú að Alberto situr á mexíkóska þinginu en Maria stýrir skólastarfinu,“ segir Kristín og bætir við að markmið CENDI sé að koma í veg fyrir að börnin verði síðar meir „fóður“ fyrir eiturlyfjahringi. „Monterrey er borg í greipum óttans og því miður starfa þar eiturlyfjahringir sem hafa sterk ítök í samfélaginu.“
Söngur og aftur söngur er eitt af aðalsmerkjum CENDI-skólanna. Orðaforði barnanna er aukinn með söng og þá fer enskukennsla eldri barna að miklu leyti fram í söngtímum.
Unnið markvisst með heilann
Konur í Mexíkó njóta ekki mikilla réttinda þegar kemur að fæðingarorlofi en þær geta verið með barni sínu fyrstu 45 dagana eftir fæðingu. „Ferlið hefst hins vegar mun fyrr hjá CENDI, eða þegar konurnar eru komnar 12 vikur á leið. Eitt af markmiðum CENDI er að stuðla að eðlilegum fæðingum en um 90 prósent mexíkóskra barna eru fædd með keisaraskurði. Þetta er eitt hæsta hlutfall í heimi,“ segir Kristín en til samanburðar má nefna að um 16 prósent fæðinga hérlendis eru keisaraskurðir.
„Konurnar eru þar með komnar inn í mæðravernd; þær fá fræðslu um næringarfræði og boðið er upp á lamaze-öndunarog líkamsæfingar. Þetta er gert til að stuðla að góðri heilsu á meðgöngunni og eðlilegri fæðingu. Hjá CENDI er reglan sú að konur sem eru á vinnumarkaði fá aðgang að fullu prógrammi en þær sem eru heimavinnandi koma tvisvar í viku með börnum sínum, þar sem þær læra umönnun barnsins, hvaða næring hentar en mesta áherslan er á að leika við og örva barnið. Þessi aðferðafræði heillaði mig og ekki síst þessi mikla áhersla á samveru við barnið, næringu og heilastarfsemi fyrstu þúsund dagana,“ segir Kristín.
Íslenski hópurinn heimsótti nokkra skóla á vegum CENDI, til dæmis ungbarnadeildir þar sem voru um tuttugu börn á aldrinum frá 45 daga og upp í eins og hálfs árs. En á eldri deildunum eru börnin allt að 36 saman á deild með tveimur kennurum. „Menntastefnan byggist að miklu leyti á taugasálfræði og taugavísindum; unnið er með heilann frá fyrsta degi. Við tókum líka eftir því hve börnin voru hávaxin og þar er hin vandaða næring sterkur þáttur. Skólarnir eiga það líka sammerkt að vera rosalega hreinir; starfsmenn sem vinna á yngstu deildunum eru með hárnet og allt er gljáandi hreint. Læknir starfar í hverjum skóla og á hverjum morgni tekur hann ásamt hjúkrunarfræðingi á móti börnunum. Þá er kannað hvort börnin séu heil heilsu en líka hvort þau séu ekki hrein og strokin. Leið CENDI til að stuðla að almennu hreinlæti barna var að taka upp skólabúninga og CENDI leggur börnunum til fatnaðinn og er afar mismunandi hversu mikið foreldrar þurfa að borga; það fer allt eftir efnahag fjölskyldunnar. Sumir eilítið, aðrir ekkert.
Lesið fyrir þriggja mánaða gömul börn. Málörvun hefst strax við upphaf skólagöngunnar en flest börnin koma til CENDI þegar þau eru 45 daga gömul. Kennarinn skartar hárneti eins og allir starfsmenn CENDI og reyndar gestir líka. Hárnetið er eitt markra tákna um hreinlæti sem er í hávegum haft.
Danskennsla góður undirbúningur fyrir lestur
Námsferill barnanna í CENDI hefst strax og þau koma, 45 daga gömul, og námið miðar að því að örva heilastarfsemina. Að sögn Kristínar er allt ferlið í raun og veru undirbúningur fyrir lestur. „Málörvun hefst mjög snemma og við sátum til dæmis í málörvunarstund hjá þriggja mánaða börnum. Slík stund stendur yfir í um 20 mínútur og börnunum, sem sitja í ömmustólum, er raðað í hring. Leikskólakennararnir nota dót og spjöld; ef textinn fjallar til dæmis um traktor þá eru þeir með traktor. Auk þess er mikil áhersla lögð á söng og mikið sungið með yngstu börnunum. Þá eru notaðir háir tónar og raddir sem rannsóknir hafa sýnt að ná til yngstu barnanna. Þannig er unnið með málörvun frá upphafi. Aðferðafræði á borð við þessa hefur komið til umræðu hér, til dæmis í verkefninu Okkar mál í Breiðholti,“ segir Kristín.
Það vakti athygli íslensku ferðalanganna að í hverjum skóla er að finna víðáttumikla sali ætlaða til hreyfingar. „Það er lögð mikil áhersla á hreyfingu. Dans og karate eru greinar sem börnin læra frá unga aldri. Í dansinum er mikið byggt á þjóðlegum hefðum en það er trú kennara í CENDI að dansinn sé mikilvægur í þroskaferlinu. Börnin læra þar ákveðna röð og reglu, hvað kemur fyrst og hvað svo, sem eru grundvallaratriði fyrir lesturinn síðar meir. Karate þykir líka gott fyrir heilastarfsemina,“ segir Kristín og bætir við að auk hreyfingar sem ætlað er að örva heilann og byggja grunn undir lestrarfærni þá sé enskan einnig námsgrein sem þyki mikilvæg. „Bandaríkin eru afskaplega nálægt og það hefur örugglega áhrif, en enskukennslan fer einkum fram með tvennum hætti, í gegnum tölvuleiki og með söng,“ segir Kristín.
Vilja viðurkenningu að utan
CENDI er miklu meira en bara skóli því segja má að samtökin hafi byggt upp eigið velferðarkerfi innan fátækrahverfanna. Börnin njóta þess að hjá CENDI starfa auk kennara, næringarfræðingar, sálfræðingar, félagsráðgjafar, barnalæknar og hjúkrunarfræðingar. Auk þess starfa tannlæknir og tvær ljósmæður á vegum samtakanna. „Þessi umgjörð hefur gefið góða raun og samfélagslegu áhrifin eru jákvæð. Það er ekki bara barnið sem nýtur menntunar og góðs atlætis heldur öðlast fjölskyldan öll tækifæri til að fræðast um uppeldi, menntun og heilbrigði.“
Spurð hvers vegna samtökin leiti til skólafólks á Norðurlöndum segir Kristín að þau vilji gjarna fá auka „augu“ á starfsemina. „Að ákveðnu marki vilja þau fá gagnrýni en líka staðfestingu á að verið sé að gera góða hluti. Því þekktari sem samtökin eru og því fleiri sem vita hvað þau standa fyrir, því erfiðara er að slá þau af heimafyrir,“ segir Kristín og bætir við að vegna þessa sé gæðaeftirlit í skólunum til dæmis mjög strangt. „Hreinlætið er sérkapítuli en það sendir ákveðin skilaboð út í samfélagið. Aðrir hlutir eru líka skoðaðir ofan í kjölinn og ef fundið er að atriði í störfum leikskólastjóra þá hefur hann eitt ár til að gera umbætur. Takist það ekki þá er viðkomandi sagt upp störfum. Það er engin miskunn í þeim efnum.“
Börnin í CENDI byrja ung að læra ensku, enda Bandaríkin skammt undan. Tölvuleikir og söngur eru undirstaða enskukennslunnar.
Nýjar hugmyndir í farteskinu
Ferðin til Monterrey var afar lærdómsrík fyrir alla sem tóku þátt. „Við urðum vitni að hugsjónastarfi sem er einstakt. Starfsfólk CENDI og frumkvöðlarnir vinna gríðarlega gott starf og viðleitni þeirra til að læra meira og bæta starfið er virðingarverð,“ segir Kristín og bætir við hópurinn hafi komið heim með nýjar hugmyndir á ýmsum sviðum.
„Ég myndi til dæmis vilja sjá ungbarnaverndina hér taka inn hluta af því sem var í boði hjá CENDI. Þessi markvissa þjálfun frá 3ja mánaða aldri fannst mér heillandi; hvernig mæðurnar læra ungbarnanudd þar sem barnið er alltaf strokið frá hægri hendi og yfir á vinstri fót. Miðlínan er strokin og svo unnið með krossun fóta. Fjaðrir voru notaðar til að strjúka barninu og yngstu börnin fengu sérstakar mottur með mismunandi áferð til að strjúka og snerta. Þau læra að snerta og hlusta á hljóðin sem myndast við snertingu, og allt þetta er hugsað sem undirbúningur fyrir lestrarkennslu síðar, hvað sem manni finnst svo um það. Við fengum að sjá rannsóknir sem sýna árangur þessara aðferða. Söngurinn er annað atriði sem starfsfólk CENDI beitir mjög markvisst í náminu. Þetta er atriði sem ég myndi vilja sjá meira af hér á landi og einnig hvernig unnið er með orðaforðann,“ segir Kristín.
Starfsfólk CENDI hefur lýst áhuga á að koma til Íslands og kynna aðferðir sínar og læra um leið af íslensku leikskólastarfi. „Þau vilja efla sköpun í sínum skólum en það er einmitt atriði sem stendur veikum fótum í skólum CENDI. Þar höfum við ýmislegt fram að færa og á móti getum við lært aðra hluti af þeim,“ segir Kristín Dýrfjörð.
Greinin birtist í Skólavörðunni, tímariti Kennarasambands Íslands.
Lestu tímaritið í vefútgáfu eða sæktu Skólavörðuappið á Google Play eða í App-Store.