Höfum reynt að gera gott úr þessu

Fréttir|6. maí 2020

Sandra Jónasdóttir, grunnskólakennari í Hofsstaðaskóla, segir kennslu undanfarinna vikna hafa gengið vel.

Við höfum reynt að gera gott úr þessu, segir Sandra Jónasdóttir, grunnskólakennari í Hofsstaðaskóla í Garðabæ, en hún er viðmælandi KÍ í myndabandaröð um skólastarf og COVID-19. 

Sandra segir kennsluna hafa gengið vel en strax hafi verið ákveðið að leggja megináherslu á stærðfræði og íslensku. Gaman hafi verið að sjá hve krakkarnir tóku þessum breyttu kennsluháttum vel. 

Bára Björk Óladóttir, 13 ára, tekur undir þessi orð og segir: þótt við séum með styttri skóla þá finnst mér við læra miklu meira og betur.


 

Heimildir um skólastarf og COVID 19

Kennarasambandið réðist í heimildamyndagerð nýverið og markmiðið með henni var að safna heimildum um skólastarf á þessum fordæmalausu tímum – þegar heimsfaraldur kórónaveirunnar geisar. 

Við mælum með myndböndum sem hafa verið frumsýnd:

Á morgun verður frumsýnt myndband um framhaldsskólann.