Huggulegheit og þægindi í jólaös

Skólavarðan tínir til nokkra hluti sem geta vonandi auðveldað skipulagið í aðdraganda jóla og aukið á notalegar stundir heimavið.
Skólavarðan mælir með...
Minn hlátur er sorg
Bók

Við skulum minnast þess að mennirnir hafa óstöðugan vilja og áform þeirra verða oft að engu. Og tíminn, sem flest vinnur, getur kælt eða slökkt eld hatursins smám saman. Að minnsta kosti endist það ekki út yfir gröf og dauða.
Glögg
Notalegheit
Skólavarðan mælir með glöggi yfir myrkasta veturinn. Aðkeypt eða heimagert heitt vín (áfengt eða óáfengt) með möndlum, rúsínum, kanil og fleira kryddi. Hlýtt í hjartað með hverjum krydduðum sopa.

Sporcle
Leikir
Meðlimir Skólavörðunnar eyða löngum stundum utan vinnu í að leysa orðagátur og spurningakannanir á vefsíðunni Sporcle.com. Þar er að finna ógrynni af prófum og stuttum könnunum þar sem spurt er út í hvaðeina sem notanda getur dottið í hug; afþreyingarefni, sögu, landafræði, pólitík og svo má lengi telja, á mismunandi hátt. Eins konar Trivial Pursuit á netinu sem vel er hægt að drepa tímann með og læra eitthvað nýtt í leiðinni.
Heima
App
Heima appið auðveldar fjölskyldunni skipulag og heimilisstörfinog gerir þau skemmtilegri með því að breyta þeim í leik. Hver og einn fjölskyldumeðlimur fær stig fyrir að ljúka verkum eins og að setja í uppþvottavélina, fara út með ruslið, versla inn og þar fram eftir götunum og í lok viku er hægt að sjá hver er stigahæstur. Appið dreifir líka hugrænni byrði heimilisverkanna en allir meðlimir geta bætt verkum og markmiðum á listann eftir þörfum.
Lo-fi myndbönd á YouTube
Internetið
Skólavarðan mælir með að hafa lo-fi, eða „low fidelity“, tónlistarmyndbönd í gangi í myrkrinu, eins og þegar verið er að elda, koma deginum af stað, fá gesti í heimsókn og þess háttar. Ófullkomnir lo-fi tónarnir, settir yfir einfaldar teiknimyndir, hafa róandi og góð áhrif og setja vissa stemmningu í loftið. Hægt er að benda á rásirnar The Jazz Hop Café og Lofi Girl.
Cameo
Jólagjafir
Nú fer að koma að stærstu gjafahátíð ársins. Fyrir þau sem hafa umhverfissjónarmið að leiðarljósi við jólagjafakaupin er vel hægt að mæla með Cameo. Á vefsíðunni er hægt að kaupa myndbandskveðjur fyrir vini og vandamenn frá uppáhalds stjörnunum; frægum leikurum, tónlistarmönnum, grínistum, íþróttamönnum og raunveruleikastjörnum. Boy George, Ice T, Lindsay Lohan, Kevin úr Office eða Dennis Rodman gætu sent þínum ástvini sérhannaða kveðju um jólin.