Hugrekki til breytinga

Silja Kristjánsdóttir, grunnskólakennari og frambjóðandi til varaformanns KÍ, skrifar
Þegar ég var lítil ætlaði ég að verða stríðsljósmyndari, að vinna fyrir Sameinuðu þjóðirnar og taka myndir af börnum í stríðshrjáðum löndum. Ég æfði mig að taka myndir, myndir af börnum og myndir á hröðum íþróttaleikjum, var með blaðamannapassa og gékk meira að svo langt að til þess að læra réði ég mig sem ljósmyndara í ákveðið verkefni hjá Morgunblaðinu gegn því einu að fá leiðsögn frá ljósmyndurum blaðsins um hvernig ég gæti gert betur.
Þessi áhugi var ekki sprottinn af áhuga á stríði, heldur þeim einlæga tilgangi að bæta heiminn. Breyta heiminum til hins betra. Þó svo að ég hafi ekki enn unnið fyrir SÞ, má segja að þetta hafi í raun verið ákveðið þema í mínu lífi.
Eftir menntaskóla lærði ég viðskiptalögfræði á Bifröst, praktískt nám, sem ég áttaði mig ekki á fyrr en að ég hætti og fór að vinna í leikskóla að hafði líka snúist um það að reyna að bæta heiminn. Það var hins vegar í leikskólanum sem ég uppgötvaði að besta leiðin til að breyta heiminum er að vera kennari. Allir litlu sigrarnir, samræðurnar, spurningarnar og sögurnar. Fjölbreytt verkefni, hlátur og grátur, virðing og samvera. Allt þetta getur haft svo endalaust mikil áhrif og því skiptir það ótrúlega miklu máli hver það er sem sinnir þessu starfi.
Að mínu mati eru kennarar og skólastjórnendur með valdameiri stéttum landsins, ekki endilega með sýnileg völd, heldur með völd til að móta framtíðina. Það væri mjög heillavænlegt að leyfa kennurum og skólastjórnendum að hafa meira með það að segja hvernig best er að haga skólunum og menntakerfinu. Miðlægar ákvarðanir teknar á skólaskrifstofum eða í ráðuneytum eru illa til þess fallnar að bregðast við þeim fjölbreyttu verkefnum sem skólarnir standa frami fyrir.
Það er meðal stærstu verkefna sem bíða nýkjörins formanns Kennarasambandsins og þess varaformanns, sem nú er verið að kjósa, að tryggja að kennarar og skólastjórnendur verði alltaf kallaðir að borðinu þegar verið er að fjalla um eða taka ákvarðanir um menntamál, vinnuaðstæður og mannauðsmál í leikskólum, grunnskólum, tónlistarskólum og framhaldsskólum. Að um raunverulegt samráð sé að ræða og að hlustað sé. Til þess þurfa formaður og varaformaður bæði að vera talsmenn út á við og ekki síður inn á við, þurfa að efla aðildarfélögin og gæta þess að unnið sé fyrir alla kennara og skólastjórnendur á landinu.
Framboð mitt til varaformanns KÍ snýst því enn um það að bæta heiminn því að með öflugum kennurum og skólastjórnendum sem fá að nýta fagmennsku sína og kraft í starfi, náum við meiri árangri og heimurinn verður betri.