Hugarfrelsi – námskeið
Kennarasambandið vekur athygli á sérsniðnu námskeiði fyrir kennara og námsráðgjafa.
Á námskeiðinu eru kenndar aðferðir Hugarfrelsis; sjálfstyrking, öndun, jóga, slökun og hugleiðsla. Aðferðirnar miða að því að efla einbeitingu, styrkleika, sjálfmynd, draga úr kvíða og auka kyrrð og ró nemenda.
Staðsetning:
- Reykjavík: 1. og 8. september kl.13:00-16:00 (6 klukkustundir).
- Akureyri: 13. október kl.13:00-20:00 (6 klukkustundir).
Verð: 29.900 kr.
Innifalið í verði: Kennslubók, verkefnahefti, heilræðaspjöld og geisladiskur með slökunartónlist.
Skráning fer fram á vefsíðunni hugarfrelsi.is
Nánari upplýsingar um námskeiðið:
Dagskrá barna og ungmenna er oft yfirhlaðin frá morgni til kvölds. Ungmenni vilja standa sig vel á öllum sviðum lífsins. Þau vilja líta vel út, fá toppeinkunnir í skólanum, standa sig í öllum íþróttum, tómstundum og í félagslífinu. Samfélagið, foreldrar og ekki síst þau sjálf gera miklar kröfur til þeirra og oft á tíðum er ungdómurinn að kikkna undan álaginu.
Svefnleysi, einbeitingarskortur, aukinn kvíði og vanlíðan getur gert vart við sig og ekki hjálpa nútíma samskiptahættir til. Síminn og tölvurnar þeirra pípa allan sólarhringinn, þau þurfa að svara, „læka“ og vera með í öllum þeim sýndarveruleika sem á sér stað þar. Námskeiðið er sérsniðið fyrir kennara og námsráðgjafa til að efla nemendur sína. Það er byggt á kennslubók Hugarfrelsis og þeim aðferðum sem þar eru kenndar.
Fyrri dagur kl. 13:00 - 16:00
Kenndar verða aðferðir til að efla einbeitingu, félagsfærni, koma auga á styrkleika og styrkja sjálfsmynd nemenda.
- Sjálfsmynd – Mikilvægi sjálfsmyndar, skref til að styrkja hana
- Styrkleikar – Hvar liggja styrkleikarnir?
- Vinátta – Yfir hverju býr góður vinur?
- Fyrirmyndir og hrós – Áhrif fyrirmynda og hróss
- Öndun – jóga – slökun - hugleiðsla
Unnin verða hóp- og einstaklingsverkefni.
Seinni dagur kl. 13:00 – 16:00
Kenndar verða aðferðir sem hjálpa nemendum að koma auga á hvað hugsanir þeirra hafa mikil áhrif á tilfinningar þeirra og hegðun. Farið verður yfir mikilvægi fyrirgefningar og þess að eiga sér drauma sem ýta undir hamingjuríkt líf.
- Hugsanir – Áhrif þeirra á líðan og hegðun.
- Tilfinningar – Hvernig er best að bregðast við tilfinningum?
- Fyrirgefning – Af hverju er fyrirgefningin mikilvæg?
- Draumar – Að nálgast drauma sína.
- Hamingja – Hvað ýtir undir hamingju?
- Öndun – jóga – slökun - hugleiðsla
Unnin verða hóp- og einstaklingasverkefni. Þátttakendur þjálfast í að kenna öðrum aðferðir Hugarfrelsis.