Hugleiðingar um heimanám
Nýtt Greinarkorn er komið á vef SÍ. Að þessu sinni skrifar Sigurður Arnar Sigurðsson, aðstoðarskólastjóri í Grundaskóla, um heimanám. Sigurður segir í grein sinni að starfsfólk Grundaskóla hafi um skeið rætt tilgang og markmið heimanáms. Niðurstaða þeirrar umræðu sé að árangur af slíkri vinnu sé ekki sjálfgefinn og taki mið af mörgum breytum. Kennarar hérlendis ákveði nánast einhliða hvort nemendur sinni heimanámi, sjaldnast sé haft samráð við foreldra eða nemendur.
„Á síðustu árum hefur starfstími skóla lengst. Þrátt fyrir þessa lengingu eru fáar vísbendingar um að heimanám hafi minnkað heldur þvert á móti bendir ýmislegt til þess að aukin áhersla hafi færst á heimanámið. Við sem störfum í skólum verðum að skoða í hvað erum við að verja kennslutímanum og hvernig nýtum við þann tíma. Leggjum með öðrum orðum áherslu á dagvinnu en drögum úr yfirvinnu ef svo má að orði komast," skrifar Sigurður Arnar í Greinarkorninu og bætir við að ekki megi skilja hugleiðingar hans sem svo að allt heimanám sé slæmt. „Heimanám á rétt á sér en framsetning þess og skipulag skiptir öllu máli."