Höldum upp á Dag leikskólans

Fréttir|3. febrúar 2023

Sjötti febrúar er merkisdagur í sögu leikskólans en á þeim degi árið 1950 stofnuðu frumkvöðlar leikskólakennara með sér sín fyrstu samtök. Við hvetjum leikskólafólk til að halda upp á daginn.

Dagur leikskólans er haldinn hátíðlegur 6. febrúar og hefur svo verið gert um langt árabil. 

Sjötti febrúar á sér þó lengri sögu og merkilegri því á þessum degi árið 1950 stofnuðu frumkvöðlar leikskólakennara fyrstu samtök sín.

Markmiðið með Degi leikskólans er að stuðla að jákvæðri umræðu um leikskólastarf og um leið beina athygli samfélagsins að því faglega og metnaðarfulla starfi sem innt er af hendi í leikskólum landsins á degi hverjum.

Haldið verður veglegt málþing í kennaradeild Háskólans á Akureyri á Degi leikskólans. Þar munu stíga á stokk Anna Elísa Hreiðarsdóttir, Kristín Dýrfjörð, Svava Björg Mörk, Rannveig Oddsdóttir, Íris Hrönn Kristinsdóttir og Alfa Dröfn Jóhannsdóttir. Málþingið ber yfirskriftina Allir sem vilja, þeir fá að vera með!

Hægt verður að fylgjast með málþinginu í streymi á Facebook, nánar tiltekið í hópnum Leikur og leikskólastarf. 

Hefð hefur skapast fyrir því að afhenda Orðsporið, hvatningarverðlaun leikskólans, á Degi leikskólans. Það verður gert á mánudag og kynnt hér á vef KÍ.

Við hvetjum leikskólakennara, stjórnendur og starfsfólk til að halda upp á daginn, hver með sínum hætti. 

Einkunnarorð dagsins eru Við bjóðum góðan dag – alla daga!