Hugað að starfslokum

Dísa Björg Jónsdóttir, deildarstjóri lífeyrisdeildar LSR, fjallar um lífeyrismál við starfslok í nýrri Skólavörðu.
Meðalævi Íslendinga hefur lengst síðustu áratugi sem eru góðar fréttir. Lengri ævi þýðir að árum eftir starfslok fjölgar og til að njóta þeirra sem best er gott að huga tímanlega að eftirlaunaárunum. Sjóðfélagar í Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins (LSR) hafa ákveðið svigrúm við töku eftirlauna og með því að kynna sér vel þá kosti sem í boði eru er hægt að sníða eftirlaunin að högum hvers og eins.
A-deild LSR
Hjá sjóðfélögum í A-deild LSR er almennur eftirlaunaaldur 67 ára. Lífeyristaka getur þó hafist hvenær sem er á aldrinum 60 til 80 ára með tilheyrandi lækkun eða hækkun eftirlaunagreiðslna eftir því hvort farið er á eftirlaun fyrir eða eftir 67 ára. Ekki er nauðsynlegt að láta af störfum samhliða eftirlaunatöku úr A-deild og launa-tekjur skerða ekki eftirlaunagreiðslur úr sjóðnum. Sjóðfélagar sem halda áfram í starfi samhliða eftirlaunatöku greiða áfram í sjóðinn en þau réttindi bætast við eftirlaunagreiðslur frá 70 ára aldri.
Hálf eftirlaun eru góður valkostur fyrir þá sem vilja hefja eftirlaunatöku allt niður í 60 ára aldur. Þá er helmingur eftirlaunaréttinda greiddur mánaðarlega, með þeirri lækkun sem fylgir því að taka eftirlaun snemma. Hinn helmingur réttindanna þróast áfram í takt við reglur sjóðsins þar til sjóðfélagi sækir um útgreiðslur á heildareftirlaunum. Þá bætist sá helmingur við eftirlaunagreiðslurnar, auk þeirra réttinda sem bæst hafa við ef sjóðfélagi hélt áfram vinnu. Þetta getur haft ýmsa kosti í för með sér, eins og til dæmis að ekki þarf að bíða fram að sjötugu þar til réttindi sem ávinnast samhliða lífeyristöku bætast við eftirlaunagreiðslur.
B-deild LSR
B-deild er eldra réttindakerfi LSR. B-deildin hefur ekki tekið við nýjum sjóðfélögum frá 1996 og því fer sjóðfélögum deildarinnar sem enn eru virkir á vinnumarkaði ört fækkandi. Almennur eftirlaunaaldur B-deildar er 65 ára en þeir sem ná svokallaðri 95 ára reglu fyrir þann tíma eiga þó kost á að hefja töku eftirlauna allt niður í 60 ára aldur, en til þess þarf samanlagður greiðslutími iðgjalda til B-deildar og lífaldur að ná 95 árum.
Með því að vinna áfram eftir 65 ára er hægt að auka eftirlaunaréttindi í B-deild. Til að geta hafið töku eftirlauna er hins vegar skilyrði að sjóðfélagi sé ekki lengur í 50-100% starfi hjá ríki eða sveitarfélagi. Hálf eftirlaun eru í boði frá 65 ára aldri í B-deild, en þar sem enginn ávinningur felst í því að fresta eftirlaunatöku á helmingi réttinda í B-deild, auk þess sem sjóðfélagi þarf að minnka starfshlutfall sitt í 50%, hentar þessi valkostur mun færri sjóðfélögum en í A-deild.
Með aukinni þekkingu verður auðveldara að aðlaga sig að breyttu lífsmynstri sem fylgir starfslokum og lífeyristöku
Séreignarsjóður
Allt vinnandi fólk ætti að safna í séreignarsjóð. Ástæðan er einföld. Sjóðfélagi greiðir sjálfur 2-4% af launum sínum í séreign en á
móti bætir vinnuveitandinn við 2% mótframlagi sem launþeginn annars missir af. Í raun er því um 2% launahækkun að ræða. Það
er aldrei of snemmt eða of seint að byrja að safna í séreign.
Ef byrjað er snemma fæst ávöxtun yfir lengri tíma en jafnvel þótt byrjað sé að safna seint er alltaf verulegur ávinningur í því að fá mótframlagið frá vinnuveitandanum. Hægt er að taka séreignarsparnað út eftir hentugleika frá 60 ára aldri. Gott er að hafa í huga að jafnvel þótt byrjað sé að taka út úr séreignarsparnaðinum er hægt að halda innborgunum áfram. Þannig fæst alltaf 2% mótframlagið frá vinnuveitanda. LSR býður upp á þrjár mismunandi ávöxtunarleiðir í séreign sem henta sjóðfélögum misvel eftir aldri.
- Leið I er hlutabréfaleið sem hugsuð er til að ná hámarksávöxtun til lengri tíma.
- Leið II er skuldabréfaleið með minni sveiflum í ávöxtun sem hentar kannski best þeim sem eru á miðjum aldri.
- Leið III er svo innlánsleið, sem er með lágmarkssveiflum og á því best við þegar starfslok nálgast og skynsamlegt er að halda inneigninni stöðugri.
Séreignarsjóðir LSR eru góðir kostir, enda eru þeir alfarið í eigu sjóðfélaga sem fá allan ávinning af starfsemi sjóðanna. LSR tekur engin gjöld, upphafskostnað eða breytingakostnað og þannig renna öll iðgjöld beint í sparnað hvers sjóðfélaga strax frá fyrstu greiðslu.
Tilgreind séreign
Þá stendur sjóðfélögum í A-deild til boða að safna í tilgreinda séreign. Þá er hluti af skyldubundnu lífeyrisiðgjaldi nýttur til að safna í séreignarsjóð, en á móti lækka greiðslur í samtryggingu A-deildar. Með því er hægt að fá meiri sveigjanleika í útgreiðslum við starfslok, auka erfanlega eign í lífeyrissparnaði og mögulega létta undir við fyrstu fasteignakaup. Á móti lækka hins vegar réttindi til eftirlauna sem greidd eru til æviloka og örorku- og makalífeyris. Hver og einn þarf því að meta hvort tilgreind séreign henti fyrir sig.
Við hjá LSR hvetjum sjóðfélaga okkar til að kynna sér valkosti við töku eftir-launa tímanlega á vefnum okkar. Með aukinni þekkingu verður auðveldara að aðlaga sig að breyttu lífsmynstri sem fylgir starfslokum og lífeyristöku. Á mínum síðum sjóðsins er til dæmis hægt að skipuleggja starfslokin með reiknivél fyrir réttindi í A-deild, séreign og tilgreindri séreign. Jafnframt er starfsfólk sjóðsins ávallt reiðubúið til að aðstoða og svara fyrirspurnum sjóðfélaga.
