Hringferð KÍ 2023

Fulltrúar KÍ kynna skólastefnu sambandsins, helstu starfsemi félagsins og endurmenntunarsjóði aðildarfélaganna í hringferð um landið sem hefst í Reykjanesbæ 4. september og lýkur með fjarfundi 26. september.
Markmiðið er að efla starf og þjónustu sambandsins á landsbyggðinni og fá að heyra hvað brennur helst á félagsfólki KÍ um land allt. Hér fyrir neðan er að finna dagskrá fundarins ásamt skipulagi hringferðarinnar.
Dagskrá
16.30 Starfsemin - Hvað hefur Kennarasambandið upp á að bjóða?
Jónína Hauksdóttir, varaformaður Kennarasambandsins
16.40 Útgáfusvið - Hvernig virkar vefurinn?
Arndís Þorgeirsdóttir, sviðstjóri upplýsinga- og kynningarsviðs og Katrín Ásmundsdóttir, fulltrúi á upplýsinga- og kynningarsviði
16.50 Endurmenntunarsjóðirnir - Hvernig nýtast sjóðirnir við starfsþróun?
Elísabet Anna Vignir, Freydís Þrastardóttir og Sólveig K. Sveinsdóttir, þjónustufulltrúar sjóða
17.15 Skólastefnan - Hvernig nýtist Skólastefnan í starfi?
Jónína Hauksdóttir, varaformaður Kennarasambandsins
17.30 Samtal - Umræður, spurningar og svör
Skipulag
Fundirnir standa frá klukkan 16.30 til klukkan 18.00.
Mánudagur
4. sept.
Stapaskóli, Reykjanesbæ
16.30 LOKIÐ
ALÞriðjudagur
5. sept.
Fjölbrautaskóli Suðurlands, Selfossi
16.30 LOKIÐ
Miðvikudagur
6. sept.
Menntaskóli Borgarfjarðar, Borgarnesi
16.30 LOKIÐ
Fimmtudagur
7. sept.
Menntaskólinn á Ísafirði, Ísafirði
16.30 LOKIÐ
Mánudagur
11. sept.
Árskóli, Sauðárkróki
16.30 LOKIÐ
Þriðjudagur
12. sept.
Brekkuskóli, Akureyri
16.30 LOKIÐ
Miðvikudagur
13. sept.
Egilsstaðaskóli, Egilsstöðum
16.30 LOKIÐ
Fimmtudagur
14. sept.
Fjölbrautaskólinn við Ármúla, Reykjavík
16.30 LOKIÐ
Miðvikudagur
20. sept.
Fjölbrautaskólinn í Garðabæ, Garðabæ
16.30
Þriðjudagur
26. sept.
Teams
16.30
Hvað brennur á þér?
Við hvetjum allt félagsfólk Kennarasambandsins til að mæta á fundi á sínu svæði og taka þátt í umræðum. Nánari staðsetning verður auglýst síðar.
Endilega sendu póst á utgafa@ki.is ef eitthvað sérstakt málefni eða umræðuefni brennur á þér sem þú myndir sérstaklega vilja ræða og eiga samtal um á fundinum á þínu svæði.