Hringnum lokað í NETnótunni 2021

Fréttir|28. júní 2021

Þriðji og síðasti þáttur NETnótunnar 2021 var sýndur á sjónvarpsstöðinni N4 í gærkvöldi.

Norðurland, Austurland, Suðurland og Reykjanes koma við sögu í þriðja og síðasta þætti NETnótunnar sem var frumsýndur á N4 í gærkvöld. Atriði úr 15 tónlistarskólum eru sýnd í þættinum. 

Þar með er hringnum um landið lokað en alls tóku ríflega fjörutíu tónlistarskólar þátt í Nótunni þetta árið. Eins og flestir vita þá kom kórónuveirufaraldurinn í veg fyrir að hægt væri að halda Nótuna með hefðbundnum hætti. Þess í stað var tónlistarskólunum boðið að senda inn myndbönd með tónlistarflutningi og fróðleik um skólana. Efnistök voru frjáls og sést það berlega í myndböndum sem eru fjölbreytt þegar kemur að tónlist og myndmáli. 

Hægt er að horfa á NETnótuþættina þrjá á vef N4

 

Myndbönd tónlistarskólanna sem koma fram í þriðja þætti er að finna í heild hér að neðan.