Holtaskóli sendir viðbrögð við læsishluta umræðuheftis um menntamál
Kennarar í Holtaskóla, Reykjanesbæ hafa sent Skólamálaráði KÍ viðbrögð við læsishluta umræðuheftis um menntamál sem sent var félagsfólki í febrúar síðastliðnum. Þetta eru fyrstu viðbrögðin sem berast við umræðuheftinu frá því að það var sent út í byrjun þessa árs.
Kennarar lýsa yfir ánægju með umræðuheftið og að fá tækifæri til að tjá sig með þessum hætti um skólamál. Þeir vona að svör þeirra verði gott innlegg í umræðuna, og að það sé „óásættanlegt hvernig gengið hefur verið framhjá skólafólki í grundvallarbreytingum á skólakerfinu undanfarin ár,“ eins og segir meðal annars í bréfi með svörunum.
Skólamálaráð þakkar kennurum í Holtaskóla kærlega fyrir viðbrögðin og hvetur félagsfólk, skóla og svæða- og félagsdeildir til að senda frá sér hugleiðingar og pistla um efni umræðuheftisins á netfangið adalheidur@ki.is. Efni sem berst verður birt í miðlum KÍ.
Hér á eftir eru birt svör kennara við nokkrum spurningum um aðgerðaáætlun um læsi með leyfi þeirra.
Hvaða ráðstafanir ætti að gera til að styðja við nám og skólagöngu tvítyngdra nemenda/nemenda af erlendum uppruna og við foreldra þeirra? Hver er ábyrgð ríkis og sveitarfélaga í þessu? Hver er ábyrgð skóla og kennara?
- Mjög mikilvægt að tvítyngdir nemendur fái móðurmálskennslu sem passi inn í skipulag skólanna, námsefni taki mið af aldri og mikilvægi námsorðaforða þessara nemenda. Um framkvæmdina er erfitt að segja nákvæmlega annað en að allir nemendur hafi aðgang að slíku námi og það sé skylda.
- Móta þarf kerfi innan skólanna og sveitarfélaganna um móttöku nýbúa, fræðsluyfirvöld, stjórnendur í skólunum og sérhæfðir kennarar fylgi eftir aðlögun og því að nemendur fái kennslu í íslensku sem öðru máli frá upphafi. Mikilvægast er að þau börn sem koma í leikskólana fái slíka kennslu. Við bendum sérstaklega á dæmi um að t.d. er pólskum börnum í leikskóla sinnt af pólskum kennara og við slíkar aðstæður virðist sem að börnin nái síður árangri í íslenskunámi.
- Skólar og sveitarfélög þurfa að aðlaga erlenda foreldra þannig að þeir geti stuðlað að farsælli skólagöngu barna sinna. Bendum við á námskeið í tölvunotkun varðandi nám nemendanna og „skyldunám“ í íslensku sem kosti ekki of mikið (námskeið hjá MMS fyrir þetta fólk kostar 40 þús. krónur).
- Gera þarf átak í aðgengilegu vefefni fyrir tvítyngd börn og fullorðna. Benda má á að til er t.d. Myndaorðabókin sem er forrit á mörgum tungumálum sem tryggir góðan byrjunarorðaforða en kostar talsvert og henni fylgja ekki kennsluleiðbeiningar.
- Tryggja þarf kennslu í orðaforða tengdan greinanámi. Það er algengt að börn sem koma ung inn í skólakerfið, læra að lesa á nýja málinu og öðlast greiðlega orðaforða daglegs lífs en þegar kemur að greinanámi í lok yngsta stigs dugar þetta lítið fyrir nám í einstökum námsgreinum. Því gætu orðaforðalistar með námsefni (frá útgefendum þess) skipt miklu máli og létt þennan róður.
- Það þarf að endurskoða námskrá í íslensku sem annað mál því m.a. eru ekki fyrir hendi hæfniviðmið út frá orðaforðaþekkingu og einnig kemur fram í námskrá að hæfni í móðurmáli geri þær kröfur til kennara að vita t.d. hvaða færni nemandinn hefur í eigin móðurmáli, pólsku, rússnesku o.s.frv.
Hver ættu hlutverk og ábyrgð háskóla að vera í því að sinna starfandi kennurum og skólastjórnendum?
- Þróunarstarf, fylgjast með nýjungum og koma þeim á framfæri, efla þátt læsis í kennaranámi.
- Vera eftirlitsaðili með faglegri framkvæmd þegar breytingar eiga sér stað.
- Sjá um þróun lesturs og læsis og fylgja því eftir með námskeiðum.
Hvernig mætti vinna að því að allir kennarar hafi góð tök á aðferðum sem skila árangri við eflingu læsis og ritunar og flétti þær inn í kennslu í öllum námsgreinum, og vinni m.a. með orðaforða, ritun, lesskilning og tjáningu? Hvers konar stuðning sjá kennarar fyrir sér að þeir þurfi að fá í sambandi við ofangreint? Hvers konar símenntun og starfsþróun?
- Meiri áherslu á lestrarfræði í kennaranáminu sjálfu.
- Kennarar leiðbeini nemendum varðandi málfar og leggi ríka áherslu á hugtakaskilning, láti þá glósa og skrá.
- Stuðningur við kennsluna, t.d. taka nemendur úr kennslustund og láta þá lesa, tveir kennarar með hóp, m.ö.o. meira svigrúm fyrir einstaklingsmiðaða kennslu.
- Minnka kennsluskyldu og aukatíma til undirbúnings og úrvinnslu. Kennarar hafi aðgang að lestrarfræðingi í sínum skóla.
- Mynda leshóp innan skólans sem fjallar um fræðilegar lestraraðferðir og lesefni.
Hvernig er staðan á framboði á náms- og lesefni á þínu fagsviði/námssviði og aðgengi að því? Hvaða úrbætur þyrfti að gera í útgáfumálum, hvernig?
- Aðalnámskrá hefur verið breytt en námsefni hefur ekki verið aðlagað að nýrri námskrá.
- Áður en námskrá er breytt þarf að vera búið að leggja grunn varðandi námsefni.
- T.d. er sama námsefni í dönsku og hefur verið síðustu ár, ekki hefur verið tekið mið af styttingu framhaldsskóla þar sem að nemendur sem fá yfir 6,5 í dönsku sleppa við 103 áfanga. Námsefnið í grunnskólum er hinsvegar það sama og áður en nám í framhaldsskólum var stytt.