Horft um öxl og fram á veg

Fréttir|5. nóvember 2025

Kennarasambandið efnir til árlegs Skólamálaþings 6. nóvember næstkomandi. Guðmundur Ingi Kristinsson, Elna Katrín Jónsdóttir, Katrín Jakobsdóttir og Ari Eldjárn verða meðal þeirra sem ávarpa samkomuna.

Kennarasamband Íslands efnir til Skólamálaþings og afmælisfagnaaðar fimmtudaginn 6. nóvember næstkomandi. Yfirskrift þingsins verður Horft um öxl og fram á veg og vísar til þeirra tímamóta að Kennarasambandið hefur nú verið starfrækt í aldarfjórðung.

Hugmyndin er að horfa inn á við, skoða fyrstu spor Kennarasambandsins en líka velta vöngum yfir framtíðin kann að bera í skauti sér. Tónlist og gamanmál verða líka á dagskránni.

Ávörp flytja

  • Guðmundur Ingi Kristinsson, mennta- og barnamálaráðherra
  • Ari Eldjárn uppistandari
  • Magnús Þór Jónsson, formaður KÍ
  • Elna Katrín Jónsdóttir, fyrrverandi varaformaður KÍ
  • Katrín Jakobsdóttir, fyrrum forsætis- og menntamálaráðherra
  • Jónína Hauksdóttir, varaformaður KÍ

 

Fylgist með í streymi

Félagsfólk er hvatt til að fylgjast með þinginu í streymi. Fullbókað er á staðfundinn en skráningu lauk á sunnudagskvöld. 

Þingið hefst klukkan 16 á morgun, fimmtudaginn 6. nóvember.