Horft fram á veginn

Fréttir|10. janúar 2024
Pistill

„Við gerum okkur grein fyrir miklum áskorunum á okkar vettvangi og finnst nú, meir en áður, að okkar rödd nái eyrum stjórnvalda og annarra haghafa innan skólakerfisins“, segir Magnús Þór Jónsson, formaður KÍ, í nýárspistli.

Magnús Þór Jónsson skrifar:

„Kæru kollegar. 

Áramót eru sannarlega áfangi þar sem rík hefð er fyrir að líta aftur fyrir sig og um leið horfa aðeins fram á veginn. Það á við bæði hjá hverjum og einum en líka hjá samtökum eins og Kennarasambandi Íslands því hvert ár er fullt af viðfangsefnum sem verða hluti af stærri sögu. Mörg heppnast vel á meðan gott er að læra af öðrum. 

Áfangasamkomulag, fyrsta skref í jöfnun launa milli markaða

Árið 2023 var kjarasamningsár. Á því gerðu öll aðildarfélög KÍ kjarasamning auk þess sem formaður og stjórn KÍ unnu að verkefnum tengdum jöfnun launa milli markaða árið um kring.   

Fyrsta skrefið í átt að jöfnun var tekið með svonefndu áfangasamkomulagi. Verkefnið var unnið á vettvangi „stærra borðs“ með aðkomu launafólks á opinberum markaði (KÍ, BHM og BSRB) og launagreiðenda (ríki, Reykjavíkurborg og launanefnd SNS) þar sem markmiðið var að finna ómálefnalegan launamun milli hins opinbera og almenna markaðar og finna leiðir til að leiðrétta hann.  

Verkefnið var ansi víðtækt og viðfangsefnið flókið. Lausnina, sem fólst í áfangasamkomulagi sem undirritað var í mars, þurfti svo töluverðan tíma til að útfæra og koma til afgreiðslu fyrir þau starfsheiti í kjarasamningum eða stofnunum sem við átti. Sú vinna stóð lungann af árinu undir stjórn verkefnahóps sem ætlað er að skila af sér tillögum að lúkningu þess verkefnis að leiðrétta ómálefnalegan launamun nú 15. janúar.  

Formaður KÍ leiðir þá vinnu, með stjórn KÍ sem bakhóp, enda liggur fyrir að ef að þessum stærri hóp launafólks og launagreiðenda tekst ekki að leysa verkefnið, verður það lagt inn í hefðbundna kjarasamningavinnu sem er jú leidd af aðildarfélögum KÍ.  

Verkefnið um jöfnun launa hefur gríðarlega þýðingu fyrir aðildarfólk KÍ, eins og vinnan við áfangasamkomulagið leiddi í ljós, en skýrar vísbendingar eru um ómálefnalegan launamun hjá kennurum og stjórnendum á öllum skólastigum, nokkuð sem er ólíkt öðrum stéttarfélögum á opinberum markaði.  

Því hefur vinnan við jöfnun launa (oft nefnd 7. greinarvinna) verið hluti kjarasamningssamtals á borði hvers aðildarfélags og í raun algerlega ljóst að verkefnið þarf að fá vægi í öllum þeim samningum sem að KÍ snúa þar til áfanganum um jöfnun launa er náð. Því verður 15. janúar ákveðin lykildagsetning í kjaramálavinnu okkar þar sem margt bendir til þess að verkefnið verði fært á borð hvers aðildarfélags til lúkningar. 

Kjarasamningagerð fyrirferðarmikil á árinu

Á borði aðildarfélaganna á síðasta ári voru almennir kjarasamningar. Líkt og þeir tveir síðustu þar á undan byggðu þeir á því sem kallað hefur verið „merki almenna markaðarins“ og vísar þar í að samningar á þeim vettvangi hafa verið leiðandi í allri kjarasamningagerð. Samningarnir lögðu upp krónutöluhækkanir með þaki sem henta okkur ansi illa og því fólst verkefni stjórna og samninganefnda KÍ í að aðlaga þessa hugmyndafræði að prósentum inn á launatöflur.  

Mitt mat er að vel hafi tekist til í þeim efnum. Þar skiptu miklu máli yfirveguð vinnubrögð leiðtoga aðildarfélaganna, sem að lokum náðu að finna ásættanlega niðurstöðu, og samningar samþykktir í öllum tilvikum með miklum meirihluta.

Eitt af markmiðum okkar er að raddir félagsfólks heyrist við „öll borð“ þar sem rætt er um okkar störf í þágu menntunar og skólastarfs í landinu  

Þó get ég ekki látið hjá líða þau vonbrigði sem lituðu niðurstöðu kjarasamningsgerðar Félags kennara og stjórnenda í tónlistarskólum nú í desember. Þar var, á síðustu stundu, kippt út mikilli vinnu að samræmingu þeirra samninga við aðra kennarasamninga hjá KÍ og farið enn á ný í að stagbæta þann samning sem kennarar og skólastjórnendur í tónlistarskóla búa við. Það verður því aftur og enn verkefni næstu kjarasamninga FT að ná því markmiði. 

Staða kjaramála í upphafi árs

Staðan á vinnumarkaði nú í upphafi árs er býsna snúin. Þessa dagana eru fulltrúar Samtaka atvinnulífsins að ræða við stéttarfélög á almennum markaði, þó að þessu sinni komi þau félög ekki saman að borði. Upplegg þeirra viðræðna virðist vera á sama formi, það er, að hækkanir verði í formi krónutöluhækkana með þaki, auk innspýtingar í bótakerfi hins opinbera.  

Þegar þær viðræður fóru af stað virkaði fréttaflutningur á þann hátt að í gangi væri samtal allra aðila á vinnumarkaði og þessar áherslur væru byggðar á því. Sem var hreint alls ekki. Við hjá KÍ gerðum okkar viðsemjendum því algerlega ljóst að við myndum ekki skrifa upp á neitt samkomulag um kjör nema að við kæmum, sem virkir aðilar, að því samtali. Sá vettvangur verður að vera á okkar forsendum enda ljóst að sú hugmyndafræði sem kynnt hefur verið sem leiðandi þáttur samtalsins á almennum markaði einfaldlega gengur ekki upp.  

Það verður að koma í ljós hver viðbrögðin við okkar málflutningi verða, þar á meðal við kröfunni um að jöfnun launa verði í lykilhlutverki okkar samtala við launagreiðendur. Það er löngu kominn tími á að okkar kjarasamningar verði okkar samningar á okkar forsendum. Árið 2024 er tilvalið til þess. 

Faglegir þættir 

Vinna að bættum kjörum og réttindum félagsfólks er veigamikill þáttur í okkar starfi og árið 2023 var töluverð vinna lögð í aðra þætti í störfum kennara og stjórnenda. Eitt af markmiðum okkar hjá KÍ er að raddir félagsfólks heyrist við „öll borð“ þar sem rætt er um okkar störf í þágu menntunar og skólastarfs í landinu.  

Við vorum reglulega kölluð til í ólíka starfshópa og á fundi og ráðstefnur innan- og utanlands. Það er mikilvægt að við tökum þátt í slíkri vinnu því starfsaðstæður og umgjörð menntunar eru auðvitað lykilþættir í okkar störfum.  

Við höfum talað fyrir því að í öllum aðstæðum sem snúa að málefnum ólíkra skólagerða og skólastiga sé lykillinn að árangri að tala frekar við kennara heldur en um kennara. Sú mantra er nú fleirum kunn en áður, en eftir því sem á árið leið var stöðugt oftar kallað eftir aðkomu KÍ og aðildarfélaga  þess. Það skapar auðvitað „jákvæðan vanda“, sem hefur þýtt það að við höfum kallað eftir aðkomu félagsfólks, sér í lagi í skólamálanefndum okkar, til að vinna að ákveðnum samráðsverkefnum. 

Farsældarvinna fyrirferðarmikil 

Mikið fór fyrir umræðu um svokallaða farsældarvinnu á árinu sem leidd er af mennta- og barnamálaráðuneytinu. Ráðstefnur um stefnumörkun nýrrar þjónustustofnunar voru stóra málið á fyrri hluta ársins. Á þeim seinni bar umræða um hlutverk skólaþjónustu í tengslum við gerð laga um skólaþjónustu á öllum skólastigum hæst. Þessi vinna hefur verið fyrirferðarmikil og verður áfram.  

Við hjá KÍ höfum haft margskonar aðkomu að þeirri vinnu, bæði á stórum ráðstefnum í Hörpu, vinnufundum með minni hópum í húsnæði KÍ og stýrihópi um lögin, og í framhaldinu, innleiðingu þeirra. Það hefur verið afskaplega mikilvægt að geta leitað í öflugan hóp kennara og skólastjórnenda við þessa vinnu. Það veit ég að er ekki bara mín skoðun, heldur líka fulltrúa stjórnvalda, og ég er fullviss um að svo verður áfram. 

Í öllum aðstæðum sem snúa að málefnum ólíkra skólagerða og skólastiga er lykillinn að árangri að tala frekar við kennara heldur en um kennara

PISA-niðurstöður kalla á aukið samráð  

Niðurstöður PISA-könnunarinnar frá árinu 2023 voru birtar í síðasta mánuði ársins. Niðurstöður sem því miður leiddu í ljós að árangur íslenskra nemenda í náttúrufræði, stærðfræði og íslensku versnaði frá síðustu könnun. Sem betur fer héldum við þó velli varðandi líðan nemenda og samskipta, bæði þeirra á milli sem og við kennarana sína. Árangur sem eftir hefur verið tekið á vettvangi alþjóðasamtaka kennara.

Umræðan um niðurstöður PISA hefur komið upp áður og þá má of oft sjá ólíka hagaðila skólakerfisins benda hver á annan ásakandi fingri um að ástæður niðurstaðna liggi í því að eitthvað hafi farið úrskeiðis hjá þeim, og í kjölfarið verið rætt um, eða hent í, átak til að vinna bug á þeim veikleika.  

Það bar vissulega einnig á slíku í ár, en þó í mun minni mæli en oft áður. Í staðinn mátti greina tón sem kallaði á aukið samráð allra hagsmunaaðila. Fólki var tíðrætt um mikilvægi samtals og sameiginlegrar rýnivinnu sem yrði að byggja á styrkleikum kerfisins en um leið horfa til þess að spyrna fótum við lakari árangri.  

Ísland var ekki einsdæmi. Árangur barna í PISA-prófinu er almennt lakari, ekki síst í þeim löndum sem við berum okkur helst saman við, svo sem hin Norðurlöndin, Þýskaland, Kanada og Nýja Sjáland, svo einhver séu nefnd.  

Ísland hefur átt virka rödd við borð ISTP-hópsins (International study of the teaching profession) hvar rýnt er í niðurstöður prófsins á heimsvísu með, meðal annars, það að markmiði að rýna í hverju prófin eiga að skila í umræðu um menntamál og umgjörð þeirra. Það verður fróðlegt að taka þátt í vinnu þess hóps nú í kjölfar þeirra niðurstaðna sem birtust á síðasta ári, þá á fundi hópsins í Singapúr í apríl. 

Talað inn í nýtt ár 

Hvað svo? Með árið 2023 í baksýnisspeglinum stígum við inn í nýtt almanaksár fullt af áskorunum, verkefnum og tækifærum. Kjaramálin verða sannarlega fyrirferðarmikil. Samningar losna fyrst í framhaldsskólunum hjá okkar félögum, eða 31. mars og svo hjá aðildarfélögum KÍ við launanefnd SNS tveimur mánuðum síðar, eða 31. maí. 

Nú strax, fyrstu daga nýs árs, eru kjaramál orðin veigamikil í þjóðfélagsumræðunni þar sem ákveðnir aðilar á almennum markaði hafa kallað eftir kjarasamningum til lengri tíma byggðum á hugmyndafræði krónutölusamninga. Eins og ég hef áður komið inn á í þessum pistli eru þær áherslur eru ekki, í okkar huga, sú lausn sem hentar aðildarfélögum KÍ, og verða ekki grunnur að okkar kjaramálavinnu, nema að áður hafi verið gengið frá varanlegu samkomulagi um jöfnun launa milli markaða, hinni margfrægu 7. grein. 

Framundan eru líka stór verkefni þegar kemur að öðrum þáttum í okkar starfi. Þar ber fyrst að nefna könnun á hugum félagsmanna til ólíkra þátta í umgjörð starfs þeirra, bæði innan skólanna og í starfsemi KÍ. Stefnt er að því leggja könnunina fyrir félagsfólk rafrænt snemma í febrúar og kynna svo niðurstöðurnar á dagsráðstefnu KÍ 9. apríl.  

Könnunin er hluti fyrrnefndrar sýnar okkar hjá KÍ að það sé farsælast að kennarar og skólastjórnendur leiði umræðu um skóla- og menntunarmál og horfi til lausna sem farsælastar eru fyrir ólíka þætti skólastarfs. Því leggjum við mikla áherslu á góða svörun okkar félagsfólks svo hægt sé að greina áherslur þess í starfinu og varpa ljósi á þá þætti sem við sjálf teljum mikilvægt að leiða fram í umræðuna. 

Stjórnvöld halda áfram samráði við okkur á nýju ári. Nú er í gangi vinna spretthóps, þar sem fulltrúar allra skólastiga eiga sæti,  við að stórauka námsefnisgerð. Vinnan við gerð laga um skólaþjónustu verður væntanlega fyrirferðarmikil á meðan á vorþingi stendur. Þá hefur vinna á vettvangi Norrænu kennarasamtakanna (NLS) miðað að aukinni upplýsingagjöf og eflingu samstarfs þegar kemur að launa- og kjaramálum og á árinu fara fram þing Alheimssamtaka kennara (EI) í Argentínu og Evrópsku kennarasamtakanna (ETUCE) í Svartfjallalandi. Áherslur þinganna verða kynntar nú á næstu vikum og verða fulltrúar KÍ á meðal þátttakenda. 

Þess utan eru ótal verkefni á borði okkar sem snerta dagleg störf íslenskra kennara og skólastjórnenda. Þau geta verið ólík og kallað á mismunandi nálgun en öll mikilvæg þegar kemur að því að efla gæðamenntun í landinu og styrkja umgjörð kennarastarfsins. Við gerum okkur grein fyrir miklum áskorunum á okkar vettvangi og finnst nú, meir en áður, að okkar rödd nái eyrum stjórnvalda og annarra haghafa innan skólakerfisins. Það er hins vegar enn langur vegur í það að hlustun og orðum fylgi markvissar aðgerðir. Það verður eitt mikilvægasta hlutverk okkar sem störfum á vegum Kennarasambands Íslands að sjá til þess að svo verði nú á þessu ári og í næstu framtíð. 

Takk kæru félagar fyrir innihaldsrík og ánægjuleg samskipti á árinu 2023. Megi nýtt ár vera okkur öllum farsælt og marka jákvæð skref í öllum okkar störfum.“